Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bjössi hætti í löggunni og stofnaði Vopnabúrið: „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“

Bjössi hætti í löggunni og stofnaði Vopnabúrið: „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“

„Starfs­fólkið er drekk­hlaðið og mála­fjöld­inn per haus gríð­ar­legur innan allra stofn­ana kerf­is­ins sem koma að vel­ferð barna. Viljinn er til staðar en það er engin leið að fylgja öllum þessum börnum eftir og oft fá þau litla sem enga hjálp fyrr en allt er komið í kalda kol,” segir Björn Már Svein­björns­son Brink, félags­ráð­gjafi, lög­reglu­maður og einka­þjálf­ari.

Hvað verður um þessi elskulegu börn?

Björn, eða Bjössi eins og hann kall­ast, var lög­reglu­maður í ára­tug.

„Ég fór að starfa innan til­raun­verk­efn­is­ins „Að halda glugg­anum opnum” þar sem félags­þjón­ustan og lög­reglan tóku höndum saman um að leita úrræða í heim­il­is­of­beld­is­málum. Ég varð vitni að miklu úrræða­leysi gagn­vart börn­unum, sá mörg þeirra tekin af heim­il­unum og ég gat ekki hætt að hugsa um hvað yrði um þessi elsku­legu börn. Ég fékk bara geggj­aðan áhuga á að hjálpa þeim”.

Tóm­stund­irnar spanna vítt róf og er ótæm­andi listi þar sem lögð er áhersla á að finna styrk­leika og áhuga­mál sem skjól­stæð­ingar brenna fyrir og því veitt enn frek­ari athygli þar sem þeir fá alla þá aðstoð sem hægt er að veita.

Svo fór að Bjössi ákvað að ein­beita sér að aðstoð við börn, fór í frekara nám og varð félags­ráð­gjafi árið 2018. Hann seg­ist í starfi sína hafa horft upp á að þörfum barna sé ekki mætt, bið­tími eftir aðstoð sé langur og kerfið þungt og fullt skriffin­sku. Viljinn sé fyrir hendi en fjár­magnið vanti.

Finna og næra styrkleikana

„Ég vildi færa þjón­ust­una nær börn­unum, inn á heim­ilin og í skól­ana og geta gefið hverju barni þá þjón­ustu sem það þarf og ekki síst, vill. Það þarf að sér­sníða þjón­ust­una fyrir hvert barn fyrir sig, finna styrk­leika þess og næra þá. Börnin þurfa að finna að þau séu við stjórn­völ­inn í eigin lífi, þeim sé mætt á jafn­ingja­grund­velli og fái þá athygli sem þau eiga rétt á til að styrkja sjálfs­mynd sína og sjálfs­ör­yggi. Það þarf að finna rétta far­veg­inn til að kalla fram jákvæða hegðun og leggja af nei­kvæða hegðun“.

Bjössi brennur fyrir vel­ferð barna.

Í kjöl­farið stofn­aði Bjössi Vopna­búrið þar sem þjón­ust­unni er skipt upp á tvo vegu,  ann­ars vegar styrk­ingu og hins­vegar inn­grip.

Í Vopna­búr­inu er fundin úrræði sem sér­sniðin eru að hverju barni. „Enginn er góður í öllu en það ber að faðma það sem gott er í barn­inu og búa styrk­leikum þess far­veg til að vaxa og dafna“.

Lögð er áhersla á mik­il­vægi heil­brigðrar hreyf­ingar í starf­inu.

„Lyk­il­at­riðin er traust, virð­ing og auð­mýkt, sem eru kjör­orð og gildi Vopna­búrs­ins“.

Dagurinn á morgun er nýtt tækifæri

„For­eldrar standa oft uppi ráða­lausir og þá er gott að fá inn fag­að­ila til hjálpar, ein­stak­ling sem hjálpar for­eldrum og barni að finna réttu leið­irnar. Við gerum svo­nefnda dags­samn­inga við börnin og eru þeir ein­stak­lings­mið­aðir en skipt­ast í nauð­syn­legar og  eru þær athafnir sem er barn­inu fyrir bestu þar sem vel­ferð og heilsa er fremst í flokki. Getur verið lyfja­inn­taka, mæta í skól­ann, heima­lær­dómur, þrífa eigið her­bergi osfrv. Mögu­legar athafnir er aftur á móti hreyf­ing eða borð­spil.Hann segir enga tvo samn­inga eins og eng­inn samn­ingur sé rit­aður í stein. Þeim megi alltaf breyta.

Úti­ver­ann og nær­ver­and við dýrin gera öllum börnum gott.

„Dagurinn í dag kemur ekki aftur en dag­ur­inn á morgun kemur með ný tæki­færi, nýrri sorg, nýrri gleði, nýrri reiði og nýrri ham­ingju. Barnið þarf að læra á bera ábyrgð á eigin lífi á hverjum degi og þarf til þess leið­ar­vísi sem við sér­sníðum að hverju þeirra fyrir sig“.

Ráðgjöf, styrking og eftirlit

Bjössi segir mikla áherslu vera á grunn­þör­f­unum; nær­ingu, svefni og hreyf­ingu enda er hann eink­þjálf­ari og mik­ill áhuga­maður um heilsu­sam­lega hreyf­ingu.

„Svo þarf að ramma inn utan­um­hald yfir þessar hvers­dags­legu athafnir og dag­lega dag­skrá, eins og mæta í skóla, gera heima­vinnu, taka lyfin sín og svo fram­vegis. Þau fá síðan bón­us­styrki fyrir það sem er utan þessa nauð­syn­lega ramma og það getur verið hvað sem er; vinna í tölv­unni, hjálpa til við að gera pizzu eða við aðstoða við heim­il­is­þrifin“.

Starf­menn Vopna­búrs­ins fylgja skjól­stæð­ingum sínum og for­eldrum eða for­ráða­mönnum þeirra náið á för þeirra til betra lífs. Þau sinna ráð­gjöf og styrk­ingu innan heim­il­ins, eft­ir­liti fyrir fag­að­ila, aðstoða við upp­lýsta ákvarð­ana­töku og vinna náið með barni og fjöl­skyldu að skaða­minnk­andi hegðun.

Olnbogabörnin

Inngrip er einnig þjón­usta sem boðið er upp á og er þá horft til oln­boga­barn­anna sem hvergi virð­ast passa inn í kerfið vegna neyslu og vímu. „Við mætum hverju barni á jafn­ingja­grund­velli og leggjum áherslu á að mæta þeim þar sem þau eru í núinu. Barnið þarf að vera reiðu­búið að koma sér af þeim stað sem það er búið að koma sér á breyta far­veg­inum í lífi sínu.

Fjöldi ung­menna hefur áhuga á akst­urs­í­þróttum.

Lyk­ill­inn er að við­kom­andi geri þetta fyrir sjálfan sig, læri að elska sjálfan og finni köllun í eigin hjarta. Þau eru oft full skammar yfir hafa valdið fjöl­skyldu áhyggjum og skaða. Mörg hafa tekið sig á tíma­bundið á röngum for­sendum, þau hafa oft gert það vegna sam­viksu­bits í garð fjöl­skyld­unnar, frekar en að eigin vilja. Þá vilja þau því miður enda aftur á sama stað.

Þau þurfa að verða edrú fyrir sjálfann sig en ekki aðra. Að læra elska sjálfan sig svo við­kom­andi geti elskað aðra og verið til staðar fyrir aðra“.

Hvað með hin börnin?

Bjössi brennur fyrir börn­unum og hefur opnað styrkt­ar­síðu til að stækka við starf­sem­ina svo að fleiri börn geti nýtt sér þjón­ust­una. „Börnum er vísað til okkar af fag­að­ilum sveit­ar­fé­laga, svo sem barna­vernd, fjöl­skyldu- eða stoð­þjón­ustu en við erum einnig að vinna fyrir for­eldra sem kaupa þjón­ust­una beint. Sjálfum finnst mér óásætt­an­legt að aðeins þeir hafi það fjár­hags­legt bol­magn geti leitað til okkar. Hvað með hin börnin?”

Hann leitar uppi aðila sem henta áhuga­sviði og styrk­leikum hvers barns og hafa áhuga á að aðstoða við að styrkja þá hæfi­leika sem börnin búa yfir.. Vopna­búrið hefur fengið í lið með sér fag­að­ila úr hinum ýmsum úr sam­fé­lag­inu m.a. Tón­list­ar­skóla Reykja­víkur, Púlz, Hjóla­bretta­skóla Reykja­víkur, bar­daga­í­þrótta­fé­lag­inu Mjölni og Hjóla­kraft.  svo fátt eitt sé nefnt.

Hann kallar eftir fleiri sam­starfs­að­ilum á sviði tóm­stunda og leitar til að mynda eftir akst­urs­í­þrótta­fé­lögum í sam­starf. Starf­semi Vopna­búrs­ins er stöðgt að aukast svo Bjössi leitar að stærra hús­næði og kallar eftir hug­myndum.

„Við fengum til dæmis inn til okkar dreng sem átti erfitt en við komumst að því að hann hafði gaman af tón­list, sér­stak­lega rappi. Ég vipp­aði upp litlu stúd­íói sem við settum upp í horn­inu og því­líkir hæfi­leikar sem þarna eru til staðar! Kannski erum við búin að finna næstu tón­list­ar­stór­stjörnu Íslands.”

Fer alla leið

Bjössi hvetur alla til að vera með hjartað á réttum stað. „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, gömul klisja en samt svo rétt. Ef við stöndum saman náum við að lyfta grettistaki. Ég vil líka stór­aukið sam­starf þeirra sem eru að vinna með börnum í vanda og velt­ast um í kerf­inu, að við vitum hvort af öðru og getið tekið höndum saman. Ég hef þá trú að við getum allt ef við stöndum saman“.

„Ég er til­bú­inn að fara alla leið fyrir blessuð börnin. Næst stefni ég á fund með ráð­herra. Ég hætti ekki fyrr en hann tekur á móti mér! Og ein­fald­lega hverjum þeim sem er annt um börnin okkar og hafa vilja og getu til að hjálpa,” segir Bjössi ákveð­inn.

Meira um Vopna­búrið á heima­síðu þess og Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð