Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Við konur erum ekki kjötstykki sem hægt er að nota að vild án afleiðinga“ – KÖNNUN

„Við konur erum ekki kjötstykki sem hægt er að nota að vild án afleiðinga“ – KÖNNUN

Umræður um kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum hafa verið verið mjög áber­andi síð­ustu vikur og því miður ekki af ástæðu­lausu. Margrét Þor­gríms­dóttir útbjó óform­lega könnun undir yfir­skrift­inni „Skelfi­leg stað­reynd“ og þar býðst konum að taka þátt undir nafn­leynd til þess að varpa ljósi á það hve gríð­ar­lega algengt það er að konur verði fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Tölu­legar upp­lýs­ingar sem nú þegar liggja fyrir eru slá­andi en koma því miður ekki á óvart. 90 pró­sent kvenna þekkja konu sem hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi.

Margrét Þor­gríms­dóttir

Könnun er snýr að kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum hefur verið í gangi á sam­fé­lags­miðlum und­an­farið og hafa nú 2704 konur tekið þátt í henni. Könn­un­ina, sem er óform­leg, útbjó Margrét Þor­gríms­dóttir 38 ára, þriggja barna móðir sem rekur fyr­ir­tækið Garða­þjón­ustu Íslands ásamt eig­in­manni sínum. Mannlíf spurði Margréti nokk­urra spurn­inga af því til­efni. Slóð á könn­un­ina má finna hér.

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að setja af stað svona könnun ?

„Það hefur legið lengi á mér sú þörf að vekja athygli á hversu ofboðs­lega  algengt kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart konum er. Mér finnst mjög mik­il­vægt að fólk geri sér grein fyrir raun­veru­leik­anum og ég held að könnun sem sýnir tölu­lega hve algent kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum er geti opnað augu fólks. Margir virð­ast annað hvort ekki gera sér grein fyrir því hversu algengt það er að brotið sé á konum með þessum hætti alla daga allt árið um kring, eða að fólk hrein­lega trúir því alls ekki. Hugsunin virð­ist oft vera sú að þetta sé ekki svona á Íslandi, bara erlendis og ger­endur þá örugg­lega erlendir karl­menn í meiri­hluta. Stað­reyndin er þó sú að íslenskir karl­menn eru iðu­lega ger­end­urnir þó vissu­lega séu erlendir karl­menn það líka. Ég hef sjálf orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, oftar ein einu sinni og ger­endur voru íslenskir karl­menn. Ég á tvær dætur og einn son, sem ég ber ábyrgð á að leggja veg fyrir í þessu lífi. Sá vegur verður að vera betri en sá sem við á undan höfum gengið. Mér finnst það vera skylda mín að leggja mitt af mörkum til þess að opna augu fólks og taka virkan þátt í að breyta þessum málum til batn­aðar.

Vek úr lista­smiðj­unni Hand­mótuð áhrif – 1600 nið­ur­felld nauðg­unar mál
Verkin eru ákaf­lega sorg­leg og áhrifa­rík

Það sem hratt mér út í að láta til skarar skríða var þegar ég tók þátt í lista­smiðj­unni Hand­mótuð áhrif – 1600 nið­ur­felld nauðg­unar mál. Ég hafði séð við­burð­inn aug­lýstan á Facebook og ákvað að taka þátt. Þetta var áður en allar umræð­urnar byrj­uðu eða seinni bylgja Metoo skall á. um dag­inn. Þar var verið að búa til verk sem tákna nið­ur­felld nauðg­unar mál, það sló mig hversu mörg mál eru felld niður. Sjálf hef ég reynslu af því að kæra nauðgun en málið fellt niður vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum. Mér fannst samt sem áður orðið löngu tíma­bært og nauð­syn­legt að gefa konum vett­vang til þess að tjá sig um kyn­ferð­is­of­beldi sem þær hafa orðið fyrir, nafn­laust. Það eru því miður fáar konur sem þora að koma fram undir nafni einmitt af hræðslu við að vera dæmdar lygarar, dramat­ískar, ýkja, ill­gjarnar og geð­veikar.“

 „Breyt­ingar á rétt­ar­kerf­inu og breyt­ingar á við­horfi fólks gagn­vart ger­endum og þolendum. Sönn­un­ar­byrði fag­fólks sem kemur að vinnu með þolendum þarf að vega mun þyngra og refs­ingar þurfa að vera þyngri. Ég vil að fólk sjái hvað þetta er algengt og hjálp­ist að við fræða og styrkja hvort annað. Mér finnst nauð­syn­legt að fólk átti sig á því hvað kyn­ferð­is­of­beldi er hrika­lega algengt. Þó það telji sig ekki þekkja konu sem orðið hefur fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, eru tölu­verðar líkur á því að ein­hver í nán­asta hóp við­kom­andi hafi orðið fyrir ofbeldi en hafi bara ekki sagt frá því.“

Koma niðurstöðurnar eins og þær standa núna þér á óvart ?

„Nei, nið­ur­stöð­urnar koma mér því miður ekki á óvart. Ótrúlega sárt samt að sjá þetta svona svart á hvítu. Ég þekki sjálf svo sorg­lega margar konur sem hafa lent í kyn­ferð­is­of­beldi og eru það konur á öllum aldri og úr öllum stéttum sam­fé­lags­ins.“

Telur þú kynferðisofbeldi algengara en það sem er sjáanlegt í samfélaginu ?

„Ó já, kyn­ferð­is­of­beldi er því miður miklu miklu algengar en nokkur maður gerir sér grein fyrir, við sjáum bara topp­inn á ísjak­anum í fjöl­miðlum, þögg­unin er svo gíf­ur­leg. Kannski nálg­umst við aðeins raun­veru­leik­ann með svona nafn­lausri könnun , ég vona það. Konur vilja bara að það sé hlustað á þær, á þeim sé tekið mark þegar þær greina frá ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. Fá við­ur­kenn­ingu frá sam­fé­lag­inu að kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart konum/stúlkum sé ekki í lagi og það sé sýnt innan rétt­ar­kerf­is­ins. Við konur erum ekki kjöt­stykki sem hægt er að nota að vild án afleið­inga.“

Hér að neðan má sjá slá­andi töl­fræði­legar stað­reyndir sem nú þegar hafa komið fram í könn­un­inni. Tekið skal fram að könn­unin er en þá í gangi og Mannlíf hvetur allar konur til þess að taka Hér að neðan þátt til þess að varpa ljósi á vanda­málið. Í dag hafa 2704 þátt­tak­endur svarað könn­un­inni sem er eins og áður sagði nafn­laus.

Mannlíf hvetur allar konur til þess að taka þátt í könnun Mar­grétar

90 pró­sent kvenna þekkja konu sem hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi.

84 pró­sent kvenna hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti.

56 pró­sent kvenna hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi oftar en einu sinni.

52 pró­sent kvenna hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi en ekki kært af ótta við að það skili engu.

11 pró­sent kvenna hafa kært kyn­ferð­is­of­beldi en kæran verið felld niður.

3 pró­sent kvenna hafa kært kyn­ferð­is­of­beldi sem end­aði með að ger­andi/ger­endur fengið fang­els­is­dóm.

TAKKA Þ’ATT Í KÖNNUN

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð