Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðrún hefur farið hátt í 60 skimanir: „Þetta er ákveðið afrek í mínu lífi“

Guðrún hefur farið hátt í 60 skimanir: „Þetta er ákveðið afrek í mínu lífi“
Guðrún líf­fræð­ingur hjá Íslenskri Erfða­grein­ingu. Mynd: Róbert Reynisson

„Ég er mjög stolt, þetta er ákveðið afrek í mínu lífi,“ segir Guðrún Matt­hildur Sig­ur­bergs­dóttir og skellir upp úr.

Guðrún er búin að fara hátt í 60 sinnum í sýna­töku fyrir Covid-19, sem gerir hana einn reynslu­mesta Íslend­ing­inn í því að fá sýna­tökupinna upp í nefið. Hún segir þetta ákveðið afrek að hafa kom­ist svo hátt, hún hafi ekki búist við því.

„Ég er ekki viss um að ég muni ná að toppa þetta. Þetta er svona once in a lifetime reynsla,“ segir hún og hlær sínum smit­andi hlátri, með kúl­una út í loftið. En Guðrún á von á sínu öðru barni í júlí.

Forréttindapésar hjá Íslenskri erfðagreiningu

Guðrún er líf­fræð­ingur að mennt og starfar hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, sem útskýrir hve oft hún hefur farið í sýna­töku, en starfs­fólkið þar fór um tíma viku­lega í skimun. „Öryggið hérna innan húss er mjög gott og það er bara útaf því að við höfum tækin og tólin og mann­afl­ann til að ganga úr skugga um að það séu ekki smit og þá bara nýtum við það,“ segir Guðrún. Hún segir það jafn framt mikil for­rétt­indi að starfa hjá fyr­ir­tæki sem fylgist svo vel með starfs­fólki sínu. „Við erum algjörir for­rétt­indapésar að fá stað­fest­ingu á því að það sé allt í lagi í hverri viku.“
Sömu­leiðis segir hún það hafa hjálpað kvíð­anum, sem á það til að hrjá hana, að fá alltaf þessa stað­fest­ingu að hún væri ekki kór­ónu­veirusmituð.

„Ég hef alveg fundið það líka sem pínu kvíða­sjúk­lingur að þetta hefur svona annað hvort haldið kvíð­anum gang­andi eða þá bara létt á manni alltaf á mánu­dögum, vit­andi að ef maður var kannski með pínu kvef, þá var þetta bara pínu kvef. Þú varst kannski ekki að smita ömmu þína og afa þegar þú fórst í heim­sókn til þeirra um helg­ina. Það er alveg því­lík for­rétt­indi að fá að vita alltaf að maður sé ekki með þetta.“

„Ég get bara lagt mig meðan þær taka þessi sýni“

Þrátt fyrir að allt starfs­fólk Íslenskrar erfða­grein­ingar hafi farið í sýna­töku viku­lega í tæpt ár hefur Guðrún nokk­urt for­skot á flesta sam­starfs­fé­laga sína. Guðrún var nefni­lega dug­leg að bjóða sig fram sem sjálf­boða­liða þegar það var „pinna drama í gangi“, eins og hún orðar það og útskýrir að í upp­hafi far­ald­urs­ins hafi þurft að prufa sig áfram með sýna­tökupinna, þegar útlit var fyrir pinna­hall­æri, til að vita hvort aðrir sýna­tökupinnar virk­uðu til að greina Covid. Prófa þurfti pinn­ana á fólki og þá var starfs­fólk beðið um að hlaupa undir bagga.

„Ég var ein­hvern veg­inn alltaf á staðnum þegar var verið að hóa í fólk,“ segir Guðrún, sem er orðin þaul­vön og segir þetta lítið mál, hún finni orðið ekk­ert fyrir þessu. „Þær eru orðnar svo vanar sem eru að taka þessi próf að ég finn ekki fyrir neinu, ég get bara lagt mig meðan þær taka þessi sýni,“ segir hún með bros á vör og aug­ljóst að henni er fúlasta alvara.

Guðrún segir það hafi verið fjórir, fimm stafs­menn sem hafi séð um skimun­ina frá byrjun, „alltaf á mánu­dags­morgnum hoppa þær af rann­sókn­ar­stof­unni til að skima okkur öll. Svo sér mín deild um að greina sýnin,“ segir Guðrún sem starfar á líf­sýna­deild. „Við vinnum með alls­konar lífs­sýni við að ein­angra veiruna, fá RNA erfða­efnið úr veirunni sem er svo lesið í PCR prófi ef hún er til staðar. Í PCR próf­inu er verið að skima fyrir hvort að veiru­erfða­efnið er í sýn­inu og því næst er það sent upp í rað­grein­ingu og þá er verið að skoða hvaða týpa það er.“

Guðrún Matt­hildur

Miðlar af reynslu sinni

Þótt ótrú­legt megi virð­ast miðað við fjölda skim­ana sem hafa átt sér stað hér á landi, leyn­ist enn fólk sem aldrei hefur farið í Covid sýna­töku. „Mér finnst alltaf jafn fyndið að heyra um fólk sem hefur bara aldrei farið,“ segir Guðrún en hún hefur fengið skila­boð frá ein­stak­lingum sem eru á leið í sína fyrstu skimun og er stressað. „Þannig ég þarf svona að hug­hreysta fólk, lýsa því fyrir þeim að þetta sé ekk­ert mál,“ segir reynslu­bolt­inn kím­inn.

En er hún komin með ákveðna tækni?

„Já þú andar pínu­lítið inn þegar pinn­inn fer upp og ert alveg slakur. Það þýðir ekk­ert að streit­ast á móti, þá er þetta leið­in­legt. Bara vera alveg slakur og það er gott að anda svona pínu inn með nef­inu þegar pinn­inn fer, ekki of fast samt því þá fer hann of langt,“ segir hún og skelli­hlær, „bara rólega.“

Aðspurð hvort hún hafi ekk­ert orðið aum í nef­inu þegar mest lét á heim­sóknum þangað, seg­ist hún svo ekki vera. „Ég hef ekki fundið fyrir neinu, en það er alveg fólk sem hefur fengið sýk­ingu hrein­lega, kannski með þröng nef­göng eða eitt­hvað svo­leiðis,“ segir hún og bendir á að fólk sé auð­vitað mis við­kvæmt.

„En ég finn ekk­ert fyrir þessu, þetta bara losar frekar stíflur og svona,“ segir hún og rekur upp hlátur. „Þetta er fínt í stað­inn fyrir nef­dropa,“ segir hún enn hlæj­andi sínum dill­andi hlátri, „nei ég segi svona.“

Styttist í hjarðónæmi innanhúss

Í lok maí var viku­legri skimun hjá Íslenskri erfða­grein­ingu hætt. Guðrún segir þó ekk­ert endi­lega víst að það verði ekki farið að skima aftur, það sé bara metið eftir ástandi. Þó telji hún að lík­legt að hjarð­ó­næmi fari að nást inn­an­húss, bólu­setn­ingar séu komnar það langt.

En hefði starfs­fólk Íslenskrar erfða­grein­ingar átt að njóta for­gangs í bólu­setn­ingu vegna aðkomu sinnar að grein­ingu kór­ónu­veirunnar?

„Ég hefði nú alveg viljað fá bólu­setn­ingu þar sem við erum búin að vera vinna með veiru­sýnin, en við erum susum ekki í neinni auk­inni hættu inni á rann­sókn­ar­stof­unni,“ segir hún hóg­værðin upp­máluð og fer í fram­hald­inu að ræða hve ótrú­legt það sé að í öllum þeim skimunum sem hafi farið fram á starfs­fólk­inu hafi aldrei greinst jákvætt sýni. „Annað hvort erum við mjög heppin eða mjög passa­samt og ófé­lags­lynt fólk hérna,“ segir Guðrún og skellir upp úr.

Fór í tónleikaferðalag með Björk

Þó það sé nokkuð gott afrek að vera búin að fara í hátt í 60 skimanir, er annað afrek sem Guðrún er nú öllu stolt­ari af.
En Guðrún sem er söng­fugl mik­ill, fór í tón­leika­ferða­lag með okkar einu sönnu Björk.

Hvernig vildi það eig­in­lega til?
„Ég var í kór í Lang­holts­kirkju, Graduale Noobili og Björk hafði sam­band við kór­stjór­ann okkar, Jón Stef­áns­son heit­inn og vildi fá okkur til að syngja inn á plötu með sér.“

Sem varð úr og söng kór­inn inn á plötu Bjarkar, Biophilia.

„Við vissum nátt­úru­lega ekk­ert hvað við vorum að fara út í. Æfðum bara þessi lög með henni og kór­stjór­anum okkar og fórum svo í upp­tökur.“

Guðrún seg­ist muna það eins og það hafi gerst í gær þegar Björk hafði fyrst orð á því hvort kór­inn væri til í að koma með henni í tón­leika­ferða­lag.
„Það varð bara þögn í hópnum,“ segir hún og brosir við minn­ing­unni. „Við vorum nátt­úru­lega alls ekki að búast við þessu, en við vorum allar svo spenntar. Svo varð þetta bara að veru­leika. Við fórum og túruðum með henni út um allan heim.“

Guðrún segir tón­leika­ferða­lagið hafa staðið yfir í um þrjú ár, frá 2011 til 2013. „Við fórum út og vorum svona mánuð í senn, komum svo heim í einn, tvo mán­uði og svo aftur út.“

Hún segir þetta hafa verið ótrú­lega lífs­reynslu og mikil for­rétt­indi að fá að upp­lifa.

En ein að lokum, hvernig er það að fara ekki lengur vikulega í skimun?

„Maður er svo­lítið í svona lim­bói núna, vantar pinna upp í nefið, saknar þess. Ég fæ eflaust post skimun depression, ég fæ kannski að ræna nokkrum pinnum og taka með heim,“ segir hún að end­ingu og skelli­hlær létt í bragði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ