Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Geimverurnar á Snæfellsjökli: „Höfðingi þessara geimvera heitir nú bara djöfullinn og Satan.“

Geimverurnar á Snæfellsjökli: „Höfðingi þessara geimvera heitir nú bara djöfullinn og Satan.“

Í lok ágúst árið 1993 var haldin nokkuð sér­stök ráð­stefna í Háskóla­bíó, til­einkuð geim­verum og fljúg­andi furðu­hlutum. Ráð­stefnan var haldin í tengslum við sýn­ingu á kvik­mynd­inni Fire in the Sky, eða Eldur á himni, sem mun vera byggð á sönnum atburðum og fjallar um mann sem num­inn var á brott í Banda­ríkj­unum árið 1975 og skilað til baka fimm dögum síðar.

Ef ein­hver les­andi man ekki eftir ræmunni má hugga við­kom­andi með að fæstir aðrir gera það heldur.

Íslend­ingar fyllt­ust gríð­ar­legum áhuga og í nokkra daga var um fátt annað spek­úlerað í kaffi­tímum lands­manna en geim­verur.

Rollurnar áhugalausar um gestina

Meðal þeirra sem tjáðu sig um sam­skipti við geim­verur var berja­á­huga­maður sem kvaðst hafa séð geim­far lenda vestur á Snæ­fells­nesi á sjö­unda ára­tugnum. Ekki voru önnur vitni en nokkrar rollur sem létu sér atburð­inn í léttu rúmi liggja. „Ég hugs­aði nú með mér að það hlyti eitt­hvað að vera bilað hjá karla­greyj­unum,“ sagði mað­ur­inn um litlu stór­eygu ver­urnar tvær sem héldu út úr geim­far­inu.

Annar lýsti dul­ar­fullu ljósi sem hafði sést á himn­inum yfir Snæ­fellsjökli um það leyti er hann og félagar hans voru að koma úr transi sem þeir stund­uðu um helgar. Náðust myndir af fyr­ir­bær­inu og var upp­takan sýnd í mat­ar­hléinu. „Líktist geim­skipið einna helst vasa­ljósi sem skjálf­hentur maður hélt á í nokk­urra metra fjar­lægð, en kannski kemur annað í ljós ef myndin er athuguð betur,“ skrif­aði Dr. Gunni á sínum tíma í umfjöllun um ráð­stefn­una í Press­unni.

Heimsviðburður á Snæfellsnesi

Eflaust hefði þessi ráð­stefna gleymst í áranna rás eins og svo margar þær dillur sem upp hafa sprottið og horfið jafn­óðum ef ekki hefði verið fyrir spá­dóm sem kveð­inn var upp á ráð­stefn­unni. Fullyrt var að fjöldi fólks, sem ættu í nánu sam­bandi við vits­muna­verur á öðrum hnöttum, hefði fengið þau skila­boð að geim­verur myndu í fyrsta sinn sýna sig okkur jarð­ar­búum þann 5. nóv­em­ber sama ár. Nánar til­tekið kl. 21:07. Hvaðan sú tíma­setn­ing kom veit ekki nokkur sála með vissu. Ef það hefði nú ekki verið nógu spenn­andi að frétta að geim­verur myndu heiðra mann­fólkið með nær­veru sinni, þá tók út yfir allan þjófa­bálk þegar til­kynnt var að Ísland væri áfanga­staður vina okkur að ofan. Þeir myndu nánar til­tekið lenda á Snæ­fellsjökli. Ástæðan var sögð orku­svið jök­uls­ins en Snæ­fells­jök­ull hefur löngum þótt vera öðrum stöðum tengd­ari hinu óþekkta og yfir­nátt­úru­lega.

Margir voru him­in­lif­andi en aðrir voru öllu var­færn­ari í trú sinni á heim­sókn litlu grænu mann­anna.

Hinar níu tegundir geimvera

„Ég held að geim­ver­urnar hafi valið Ísland, því það er ekki hern­að­ar­land. Það verða ekki skrið­drekar eða fall­byssur sem bíða þeirra þegar þær lenda,“ sagði Guðrún Bergmann, for­maður Snæ­fells­áss, í sam­tali við DV á sínum tíma. Michael Dillon, breskur geim­veru­sér­fræð­ingur að eigin sögn, sagði ver­urnar vera gáf­aðar og vin­veittar. Hann gat ekki falið spenn­ing sinn í við­tölum við fjöl­miðla. „Við vitum um níu teg­undir. Ein teg­undin er 2,17 metri á hæð og ljós yfir­litum en önnur teg­und er 1,20 metri á hæð, með gráa  húð og stór svört augu. Verurnar settu sig fyrst í sam­band við yfir­völd í Ameríku árið 1943“.

Hann taldi lík­legt að í fram­tíð­inni yrði Snæ­fells­jök­ull fram­tíð­ar­sam­skipta­staður manna og ann­ara vera.

Útsendarar djöfulsins

Það voru þó ekki allir sem tóku þess­ari vænt­an­legu heim­sókn utan úr geimnum fagn­andi. Snorri Ósk­ars­son, safn­að­ar­hirðir hjá Bet­el­söfn­uð­inum í Vest­manna­eyjum, sagði í sam­tali við Tímann að geim­ver­urnar væru „útsend­arar djöf­uls­ins“.

„Ég kalla þetta tækni­væddan drauga­gang. Það er svo lítið hægt að byggja á þessu. Menn þurfa helst að vera miðlar til þess að ná sam­bandi og það er akkúrat það sem heitir á dag­legu máli spír­it­ismi og biblían stendur gegn. Þetta eru andar blekk­ing­ar­innar. Höfðingi þess­ara geim­vera heitir nú bara djöf­ull­inn og Satan.“

Móttökunefndin tilbúin

Engir voru þó kát­ari með heim­sókn­ina vænt­an­legu en veit­inga­menn og ferða­þjón­ustu­að­ilar á Snæ­fells­nesi. Þegar upp rann dagur þann 5. nóv­em­ber var mik­ill við­bún­aður og öllu til tjaldað til að bjóða grænu vin­ina vel­komna.

Skúli Alex­and­ers­son, fyrr­ver­andi alþing­is­maður, stjórn­aði mót­töku­und­ir­bún­ingi og lög­regla og björg­un­ar­sveit­ar­menn gerðu sig klára. Þá var Ómari Lúð­víks­syni, odd­vita Nes­hrepps, falið að taka á móti gest­unum utan úr geimnum og bjóða þá vel­komna.

Hótel Búðir var þétt­bókað og boðið upp á „geim­vænan mat­seðil”. Hót­el­stýran, Sigríður Gísla­dóttir, sagð­ist sjá mikil teikn á lofti og kastaði fram þeirri hug­mynd að sjálfur væri Snæ­fells­jök­ull í raun geim­skip sem myndi skipta um ham og halda heim í geim um kvöldið.

Heimsóknin slegin af

Ríflega fimm hund­ruð manns voru sam­an­komin, stærsti hóp­ur­inn for­vitnir Íslend­ingar en einnig var tölu­vert um geim­veru­á­huga­fólk víða að úr heim­inum auk erlendra frétta­stöðva. Þjóð­há­tíð­ar­stemn­ing var að mann­skapnum þrátt fyrir kulda og élja­gang, flug­eldum skotið á loft og hófu ein­hverjir fjölda­söng. Eftir því sem klukkan nálg­að­ist níu sló meiri þögn á mann­skap­inn og góndi nú hver sem betur gat upp í geim. Sumir sögð­ust sjá ein­hver ljós á himnum en ekk­ert geim­far kom á áætl­uðum tíma klukkan 21:07. Hófu þá sumir leit að gest­unum í nánd við jökul­inn án árang­urs.

Ljóst var að geim­ver­urnar höfðu slegið af Íslands­heim­sókn­ina.

Flestir höfðu þó haft gaman af ævin­týr­inu en aðrir voru fúlir og töldu að geim­ver­urnar hefðu hætt við sökum ljósa­gangs og fjöl­miðla­fárs. Þær kynnu ekki við læti.

Á þeim tæp­lega þremur ára­tugum sem liðnir eru hefur engum sögum farið af heim­sóknum geim­vera til Íslands, hvorki á Snæ­fells­nesi né ann­ars staðar, svo vitað sé til.

En það á aldrei að segja aldrei …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð