Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðrún Veiga þurfti læknishjálp við að ná af sér óheppilega staðsettu einangrunarlímbandi

Guðrún Veiga þurfti læknishjálp við að ná af sér óheppilega staðsettu einangrunarlímbandi

Hin bráð­fyndna og orð­heppna Guðrún Veiga Guð­munds­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Það má með sanni segja að Guðrún Veiga hafi unnið hug og hjörtu Íslend­inga slíkar hafa vin­sældir hennar á sam­fé­lags­miðlum verið. Og ekki að undra. Fyrir utan að vera mik­ill húmoristi, þá kemur hún til dyr­anna eins og hún er klædd, tuðar yfir hinu og þessu, sem við eigum nú öll til að gera, spjallar við fylgj­endur sína ómáluð á sloppnum sínum góða, sýnir heim­ilið sitt óháð því hvort allt sé í drasli eður ei og er ein­hvern veg­inn svo hvers­dags­leg, í jákvæð­ustu mynd þess orðs, að auð­velt er að tengja við hana og ósjálfrátt fer manni að þykja vænt um hana.
Mannlíf komst að því að Guðrún Veiga hefur sungið á sviði með Leoncie, óum­beðin þó, horfir alltof mikið á sjón­varp og verður sjaldan fyrir von­brigðum.

Guðrún Veiga

Fjöl­skyldu­hagir? Ég er gift Guðmundi Valssyni og við eigum saman tvö börn, Val Elí og Sigrúnu Þórdísi.

Menntun/atvinna? MA gráða í mann­fræði frá Háskóla Íslands en ætli ég starfi ekki sem eins manns aug­lýs­inga­stofa – sem er ljóm­andi fínt af því ég kann best við mig bara í eigin félags­skap. Ég er líka búin að kaupa svo mikið af potta­blómum und­an­farið að það er að verða að fullu starfi. Jú og svo er ég farin að rækta þau líka.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni?  The Office, Cougar Town, Friends, Good Girls, Younger, Cold Case, Real Housewives of hvað sem er, Parks and Recreation, Sex and the City, Seinfeld, Desperate Housewives, You – jájájá, ég horfi alltof mikið á sjón­varp og hef alltaf gert.

Leikari? Höfum það leikkonu, Julia Roberts, ávallt og að eilífu

Rit­höf­undur? Glennon Doyle og Jojo Moyes

Bók eða bíó? Bók – það vill eng­inn fara með mér í bíó af því það er ekki nokkur mögu­leiki að ég geti þagað í 90 mín­útur eða meira.

Besti matur? Skyr, kara­mellu­dýrin frá Góu, pizza, ítölsku kjöt­boll­urnar hennar mömmu og rjúp­urnar hans Gumma. Eins hef ég óþægi­lega mikla mat­ar­ást á mági mínum.

Kók eða Pepsí? Rauðvín

Fal­leg­asti stað­ur­inn?  Ó, Eski­fjörður er sá allra fal­leg­asti. Seyð­is­fjörður fylgir svo fast þar á eftir. Og Vest­manna­eyjar – þær hafa aldeilis skriðið inn í hjartað á mér.

Hvað er skemmti­legt? Þegar sonur minn hlær að brönd­ur­unum mínum. Hann er 14 ára – segir að ég sé meira skrýtin en fyndin, þannig að ég fagna hverri hlát­urs­gusu áður en umbreyt­ingin í úrillan ung­ling verður algjör.

Hvað er leið­in­legt? Manna­mergð og múgæs­ingur. Of mikið af fólki. Ég er lík­lega ekki félags­lyndasta kona sem þú finnur.

Hvaða skemmti­staður? Æ, ég er best geymd í sóf­anum heima – sem ég sit svo oft og mikið í að það er komin dæld í hann.

Kostir? Stund­vísi

Lestir?  Stund­vísi – sver það, hef eytt 30% af ævinni í að bíða ein­hvers­staðar af því ég er mætt tveimur tímum of snemma, aðal­lega af ótta við að fá ekki bíla­stæði á áfanga­stað. Bíla­stæða­kvíði er raun­veru­legt fyr­ir­bæri.

Hver er fynd­inn? Pabbi minn.

Hver er leið­in­legur? Ég get verið alveg mökk­fokk leið­in­leg þegar ég tek mig til.

Trúir þú á drauga? Alveg bara. Það er lík­lega leitun að myrk­fæln­ari ein­stak­lingi. Ég sé alls­konar mis­gáfu­leg fyr­ir­bæri í hverju horni þegar húmar að. Sef helst með öll ljós kveikt og held lík­lega uppi raf­veit­unni í Vest­manna­eyjum.

Stærsta augna­blikið? Er til eitt­hvað stærra en að fá börnin sín í fangið í fyrsta sinn? Ó, ég fór líka á tón­leika með Adele árið 2016, tróð mér upp við sviðið (sem er ekki rétt, ég hata manna­mergð og múgæs­ing – vin­kona mín dró mig) og Adele horfði í augun á mér og blikk­aði mig. Get svo guðsvarið það. Árið 2003 söng ég líka á sviði með Leoncie. Hún bauð mér ekki upp á svið, ég sá um það sjálf.

Mestu von­brigðin? Sko, ég er afar svart­sýnn og kvíð­inn ein­stak­lingur. Böl­sýn­is­kona mikil. Ég hef til­einkað mér að gera alltaf ráð fyrir því versta í öllum kring­um­stæðum. Mála skratt­ann á sem flesta veggi bara. Hræði­legur ókostur en hefur þann kost í för með sér að ég verð eig­in­lega aldrei fyrir von­brigðum.

Hver er draum­ur­inn? Að fá að sofa fram að hádegi. Ég er að ala upp einn hrika­lega árrisulan ein­stak­ling. Hef ekki sofið lengur en til sjö í góð fjögur ár. Og og og að læra til prests. Sá draumur ræt­ist þó lík­lega ekki fyrr en að Háskóli Íslands hund­skast inn í nútím­ann og stó­r­eykur fram­boð sitt af fjar­námi og reynir að þjón­usta aðeins fleiri en þá sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða eru til­búnir til þess að flytj­ast þangað.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Fer það ekki á mína afreka­skrá ef systir mín eign­að­ist barn á árinu? Jæja, ég afrek­aði alla­vega að verða yfir mig ást­fangin af agn­arsmáum ein­stak­lingi við það eitt að sjá ljós­mynd af honum. Svo skipu­lagði ég líka og hélt ferm­ing­ar­veislu. Það á heima á afreka­skrá. Og drakk ekk­ert vín í jan­úar. Og er komin í þriðju viku af couch to 5K.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Ég er kvíða­kona mikil og mark­miða­setn­ing er langt frá því að vera hvetj­andi fyrir mig. Meira bara þrúg­andi og kvíð­væn­leg. Ég á ýmis­legt eftir óafrekað þó. Veit ekki hvað en það skýrist.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Engum sem ekki er svo óvið­eig­andi að krakk­arnir verða lík­lega teknir úr minni umsjá ef ég læt þá flakka.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Líf mitt er röð vand­ræða­legra augna­blika og afar erfitt að ætla að velja eitt sem stendur upp úr. Það sem kemur fyrst upp í hug­ann er að einu sinni var ég að fara í mynda­töku og bol­ur­inn sem ég ákvað að klæð­ast bauð ekki upp á þann munað að skartað væri brjósta­hald­ara innan undir. Ég ætl­aði nú aldeilis ekki að bjóða þeim sem myndu bera mynd­ina augum upp á blý­sperrtar geir­vört­urnar á mér. Mig minnti endi­lega að ég hefði lesið ein­hvers­staðar að þetta vanda­mál mætti leysa með svolitlu lím­bandi. Jóðla bara tveimur strimlum á stitt­hvora tútt­una. Það eina sem ég fann var hins vegar ein­angr­un­ar­lím­band ein­hverss­konar. Töluvert mikið sterkara en það sem þú notar á afmæli­s­pakka. Þessu lím­bandi smellti ég svo kyrfi­lega á bring­una á mér – hæstá­nægð með eigin lausn­a­mið­aða hugs­ana­hátt. Löng saga stutt – ég þurfti á end­anum lækn­is­hjálp af því ég reif næstum geir­vört­urnar á mér upp með rótum þegar kom að því að afklæð­ast eftir þessa ágætu mynda­töku.

Sorg­leg­asta stundin? Ein af sorg­leg­ari stundum barn­æsku minnar var þegar ég komst að því að Sigga og Grétar í Stjórn­inni væru ekki hjón.

Mesta gleðin? Það veitir mér mikla gleði hvað systk­ini mín hafa orðið skemmti­leg og ómissandi með aldr­inum. Þoldi þau ekki þegar ég var yngri.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Hvers­dags­leik­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð