Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Barnsfaðir Sigurbjargar tók eigið líf: „Þeir sem virðast glaðast­ir bera harm sinn í hljóði“

Barnsfaðir Sigurbjargar tók eigið líf: „Þeir sem virðast glaðast­ir bera harm sinn í hljóði“
Sigurbjörg Sara

Halldór Birgir Jóhanns­son, fyrr­ver­andi eig­in­maður og barns­faðir Sig­ur­bjargar Söru Bergs­dóttur, svipti sig lífi fyrir sex árum síðan.

Sig­ur­björg segir í við­tali við Morg­un­blaðið fólk aldrei fylli­lega ná sér eftir slíkt áfall, en það lærist að lifa með sorg­inni.

Saman áttu þau Halldór og Sig­ur­björg þrjú börn sem voru fimm, ell­efu og sautján ára þegar faðir þeirra lést. Öll tóku þau á sorg­inni með mis­mun­andi hætti.

„Yngsti strák­ur­inn minn fer í raun ekki að syrgja fyrr en þrem­ur árum síðar. Eft­ir að pabbi hans dó var hann í byrj­un svo hrædd­ur við að líða illa því hann heyrði fólk segja að pabba hans hafi bara liðið svo illa. Litli fimm ára barns­hug­ur­inn barð­ist við að láta sér ekki líða illa, svo hann myndi ekki deyja.“

Sig­ur­björg Sara hefur starfað hjá Lausn­inni, fjöl­skyldu- og áfalla­mið­stoð í 15 ár. Þar er hún ráð­gjafi og sér um að aðstoða fólk sem hefur lent í áföllum og glímir við kvíða og þung­lyndi.

Sig­ur­björg segir það þó ekki hafa und­ir­búið sig fyrir það áfall og þeirri sorg sem því fylgir að missa ást­vin sem hefur sjálfur kosið að yfir­gefa þetta líf.

„Hall­dór átti sér enga sögu um þung­lyndi. Þetta gerð­ist áður en maður heyrði orðið brosþung­lyndi,“ seg­ir Sig­ur­björg og útskýrir hvað brosþung­lyndi sé. „Það er fólk úr öll­um stétt­um, óháð aldri, sem glím­ir við þung­lyndi og það sést ekk­ert endi­lega utan á því. Oft eru það þeir sem virð­ast glað­ast­ir sem bera harm sinn í hljóði.“

Engir verk­ferlar fara af stað fyrir fólk sem lendir í slíku áfalli að sögn Sig­ur­bjargar, nema hjá þjóð­kirkj­unni. Til hennar kom prestur sem hún seg­ist afar þakk­lát fyrir.
„Mér fannst það ómet­an­legt. Hann sat hjá mér á meðan ég las bréfið frá Hall­dóri. Hann var hjá mér þegar ég sagði börn­un­um frá and­lát­inu. Ég hefði aldrei viljað vera án þess. Þetta var það eina sem fór í gang af verk­ferl­um; það var enga aðra hjálp að fá.“

Sig­ur­björg seg­ist hafa orðið gjör­sam­lega ráð­þrota í þessum aðstæðum, ekki vitað hvað hún ætti að gera eða hvert hún ætti að leita.

„Þetta er rosa­lega furðu­legt ferli. Þetta er ofboðs­lega stórt áfall. Fyrst fór ég í hálf­gerða af­neit­un og dofn­aði því mitt eina mark­mið var að vernda börn­in og hjálpa þeim. Ég setti mig til hliðar og þau í for­gang, enda all­ir í tauga­áfalli. Það brotna all­ir,“ seg­ir Sig­ur­björg.

Nú hefur Sig­ur­björg lokið gerð heim­ild­ar­mynd­ar­innar Þögul tár um sjálfs­víg. Hún segir umræð­una um sjálfs­víg aðeins að opn­ast en þó megi enn gera betur.
Hún bendir á að 45 manns hafi svipt sig lífi í fyrra eða einn á átta daga fresti.
„Ef við misst­um þenn­an fjölda ár­lega í bíl­slys­um mynd­um við tala meira um það. Svo er slá­andi að sjá hvað marg­ir ung­ir menn taka líf sitt. Það þarf virki­lega að skoða og ræða um.“

Heim­ild­ar­myndin er hennar leið til að opna umræð­una frekar og von­ast hún einnig til þess að myndin hafi for­varn­ar­gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð