Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íris Dröfn harðorð: „Rétt upp hönd sem hefur pissað úti niðr’í bæ“

Íris Dröfn harðorð: „Rétt upp hönd sem hefur pissað úti niðr’í bæ“
Íris hefur skoð­anir á mætti sam­fé­lags­miðla.

„Rétt upp hönd sem hefur pissað úti niðr’í bæ á djamm­inu! (Hönd hér). Rétt upp hönd sem hefur farið yfir mörk ann­arra og verið óvið­eig­andi í tali og gjörðum! (Hönd hér). Rétt upp hönd ef þú hefur verið fáviti, ert til­búin/nn að gang­ast við því og hefur lært af því (Hönd hér). Það er nefni­lega partur af því að vera mann­eskja og kall­ast þroski,“ ritar Íris Dröfn Krist­jáns­dóttir grunn­skóla­kenn­ari í pistli á Facebook um #metoo bylgj­una sem er í gangi á Íslandi í dag.

Hún segir að flestir séu með mynda­vélar á sér ásamt beinu aðgengi að umheim­inum í gegnum sam­fé­lags­miðla.

„Þetta tvennt saman vegur hættu­lega að frið­helgi einka­lífs­ins. Í hverri viku má sjá til­raunir til mann­orðs­morða og á litlu landi eins og hér geta þessar til­raunir verið ansi árang­urs­ríkar“.

Hér vísar Íris til þess að mynd­band náð­ist af Eiði Smára í ann­ar­legu ástandi í miðbæ Reykja­víkur.  Íris hefur verið harð­lega gagn­rýnd og henni bent á það að tala um það atvik í sömu andrá og hún talar um Metoo bylt­ing­una nái ekki nokk­urri átt og að málin séu með öllu óskyld. Einnig er bent á það að Eiður sé þjóð­þekktur maður og fyr­ir­mynd og það sé ekki það sama og þegar Pétur eða Páll séu að skemmta sér í mið­bænum og létti á sér, þar að auki sé það ólög­legt.

Að mati Írisar eru mörg mál „í þess­ari nýju her­ferð svo ómerki­leg að þær hefðu vel getað afgreitt þau á staðnum þegar atvikið átti sér stað með því að setja mörk, en auð­vitað á að segja frá.“ Íris nefnir að Kvenna­at­hvarfið og Bjark­ar­hlíð taki á móti konum sem verða fyrir ofbeldi og að hún hafi enga trú á að hægt sé að fá sál­ar­frið vegna ofbeldis með því að henda ein­hliða frá­sögn á sam­fé­lags­miðla „og jafn­vel nafn­greina svo­kall­aðan ger­anda.“

Skrif Írisar hafa vakið hörð við­brögð meðal fórn­ar­lamba kyn­ferð­is­of­beldis sem sjá ekki betur en að Íris sé að gera lítið úr þeim á mjög óvæg­inn hátt.  Íris er innt eftir dæmi um frá­sagnir sem hún telji ómerki­legar og hún svarar því svona til:

„Dæmi um ómerki­lega frá­sögn sem ég hef orðið vitni að er að kona birtir mynd af „vafasömum” ein­stak­ling sem hætti skyndi­lega að svara henni á Tinder. Varar við honum í umræðu­hópi þar sem hann hlýtur að hafa óhreint mjöl í poka­horn­inu (ath! HLÝTUR) og á eftir fylgja ómerki­legar og rætnar get­gátur frá hjörð­inni um hvað sé mögu­lega að honum.Annað dæmi um ómerki­lega frá­sögn. Fyr­ir­tæki manns nafn­greint (NB hann er ein­yrki) og fjöl­skyldu­hagir hans raktir. Hann fór yfir mörk konu með að segja að hún hefði fal­legt bros. Henni þótti það óvið­eig­andi þar sem hún var að kaupa af honum þjón­ustu og hvatti aðrar til að snið­ganga fyr­ir­tækið“.

Pistill Írisar heldur áfram hún spyr: „Erum við mögu­lega að geng­is­fella alvar­legri ofbeld­is­mál með því að setja mis­skiln­ing, ósætti og ólík mörk undir sama hatt og ofbeldi?“
Íris veltir vöngum yfir því hvort „staðan sé raun­veru­lega sú að við nærumst á mis­tökum ann­arra?“ og nefnir dæmi:

„Sjálf­skip­aður “áhrifa­valdur” – skað­valdur – jarmar eitt­hvað út í loftið og fjögur hund­ruð og eitt­hvað – jafn­vel þús­undir – hlaupa jarm­andi á eftir með mis­gáfu­legar reynslu­sögur. Er eitt­hvað rétt­læti í að eyði­leggja mann­orð fólks með ein­hliða frá­sögnum“ spyr Íris og veltir því fyrir sér hvort þessi mál ekki heima ann­ars staðar en á sam­fé­lags- og frétta­miðlum:

„Hvað er það annað en gróft ofbeldi þegar ein­stak­lingur safnar liði og ræðst á einn hvort heldur er með gjörðum eða orðum? Þessi þróun er ekki góð og það versta er að börnin okkar læra það sem fyrir þeim er haft.“

Það sem Íris hefur verið hafð­lega gagn­rýnd fyrir er það að hún á að heita fyr­ir­mynd ungs fólks sem kenn­ari en kemur út með skila­boð sem þessi sem gætu valdið því að stúlkur þori alls ekki að segja frá ofbeldi sem þær verða fyrir sem og það að ungir drengir fá líka skila­boð með pistli Írisar. Börn læra það sem fyrir þeim er haft segir hún sjálf í nið­ur­lagi pistils­ins en hefur ef til vill gleymt að hafa það í huga sjálf áður en hún birti skrif sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ