Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Neytandi vikunnar – „Sumar fast-fashion keðjur á hreinlega að sniðganga“

Neytandi vikunnar – „Sumar fast-fashion keðjur á hreinlega að sniðganga“

Neytandi vik­unnar er Dagbjört Hákon­ar­dóttir. Hún er 36 ára og starfar sem lög­fræð­ingur og er per­sónu­vernd­ar­full­trúi Reykja­vík­ur­borgar. Dagbjört er gift Þórhalli Gísla Sam­ú­els­syni flug­um­ferð­ar­stjóra, þau búa í 105 Reykja­vík ásamt börn­unum sínum þeim Katrínu 7 ára og Torfa 4 ára. Dagbjört gefur kost á sér í 3. sæti í Reykja­vík norður fyrir Sam­fylk­ing­una.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst ?

„Það er mjög mis­mun­andi eftir mán­uðum, en við verjum á bil­inu 150-200.000 kr. í mat og aðrar rekstr­ar­vörur á mán­uði að öllu með­töldu. Yfir­leitt verslum við í Bónus í Skip­holti sem er rétt hjá okkur, en við sækjum líka oft föstudagspizzuna á nær­liggj­andi stöðum. Þá höfum við vanið okkur á sl. tvö ár að panta mat­ar­pakka frá Eldum Rétt eða Matseðli. Það er ekki gert til að spara, heldur auð­veldar það heim­il­is­lífið til muna að þurfa ekki að taka ákvörðun um það hvað á að vera í mat­inn. Þá eru rétt­irnir yfir­leitt sæmi­lega hollir og vel úti­látnir. Svo kemur meira að segja fyrir að börnin fást til að borða þetta án þess að styrj­öld brjót­ist út“.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

„Það er alltaf hægt að vera skyn­sam­ari í lang­tímainn­kaupum, en í því felst samt gíf­ur­leg vinna sem ég er ekki til­búin að leggja á mig miðað við mikið vinnu­á­lag í leik og starfi. Við hjónin lítum á okkur sem for­rétt­inda­fólk þar sem við getum lagt fyrir og notið að ganga að þeim hvers­dagslúxus vísum að kaupa þann mat inn sem okkur langar í hverju sinni og er í senn hollur og barn­vænn. Bestu inn­kaupin eru að mínu mati þau sem mið­ast við eina matseld sem á að duga í margar mál­tíðir, hvort sem það er hægeld­aður lamba­bógur, risa­stórt lasagna eða sað­söm súpa. Sem neyt­andi vil ég gera breyt­ingar á inn­kaupum í prótein­gjöfum, en ég hef það sem mark­mið að bjóða æ oftar upp á kjöt­lausar mál­tíðir og læra í meiri mæli að elda úr baunum og tofu. Ég væri til í að sjá versl­anir gera slíkum vörum hærra undir höfði“.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

„Vara­sjóður heim­il­is­ins er á aðskildum reikn­ingi. Við eigum líka gjald­eyr­is­reikn­ing og erum að leggja drög að skyn­sam­legum ráð­stöf­unum í lág­vaxtaum­hverf­inu sem nú ríkir“.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Það ríkir sæmi­leg sam­keppni á smá­vöru­mark­aði en það er erfitt að benda á versl­anir og kenna þeim einum um okur og óeðli­lega hátt verð­lag hér á landi. Aðflutn­ings­gjöld og svim­andi óvissa sem teng­ist því að halda úti við­skipta­lífi í skugga íslensku krón­unnar gera út af við þá umræðu. Ég geri reglu­lega sam­an­burð á kostn­aði á vörum og þjón­ustu en of oft gríp ég eitt­hvað í búð­inni og gleymi að athuga verðið á hill­unni. Stundum endar það með ósköpum, t.d. þegar ég keypti í covid-panikki einnota grímur fyrir börn í pakka á fleiri þús­undir króna í Hagkaup í upp­hafi seinni grímu­skyld­unnar. Þær eru samt mjög sætar með risa­eðlu­mynstri“.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Við hjónin ákváðum við skuld­breyt­ingu á síð­asta ári að halda hús­næð­is­lán­inu á verð­tryggðum, föstum vöxtum. Þá er ekki þar með sagt að ég sé sér­stakur aðdá­andi verð­trygg­ing­ar­innar en kjör á óverð­tryggðum lánum sæta reglu­lega end­ur­skoðun hjá lána­stofn­unum og er ég ekki sann­færð um að nið­ur­greiðsla á höf­uð­stól fari endi­lega hraðar fram þegar á hólm­inn er komið“.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

„Sem fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar ætla ég að henda fram rán­dýrri full­yrð­ingu: Það á ekki nokkur ein­stak­lingur erindi í þing­fram­boð sem telur ekki að umhverf­is­mál sé for­gangs­mál ákom­andi kjör­tíma­bili. Sem neyt­andi er ég þó ekki jafn rót­tæk og ég myndi vilja vera, en ég tek fram­förum. Ég kaupi til dæmis allt of mikið af fötum á sjálfa mig og heim­il­is­fólk og mætti vera dug­legri við að leita í deili­hag­kerfið þegar það vantar ný stíg­vél eða kuldagalla. Það er auð­veld­ara að ganga inn í kunn­ug­legar búðir og kaupa þar ódýrar bómull­ar­vörur þegar buxur vantar í næstu stærð á börnin. Sumar fast-fas­hion keðjur á hrein­lega að snið­ganga og ég nota appið Good on you til að leggja mat á sjálf­bærni og umhverf­is­á­hrif merkja og versl­ana“.

Annað sem þú vilt taka fram ?

„Mig dreymir um nána fram­tíð þar sem heim­ilin þurfa ekki öll að eiga bíl – jafn­vel marga – og deili­bílar gætu sprottið upp víða með sama hætti og við höfum séð með raf­hlaupa­hjólin. Það kostar með­al­fjöl­skyld­una um 80.000 krónur að eiga og reka einn bíl á mán­uði, sem er tæp milljón á ári. Það þyrfti að leigja sér deili­bíl ansi oft fyrir þá fjár­hæð, og hugsið ykkur bara öll grænu svæðin sem við gætum búið til í stað­inn fyrir bíla­stæðin“.

Hvaða mál og málaflokka telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á ?

„Ég hef minnst á umhverfis- og gjald­eyr­is­mál sem stærstu kosn­inga­málin þegar  kemur aðneyt­endum, en við þurfum að breyta heim­il­is­bók­hald­inu hjá venju­legri fjöl­skyldu. Mat­ar­k­arfan hefur alltaf verið of dýr á Íslandi og það er ekki hægt að skrifa það á há lífs­gæði hér á landi. Venjuleg fjöl­skylda þarf til að mynda að fá barna­bætur til að stemma stigu við þeirri fátækt­ar­gildru sem núver­andi kerfi býr til“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ