Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigrar og sorgir Sigmars: „Það var til dæmis mjög sárt þegar ég féll“

Sigrar og sorgir Sigmars: „Það var til dæmis mjög sárt þegar ég féll“
Sigmar Guð­munds­son.

Sigmar Guð­munds­son er reynslu­bolti í fjöl­miðla­heim­inum. Boltanum var kastað nýlega til hans úr annarri átt og nú er hann kom­inn í fram­boð fyrir Viðreisn. Hann talar hér um Viðreisn, eft­ir­minni­leg­ustu málin á fjöl­miðla­ferl­inum og sjálfan Bakkus. 

„Þetta kom eig­in­lega mjög óvænt upp,“ segir Sigmar Guð­munds­son þegar hann er spurður um til­urð þess að hann ákvað að gefa kost á sér fyrir Viðreisn í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum.

„Ég var ekk­ert sér­stak­lega að hug­leiða þetta en aðili frá upp­still­inga­nefnd hafði sam­band við mig og var ég spurður hvort ég væri til í að hug­leiða þetta ef þannig færi. Og ég sagði bara „já“ en hugs­aði mig um í smá­tíma áður. Svo heyrði ég ekk­ert í þeim í góðan tíma og svo allt í einu stóð ég frammi fyrir val­inu – vildi ég taka 2. sætið eða ekki? Og þá varð þetta áþreif­an­legt. Ég fann strax að þetta tog­aði í mig; bæði finnst mér þetta vera spenn­andi og skoð­anir flokks­ins eru mínar skoð­anir. Þannig að ég ákvað bara að gera þetta. Ég var nátt­úr­lega búinn að vinna lengi á sama vinnu­staðnum, RÚV, og það tog­aði svo­lítið mikið í mig að breyta til.“

Fjöl­miðla­maður að störfum

Frjálslyndur flokkur

Sigmar nefndi skoð­anir flokks­ins sem eru líkar skoð­unum hans.

„Fyrir það fyrsta er Viðreisn flokkur sem er frekar til hægri en um leið frjáls­lyndur en ekk­ert mjög sér­stak­lega íhalds­samur eins og kannski aðrir flokkar á Íslandi sem eru aðeins hægra megin í til­ver­unni. Þannig að frjáls­lyndið höfðar mjög mikið til mín. Svo vil ég nefna þessa miklu áherslu á að beina sjónum fólks að því að stærsta efna­hags­málið og stærsta málið fyrir buddu almenn­ings og fyr­ir­tækja er gjald­mið­ill­inn. Það hefur lengi verið skoðun mín sem venju­legs manns í þessu landi að það þyrfti að laga það að þurfa enda­laust að vera að horfa á þessa háu vexti, verð­bólgu og hús­næð­is­lán sem hækka. Og Viðreisn hefur talað mjög skýrt um það. Síðan er Viðreisn flokkur sem hefur talað svo­lítið fyrir því að stokka upp þessi stóru, þungu kerfi sem eru búin að vera hérna við líði í ára­tugi og hafa ein­hvern veg­inn hlaðið ofan á sig og sum­part sum hver vaxið sjálf­stætt ein­hvern veg­inn. Þannig að það eru líka þessar miklu kerf­is­breyt­ingar sem flokk­ur­inn vill ráð­ast í sem höfða til mín.“

Sigmar seg­ist hafa kosið Viðreisn frá því flokk­ur­inn var stofn­aður. 

„Þegar ég var í fram­halds­skóla og rétt um tví­tugt þá var ég skráður í Sjálf­stæð­is­flokk­inn og starf­aði í Sjálf­stæð­is­flokknum í Garðbæ en svo hætti ég því. Þegar ég varð frétta­maður þá hætti ég öllu vaf­stri í kringum póli­tík. Svo smátt og smátt breytt­ust skoð­anir manns. Ég var hér og þar í póli­tík áður en Viðreisn var stofnuð en ég átti erfitt með að sam­sama mig ákveðnum flokki. En auð­vitað er það þannig þegar maður er í frétta­mennsk­unni að maður er ekk­ert mikið að tjá sig um þessi mál hvað þá að starfa í kringum þetta. Það er algjör­lega nýtt fyrir mér að vera í kosn­inga­bar­áttu og vera allt í einu póli­tískur út á við og opinn með skoð­anir mínar og annað.“

Reiðin og uppgjörið

Sigmar segir að ára­tuga reynsla sín í fjöl­miðlum þar sem hann hefur fjallað um sam­fé­lags­mál sé án efa góður skóli ef hann fer á þing. 

„Frétta­mennska er fag þar sem það skiptir máli að geta greint aðal­at­riðin frá auka­at­rið­unum og það skiptir máli að geta sett flókna hluti fram með ein­földum hætti þannig að fólk skilji. Það eitt og sér er mik­ill og góður grunnur fyrir þing­störf myndi ég halda. Svo eru allir fjöl­miðlar á Íslandi til­tölu­lega litlir þanig að maður þarf að hafa áhuga á öllu og þarf að geta fjallað um alla mála­flokka og það held ég að sé eitt­hvað sem muni nýt­ast manni mikið í þessu starfi ef ég næ kjöri.“

Þegar Sigmar er spurður hvað standi upp úr á fjöl­miðla­ferl­inum segir hann að hann hafi verið svo hepp­inn að fá að gera svo margt og verið í svo fjöl­breyttum verk­efnum.

„Ef ég ætti að nefna eitt­hvað eitt þá var það ótrú­lega lær­dóms­ríkt að vinna í Kast­ljós­inu í hrun­inu og aðdrag­anda þess sem og á árunum á eftir. Þetta var svo erf­iður tími. Hann var svo til­finn­inga­hlað­inn og það var svo mikil reiði. Maður var nátt­úr­lega með allar þessar til­finn­ingar, reið­ina, og upp­gjörið inni á gafli hjá sér í þætt­inum alla daga. Það var rosa­leg lífs­reynsla að vinna við þetta í þannig nág­vígi. Og ég held að það sé ekk­ert annað sem kom­ist ofar á blað heldur en það.“

Afhjúpun barnaníðings

Hvað með ákveðið mál? Ákveðna frétt?

„Það var auð­vitað mjög eft­ir­minni­legt og áhuga­vert að hafa fjallað um Karl Vigni og brotin hans og hafa afhjúpað hann og verið með Jóhann­esi Krist­jáns­syni, Helga Seljan og fleirum í því.“

Sigmar ásamt vinnu­fé­lögum sínum, Jóhann­esi Kr. Krist­jáns­syni og Helga Seljan.

Frétta- og blaða­menn eru stundum gagn­rýndir fyrir fréttir sem þeir vinna í. Sigmar hefur ekki farið var­hluta af því.

„Ég hef þurft að svara fyrir mín verk fyrir dómi í tvígang,“ segir hann. „En það er ann­ars vegar að Jónína Bjartmarz fór í mál við Kastljós og Jón Baldvin í mál gegn mér og Aldísi Schram.  Ég var sýkn­aður í bæði skiptin. Þetta er bara fylgi­fiskur vinn­unnar sem maður leyfir sér ekk­ert að velta sér of mikið upp úr. Ef fólk er ósátt og ef fólki finnst á sig hallað og finnst að það sé brotið gegn sér þá fer fólk dóm­stóla­leið­ina og það er voða lítið við því að segja. Þannig að ég dvel ekk­ert mikið við svo­leiðis. Ég ýti því í burtu. Eins og í Kast­ljós­inu og núna í Kveik þá er oft verið að stinga á ein­hverjum kýlum og menn eru oft mjög ósáttir við umfjöllun, rétt­mæta umfjöllun. Þeir sjá þetta með öðrum augum og telja á sig hallað. Mér finnst það bara vera hluti af starf­inu að fá á sig gagn­rýni. Það er hluti af starf­inu að taka á sig ágjöf þess vegna frá stjórn­mála­mönnum sem eru ósáttir við umfjöllun og hringja reiðir. Þá er þetta spurn­ing um að standa í lapp­irnar. Ég geri ekki miklar athuga­semdir við það þó menn vilji hafa sterkar skoð­anir á fjöl­miðlum. Það bara eig­in­lega fylgir þessu starfi.“

Þetta er sjúk­dómur sem hefur litað líf mitt

Það hefur gefið á bát­inn í einka­lífi Sigmars og hann hefur tekið á sig ágjöf. Hann er alkó­hólisti og hefur gengið í gegnum dimma og djúpa dali í þeim heimi. 

„Þetta er hjart­ans mál fyrir mér. Þetta er sjúk­dómur sem hefur litað líf mitt. Þetta er ekki neitt til þess að fara í felur með og þetta er ekk­ert sem ég skamm­ast mín fyrir. Þetta er eitt­hvað sem er hluti af mér. Og það að sigr­ast á þessu er ein­hver mesti sigur minn í líf­inu sem ég er stoltur af. Alkó­hól­ismi er krónískur sjúk­dómur sem getur lamið fólk niður aftur og aftur og hefur líka mikil áhrif á aðstand­endur. Alkó­hól­ismi þarf að vera í umræð­unni; þetta er heil­brigð­is­vandi eins og það þarf að ræða um aðra sjúk­dóma. Að mínu mati er þetta einn stærsti heil­brigð­is­vandi sam­tím­ans og veldur gríð­ar­legum kostn­aði í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerf­inu en einnig þegar kemur að lög­gæslu og dóm­stólum. Þar fyrir utan stendur svo allur afleiddur kostn­aður vegna þeirra áfalla sem aðstand­endur verða fyrir. Þeir gleym­ast oft í þess­ari umræðu og þar verður mik­ill skaði. Við erum með ágætt með­ferð­ar­kerfi, sem þarf reyndar meiri pen­inga, en það þarf að gera miklu betur í að hlúa að allri fjöl­skyld­unni sem stundum er rjúk­andi rúst út af þessum sjúk­dómi. Ég hef þurft að ganga í gegnum dimma dali en líka unnið stóra sigra.“

Mikil vonbrigði

Sigmar er spurður um dimmasta dal­inn. Þar sem sort­inn ríkti.

„Það var til dæmis mjög sárt þegar ég féll fyrir nokkrum árum eftir að hafa verið edrú lengi. Og það átti sér aðdrag­anda eins og alltaf hjá okkum ölk­unum; við hættum að sinna okkur og hættum að gera það sem við erum vön að gera. Við hlúum ekki lengur að okkur og missum teng­ing­una við batann. Svo bara féll ég. Og það voru mikil von­brigði. Ég fór ekki vel með mig á tíma­bili og hætti að sinna fjöl­skyld­unni og vinn­unni eins og ég átti að gera og þetta varð allt erfitt. Það tók mig tíma að vinna mig upp úr þessu. Mér tókst það. Ég átti góða fjöl­skyldu, vinnu­fé­laga og yfir­menn þegar þetta dundi yfir og ég fór í gegnum þetta. Það var erfitt – ég ætla ekk­ert að draga fjöður yfir það. Það er erfitt þegar svona ger­ist og maður veldur sjálfum sér og öðrum von­brigðum en að sama skapi er maður svo­lít­ill sig­ur­veg­ari þegar maður fer upp úr því.“

Sigmar segir að í dag geri hann það sem þarf að gera til að sinna sér. Passa upp á sjálfan sig.

„Þegar fólk er í bata frá alkó­hól­isma þá er lífið bara venju­legt. Það gengur sinn vana­gang. Og það er nákvæm­lega þannig. Ég er á þannig stað að ég er ekk­ert að velta mér upp úr for­tíð­inni og lifi bara líf­inu frá degi til dags eins og á að gera. Það að vera óvirkur alki er ekki eitt­hvað sem er inni í heil­anum á manni allan dag­inn og allar nætur 365 daga árs­ins. Þetta er bara eitt­hvað sem maður veit af. Maður þarf að vera með­vit­aður um þetta; maður þarf að passa sig á að gera réttu hlut­ina, ég þarf að forð­ast ákveðnar aðstæður og ákveðna hluti. Maður bara heldur sér í standi.“

Nýr kafli

Sigmar er í standi til að takast á við nýjan vett­vang í líf­inu. Nýr kafli er haf­inn. Hvað með fjöl­miðl­ana sem hann hefur starfað við í ára­tugi? Mun hann sakna ats­ins þar þótt atið verði öðru­vísi á öðrum vett­vangi ef allt gengur að óskum?

„Það að vinna á fjöl­miðli er eitt­hvað sem mig dreymdi um strax á ung­lings­ár­unum. Síðan fékk ég tæki­færi til að starfa við fjöl­miðla og ég hef gert ótrú­lega spenn­andi hluti. Það að vera fjöl­miðla­maður hefur verið stór partur af sjálfs­mynd­inni. Þetta er ekki bara starf; þetta verður svo­lítið bakt­ería. Þetta hel­tekur mann svo­lítið. En á ein­hverjum tíma­punkti þarf maður að vega og meta það hvort maður vilji gera eitt­hvað annað í líf­inu. Þetta teng­ist því að ögra sjálfum sér og prófa eitt­hvað nýtt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð