Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Morðið á Þorsteini í Stóragerði var hrottafengið – Myrti velgjörðarmann sinn með melspíru

Morðið á Þorsteini í Stóragerði var hrottafengið – Myrti velgjörðarmann sinn með melspíru

Hinn 25. apríl 1990 mætti Þor­steinn Guðnason, 48 ára starfs­maður olíu­fé­lags­ins Esso, snemma á vinnu­stað sinn, bens­ín­stöð­ina við Stóra­gerði. Eins og hans var vani tók hann örygg­is­kerfið úr sam­bandi og hóf hefð­bund­inn und­ir­bún­ing kom­andi vinnu­dags.

Það sem gerð­ist þennan morgun fyllti þjóð­ina hryll­ingi en Þor­steini var ráð­inn bani á ein­stak­lega skelfi­legan hátt.

Fjöl­miðlar lands­ins voru und­ir­lagðir af frá­sögnum af þessu níð­ings­verki og smám saman tók atburð­ar­rás voða­verkn­að­ar­ins á sig mynd.

Bauð inn í kaffi en stunginn með melspíru

Rétt ríf­lega klukkan sjö um morg­unin bar tvo menn að stöð­inni sem tjáðu Þor­steini að bíll þeirra hefði bilað í nágrenn­inu. Þor­steinn bauð mönnum inn og hellti upp á kaffi fyrir þá. Menn­irnir vorume Guð­mundur Helgi Svav­ars­son, 28 ára, og Snorri Snorra­son, 34 ára.

Raun­veru­leg ætlan þeirra var aftur á móti að ræna bens­ín­stöð­ina.

Það sem nákvæm­lega gerð­ist næst veit eng­inn, en ljóst er að menn­irnir réð­ust að Þor­steini með grimmi­legum hætti. Þor­steinn mun ekki hafa veitt mót­spyrnu enda ótt­að­ist hann mjög um líf sitt. Slógu þeir Þorstein með þungum hlut í höf­uðið svo hann féll til jarðar. Því næst slógu þeir hann í hnakk­ann áður en þeir drógu fram melspíru sem þeir stungu ítrekað í bak og brjóst Þor­steins. Melspíra er odd­hvasst tól, notað við að splæsa saman víra í fiski­skipum. Þegar Þor­steinn var lát­inn rændu menn­irnir pen­inga­skáp bens­ín­stöðv­ar­innar og höfðu á brott mér sér ríf­lega hálfa milljón króna í pen­ingum og ávís­unum.

Óku þeir á brott á bif­reið fórn­ar­lambs síns sem þeir skildu síðan við á Vest­ur­göt­unni.

Grunur lögreglu staðfestur

Leit lög­reglu að morð­ingjum Þor­steins var með lengsta móti en sex dagar liðu frá morð­inu þar til lög­regla taldi sig geta hand­tekið þá Guðmund Helga og Snorra. Í við­tali við RÚV árið 2013  sagði Helgi Gunn­laugs­son, afbrota­fræð­ingur, slíkt óvenju­legt þar sem lög­regla upp­lýsti flest morð­mál á fyrstu sól­ar­hring­unum og sé bið­staða sem þessi afar erfið fyrir alla máls­að­ila og sam­fé­lagið allt.

Lögregla beindi sjónum sínum aðal­lega að fólki sem hafði unnið á bens­ín­stöð­inn og þekkti þar til stað­hátta. Enn­fremur var talið eit­ur­lyfja­neyt­endur ættu hlut að máli og féll grunur á mann sem hafði þekkt Þorstein. Reyndist það vera Snorri Snorra­son. Við nán­ari rann­sókn kom í ljós að Þor­steinn hafði reynst þessum bana­manni sínum ein­stak­lega vel í gegnum tíð­ina.

Bentu hvor á annan

Eftir ver­una á bens­ín­stöð­inni hafði Snorri verið á sjó en líf hans ein­kennst sífellt meira af notkun áfengis og fíkni­efna. Bjó hann ásamt konu sinni og öðru pari í mið­bænum og var þar um Guðmund Helga að ræða sem átti yfir höfði sér dóm fyrir inn­flutn­ing af eitt þús­und skömmtum af LSD.

Við yfir­heyrslur neit­uðu þeir Snorri og Guð­mundur alfarið svo dögum saman að hafa orðið Þor­steini að bana en við­ur­kenndu þó verkn­að­inn að lokum. Bar þeim ekki saman um hvað gerð­ist hafði inni á bens­ín­stöð­inni og sök­uðu hvor annan um dauða Þor­steins. Báðir munu þeir hafa sagt konum sínum frá verkn­að­inum og öll fjögur höfðu þau notað ráns­fengin dag­ana eftir morðið. Öll voru þau fíkni­efna­neyt­endur sem lög­regla þekkti til.

Hrottafengin og undirbúin árás

Konurnar voru dæmdar fyrir yfir­hylm­ingu og að þiggja gjafir sem keyptar voru fyrir ráns­feng­inn.

Í Sakadómi var Guð­mundur Helgi dæmdur til 20 ára fang­els­is­vistar og Snorri til 18 ára. Segir í nið­ur­stöðu dóms­ins að  telja verði sannað að það hafi vakað fyrir mönn­unum báðum, þegar þeir lögðu af stað í ráns­för­ina, að ráða Þor­steini bana. Dómurinn taldi að báðir mann­anna hefðu átt jafna og fulla sök á dauða hans. Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að árásin á Þorstein var hrotta­fengin og und­ir­búin.

Dómnum var sjálf­krafa áfrýjað til Hæsta­réttar sem mild­aði dómana í 17 ár yfir Guðmundi og 16 ár yfir Snorra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð