Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragnar lést af völdum COVID þó hann smitaðist aldrei – Oddviti VG látinn fyrir aldur fram

Ragnar lést af völdum COVID þó hann smitaðist aldrei – Oddviti VG látinn fyrir aldur fram

Ragnar Alex­ander Þórsson er lát­inn, en hann var ein­ungis 62 ára. Ragnar starf­aði lengst af sem leið­sögu­maður en á yngri árum var hann kraft­mik­ill í stjórn­mála­starf. Hann var til að mynda í stjórnum Alþýðu­banda­lags­ins og tók virkan þátt í stofnun VG. Hann var odd­viti flokks­ins þegar flokk­ur­inn bauð fyrst fram á Suð­ur­landi. Flokk­ur­inn fékk ekki nema 2,9 pró­sent í því kjör­dæmi þá sem dugði ekki.

Hans er minnst í Morg­un­blað­inu í dag en í flestum minn­ing­ar­grein­unum kemur fram að hann hafi í raun lát­ist af völdum afleið­inga COVID. Tveir vinir hans segja að eftir að hann missti vinn­una, sem fuðr­aði upp á síð­asti ári, hafi hann misst tökin á áfeng­is­fíkn sinni.

Systir hans segir Ragnar hafa verið óvenju sann­fær­andi. „Ragnar var glæsi­legur í fasi og með djúpa og fal­lega rödd og það sóp­aði að honum. Fólk hlust­aði þegar hann tók til máls og hann var sann­fær­andi í tali. Hann gat talað við hvern sem er um nán­ast hvað sem er. Einu sinni vorum við stödd á krá í útlöndum, þegar slags­mál brut­ust út og menn börð­ust með hnúum og hnefum. Við vissum ekk­ert hvað gekk á, en Ragnar gekk inn í þvög­una miðja og sagði eitt­hvað og eftir stutta stund var allt fallið í ljúfa löð, menn tók­ust í hendur og vert­inn bauð drykk á lín­una. Svona var Ragnar, ekk­ert óx honum í augum,“ segir systir hans.

Fyrr­ver­andi eig­in­kona hans skrifar einnig minn­ing­ar­grein og spyr í fyrstu setn­ingu: „Er óvið­eig­andi að skrifa minn­ing­ar­grein um fyrr­ver­andi eig­in­mann sem ég er löngu skilin við?“ Hún svarar svo sjálfri sér: „Ég tek sím­ann til að leita ráða en átta mig á að sá sem hefði þurft að taka það sím­tal og gefa mér ráð er mað­ur­inn sem um ræðir, sá sem er lát­inn. Ég skil það fyrst þarna að ég kem ekki oftar til með að eiga aðgang að ráðum þessa manns, sem hafði svör við nán­ast öllu, og legg sím­ann frá mér.“

Hún segir hjóna­band þeirra hafa verið storma­samt, ekki síst vegna veik­inda hans. „Bakkus er harður hús­bóndi og gerði það að verkum að Ragnar nýtti ekki til fulls þá hæfi­leika sem honum voru gefnir. Hann var mik­ill tungu­mála­maður, gat leið­sagt á fjórum tungu­málum. Hann var flinkur penni og var einnig mik­ill ræðu­maður, gat talað blaða­laust og óund­ir­bú­inn við alls kyns tæki­færi, lét gott tæki­færi til ræðu­halda sjaldan fram hjá sér fara. Hann var mik­ill bar­áttu­maður fyrir hag hinna verst settu, sós­í­alisti og verka­maður í hjarta sínu,“ segir hún.

Einn vinur hans leggur áherslu á að áfeng­is­fíkn sé sjúk­dómur en ekki per­sónu­leika­brestur. „Ragnar var lærður leið­sögu­maður og starf­aði við það meira og minna allt til ævi­loka. Oft kom Ragnar að Geysi og tókum við þá gjarnan tal saman ef færi gafst og var gaman að því. Covid gerði leið­sögu­mönnum stóran grikk og því hitt­umst við Ragnar lítið síð­asta árið. Ragnar átti í glímu við Bakkus lengst af, ég vissi reyndar ekki hversu hörð sú glíma var fyrr en Ragnar sagði mér það sjálfur fyrir 3-4 árum að það væri allt of mikil áfeng­is­neysla á heim­il­inu. Sumir afgreiða áfeng­is­fíkn sem aum­ingja­skap og það er auð­velt fyrir utan­að­kom­andi sem er ekki með áfeng­is­fíkn að segja það, en það er með áfeng­is­fíkn eins og aðrar fíknir að sá sem hald­inn er fíkn getur oft litla sem enga stjórn haft á neysl­unni!,“ segir hann og skilar kveðju til Sum­ar­lands­ins.

Annar vinur fer yfir hverjar afleið­ingar COVID voru fyrir Ragnar. „Það var honum því mikið áfall þegar hann missti vinn­una í upp­hafi Covid-19-far­ald­urs­ins. Hann ku hafa átt um ára­bil erfitt með að tak­marka áfeng­is­neyslu sína og sá veik­leiki Ragnars mun hafa ágerst mjög eftir að hann missti vinn­una. Ég orða þetta með þessum hætti vegna þess að það voru ekki allir sem nálægt honum stóðu sem þekktu þessa hlið hans, hittu hann jafn­vel aldrei undir áhrifum áfengis, þar með talið ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð