Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lögregla harðorð um heimsóknir á gosstöðvar: „Getum lokað án fyrirvara fyrir alla umferð“

Lögregla harðorð um heimsóknir á gosstöðvar: „Getum lokað án fyrirvara fyrir alla umferð“

„Lífs­hættu­legt er að stíga út á hraunið. Farið því aldrei út á,“ segir í þung­orðri yfir­lýs­ingu Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum sem kveðst get lokað án fyr­ir­vara fyrir alla umferð inn að gos­s­töðvum. „Gossvæðið er hættu­legt og þá ekki síst vegna lélegra loft­gæða”.

Yfir­lýs­ingin er með þeim harð­orð­ari sem lög­reglan hefur sent frá sér varð­andi umferð um gos­s­töðvar og þær hættur sem þar leyn­ast. Bent er á að frá og með mið­nætti verði engir við­bragðs­að­ilar á staðnum, komi til dæmis eitt­hvað upp á.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að leið A upp að gos­s­töðvum sé lokuð og fara þurfi leið B sem sé lengri og erf­ið­ari og ekki fyrir óvana göngu­menn. Auk þess sjá­ist ekki í eld­tungur úr gígnum ef leið B er valin

„Förum ekki með börn (6 ára og yngri) að gos­s­töðv­unum ef hætta er á gasmengun. Ekki er ráð­legt að börn dvelji lengur en 15 mín­útur á stað þar sem loft­mengun er yfir heilsu­vernd­ar­mörkum. Leitum upp­lýs­inga um loft­gæði á svæð­inu áður en gengið er af stað”.

Lög­reglan ítrekar eft­ir­far­andi:

  • Frá mið­nætti og fram eftir degi eru engir við­bragðs­að­ilar á svæð­inu til að mæla gasmengun og bregð­ast við óhöppum.
  • Gossvæðið er hættu­legt og þá ekki síst vegna lélegra loft­gæða. Lögregla getur án fyr­ir­vara lokað fyrir alla umferð inn að gos­s­töðv­unum.
  • Búast má við gasmengun vegna eld­goss á Reykja­nesi og er fólk hvatt til að fylgj­ast með loft­gæða­mæl­ingum á loft­gaedi.is og leið­bein­ingum frá Almanna­vörnum.
  • Gasmengun við gos­s­töðv­arnar getur alltaf farið yfir hættu­mörk, mökk­ur­inn leggst undan vindi og því örugg­ast að horfa til eld­stöðva með vind­inn í bakið.
  • Í hæg­viðri (<5 m/s) getur gas safn­ast fyrir, þá stjórn­ast vinda­far af lands­lagi og gas getur verið yfir hættu­mörkum langt upp í hlíðar. Í slíkum til­fellum þurfa áhorf­endur að færa sig upp á fjöll og hryggi.
  • Velja þarf göngu­leið eftir vinda­spá hverju sinni.
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gos­s­töðv­unum. Hundar eru útsett­ari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
  • Yfir­borðs­mengun getur verið í jarð­vegi, snjó og yfir­borðs­vatni vegna þung­málma og upp­söfn­unar flú­ors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gos­s­töð­ina. Vegna loft­meng­unar er ekki ráð­lagt að dvelja lengi við gos­s­töðv­arnar. Börnum, öldruðum, barns­haf­andi konum og þeim sem hafa und­ir­liggj­andi hjarta- og lungna­sjúk­dóma er ráð­lagt frá því að fara á gos­s­töðv­arnar ef ein­hver loft­mengun er yfir­vof­andi.

    Bíla­stæði:

    Bannað er að leggja öku­tækjum á og við Suð­ur­strand­ar­veg. Leggja skal bílum á skipu­lögðum stæðum á gras­flötum við veg­inn en aðkoma að bíla­stæðum er bæði úr austri og vestri.

    Göngu­leið:

    Áætla má að gangan taki 3-4 klst. fram og til baka fyrir með­al­vant göngu­fólk. Göngu­leiðin er stikuð og greini­leg en hefur reynst mörgum erfið. Nauð­syn­legt er að vera í góðum göngu­skóm og öðrum úti­vi­starfatn­aði.

    Á safetra­vel.is eru upp­lýs­ingar um stöð­una hverju sinni upp­færðar reglu­lega yfir dag­inn. Vakin er athygli á göngu­leið að útsýn­is­stað hefur verið breytt vegna hraun­flæðis.

    Loft­mengun:

    Yfir­borðs­mengun getur verið í jarð­vegi, snjó og yfir­borðs­vatni vegna þung­málma og upp­söfn­unar flú­ors (F). Mengun er mest í næsta nágrenni við gos­s­töð­ina. Vegna loft­meng­unar er ekki ráð­lagt að dvelja lengi við gos­s­töðv­arnar. Börnum, öldruðum, barns­haf­andi konum og þeim sem hafa und­ir­liggj­andi hjarta- og lungna­sjúk­dóma er ráð­lagt frá því að fara á gos­s­töðv­arnar ef ein­hver loft­mengun er yfir­vof­andi.

    Spá veð­ur­vaktar um veður og gas­dreifngu í dag og á morgun:

    Suð­vestan 10-15 m/s í dag. Gasið berst til norð­aust­urs og gæti orðið vart á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

    Vestlæg átt 8-15 á morgun og þá blæs gasið í austur yfir byggðir á Suð­ur­landi.

    Áætlun við­bragðs­að­ila sem gæti breyst án fyr­ir­vara:

     

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð