Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Yfirlæknir vildi skylda GBS-skimun: „Ég skil ekki hvers vegna ekki er skimað“

Yfirlæknir vildi skylda GBS-skimun: „Ég skil ekki hvers vegna ekki er skimað“

Hartnær tveir ára­tugir eru síðan barn lést síð­ast hér á landi vegna sam­bæri­legrar sýk­ingar og raunin varð í til­felli Friðriks Ragnars Hansen, sem veikt­ist lífs­hættu­lega af völdum heila­himnu­bólgu í kjöl­far GBS sýk­ingar í apríl á þessu ári.

Friðrik Ragnar sem kom í heim­inn eftir 33 vikna með­göngu þann 3. apríl síð­ast­lið­inn er nú orð­inn ríf­lega tveggja mán­aða gam­all og er undir stöð­ugu eft­ir­liti tauga­læknis. Karen Ing­ólfs­dóttir sem er móðir drengs­ins sagði í við­tali við Mannlíf nú í gær að taka þurfi blóðprufur af barn­inu í hverri viku til að mæla natr­íumbirgðir lík­am­ans. Þetta er gert þar sem litli dreng­ur­inn veikt­ist það alvar­lega af heila­himnu­bólgu ein­ungis fjórum dögum eftir fæð­ingu að heila­d­ing­ull hans varð fyrir skaða á sjón- og hreyf­is­viði lík­am­ans sem svo hafði alvar­leg áhrif á getu lík­am­ans til að vinna úr natr­íum.

Upplýsingar færðar í sjúkraskrá án vitundar

Karen telur að skylda ætti skimun barns­haf­andi kvenna á Íslandi en slíkt tíðkast víða meðal nágranna­þjóða okkar. GBS skimun á með­göngu er val­kvæður mögu­leiki á Íslandi í dag en fjöl­margar konur eru svo­nefndir GBS-berar án þess að hafa nokkru sinni fundið ein­kenni eða til nokk­urra óþæg­inda. Sú reynd­ist raunin í til­felli Karenar en að sögn hinnar nýbök­uðu móður voru upp­lýs­ing­arnar færðar í með­göngu­skrá hennar án frek­ari mála­leng­inga og fengu for­eldrar barns­ins ekki að vita af skrán­ingu fyrr en nýfæddur dreng­ur­inn var orð­inn lífs­hættu­lega veikur.

Einkennalausir GBS berar

Fleiri eru á sama máli og Karen, en ekki þarf að líta lengra aftur í tím­ann en aftur til árs­ins 2013, en þá veikt­ist 9 daga gömul stúlka lífs­hættu­lega vegna strept­ókokka­sýk­ingar frá fæð­ing­ar­vegi móður. Í við­tali við Vísi árið 2013, sagði Þórður Þor­kels­son, þáver­andi yfir­læknir vöku­deildar að skima ætti allar barns­haf­andi konur til að úti­loka að þær bæru strept­ókokka af þess­ari gerð. Slík skimun væri ein­föld í fram­kvæmd og gæti dregið stór­lega úr hættu á að nýburar veikt­ust svo alvar­lega. Liðin eru ein átta ár frá orðum þáver­andi yfir­læknis vöku­deildar og stendur reglu­gerðin enn óbreytt í heil­brigð­is­kerf­inu. Talið er að fjórð­ungur mæðra sem fæða börn hvert ár séu svo­kall­aðir GBS berar en að helm­ingur þeirra barna smit­ist og þar af væru fáein börn úr þeim hópi, eða um 1 – 2 pró­sent sem veikt­ust alvar­lega.

Orð yfir­læknis vöku­deildar fengu sterkan hljóm­grunn árið 2013 og tók Birna Harð­ar­dóttir, móðir Matt­hildu litlu sem aðeins 9 daga gömul var lögð inn á spít­ala í hasti með sýk­ingu í blóði og þvagi, heils­hugar undir orð Þórðar Þor­kels­sonar sem þá sagði í við­tölum við fjöl­miðla að börn væru í bráðri lífs­hættu ef bakt­er­ían kæm­ist í blóðið. „Erlendar rann­sóknir hafa sýnt til­tölu­lega háa dán­ar­tíðni, 30-40 pró­sent en sem betur fer er dán­ar­tíðnin ekki nærri eins há hér á landi“.

Vonar að frásögn hennar muni hrinda af stað skylduskimun á meðgöngu

Átta ár eru nú liðin frá síð­asta þekkta til­felli hér á landi og orðum yfir­læknis, sem stað­festi að sýk­ing hjá nýfæddum börnum völdum strept­ókokka í fæð­ing­ar­vegi móður gæti orðið svo alvar­leg að gæti valdið heila­himnu­bólgu. Slíkt varð raunin í til­felli Friðrik litla. „Hugsun okkar for­eldr­anna í dag er sú að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir að hann veikt­ist svona alvar­lega. Ég skil ekki hvers vegna ekki er ski­mað fyrir GBS hjá óléttum konum eins og gert er ann­ars staðar í heim­inum. Ég óska engum að lenda í þessu og vona ég inni­lega að frá­sögn mín verði til þess að skyldu­ski­mað verði fyrir GBS á með­göngu kvenna héðan í frá,“ sagði Karen í við­tali við Mannlíf.

Upp­lýs­ingar um GBS má finna á fræðslu­vef ljós­mæðra en þar kemur fram að ekki hafi verið mælt með skimun allra barns­haf­andi kvenna fyrir GBS hér á landi. Konur sem hafi áður fætt barn sem sýkt­ist af GBS eða hafa greinst með GBS í þvagi eða leggöngum/enda­þarmi á með­göngu eigi allra helst að fá sýkla­lyfja­gjöf í æð meðan á fæð­ingu stendur.

Fræðslu­efni um GBS:

DOKTOR – Strept­ókokkar í leggöngum

LJÓSMÓÐIR – GBS berar

ÖSKUBUSKA – Ert þú GBS beri? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð