Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Einar myrti Rafn vegna bankabókar: „Mundaði Einar hnífnum að Rafni óður af bræði og ofurölvi“

Einar myrti Rafn vegna bankabókar: „Mundaði Einar hnífnum að Rafni óður af bræði og ofurölvi“

Árið 1975 fannst 37 ára karl­maður, Rafn Svav­ars­son, lát­inn í ver­búð í Ólafsvík. Hann hafði hlotið mik­inn fjölda stungusára sem drógu hann til dauða. Fljót­lega kom í ljós að Einar Karlsson, 18 ára félagi Rafns á ver­búð­inni, var bana­maður hans. Ástæða morðs­ins mun hafa verið banka­bók sem Einar átti. Hann hafði náð að safna sér saman 125 þús­und krónum og var stoltur af.

Spánarferðin sem aldrei varð

Samkvæmt sam­tíma­heildum Dag­blaðs­ins voru þeir félagar saman við drykkju í her­bergi Einars í ver­búð­inni þegar hann dregur upp banka­bók­ina sína og sýnir Rafni, full­tur trausts. Einar sagði Rafni að hann hygð­ist nýta féð til að fara í sína fyrstu utan­lands­ferð og hafði hann hafið und­ir­bún­ing að Spán­ar­för um sum­arið.

Rafn brást sér­kenni­lega við, varð ægi­legur ásýndum og stakk bók­inni inn á sig. Sagði hann Einar aldrei muna sjá bók­ina aftur. Einar sagð­ist síðar hafa fyllst skelf­ingu við umbreyt­ing­una á Rafni, sem var slíkt helj­ar­menni að burðum svo um var rætt meðal manna. Einar átti aftur á móti við fötlun að stríða allt frá barn­æsku.

Þrátt fyrir ótt­ann réð­ist Einar að Rafni til að ná banka­bók­inni aftur sem honum tókst og stakk hann henni inn á sig. Við það rann æði á Rafn og sló hann Einar bylm­ings­höggi sem kastaði honum á járn­rúm sem var að finna í her­berg­inu. Þar sem hann lá afar vank­aður við rúmið stakk Einar hönd­inni undir dýn­una og greip þar hníf. Hnífinn sagði hann síðar hafa fundið hníf­inn á víða­vangi og stungið undir dýn­una svo hann væri ekki á glám­bekk. Mundaði svo Einar hnífnum að Rafni sem óður af bræði og ofurölvi, stekkur að Einari.

Fór svo að hníf­ur­inn stakkst inn í lærið á Rafni svo að foss­blæddi.

„Þú ert þá bara svona karlinn”

Einar varð skelf­ingu lost­inn og kall­aði upp að Rafni að það blæddi úr honum. Rafn lét það sig litlu varða og rykkti Einar upp með orð­unum: „Þú ert þá bara svona karl­inn.” Þegar þarna er komið var Einari farið að sortna fyrir augum og var far­inn að finna fyrir önd­un­ar­erf­ið­leikum. Einar hafði sögu ofönd­unar að baki og hafði meðal ann­ars lagst inn á sjúkra­hús vegna þessa.

Einari tókst að rífa sig frá Rafni og kom­ast að hálf­opnum dyr­unum en Rafn var fljótur til og spark­aði þeim aftur. Hófust þá átökin á milli þeirra af alvöru.

Fyrir dómi sagð­ist Einar lítið muna eftir atburð­unum sem fylgdu í kjöl­farið. Hann mundi þó að sífelld átök hafi orðið um yfir­ráð hnífs­ins. Aðrir atburðir virð­ast hafa runnið saman í eitt hjá Einari sem mun „hafa verið grip­inn ofsa­hræðslu í viður­eign sinni við Rafn Svav­ars­son og verkn­að­ur­inn hafi verið fram­inn undir snöggum kvíða og ótta við sjálfs­meið­ingu, auk reiði,“ eins og segir í nið­ur­stöðu dóms og birt var í Morg­un­blað­inu.

Þegar Einar gerir sér grein fyrir að Rafn er lát­inn, var hans fyrsta hugsun að kom­ast út enda var hann í alvar­legu ofönd­un­ar­kasti. Gekk hann að hest­húsum við jaðar bæj­ar­ins og hitti þar fyrir tvo menn sem hann sagði frá verkn­að­inum og að hann hefði verið í sjálfs­vörn.

Nokkrum klukku­stundum síðar gaf hann sig fram við lög­reglu.

Þess má geta að nótt­ina áður en mál­flutn­ingur hófst fékk Einar alvar­legt ofönd­un­ar­kast í klefa sínum, missti með­vit­und og skall í gólfið svo stórsá á.

Dómur fellur

Aldrei kom í ljós af hverju Rafn sótt­ist svo í að kom­ast í pen­inga Einars. Var líkum að því leitt að það hefði mátt rekja til áfeng­is­fíknar hans en hann átti tvo óút­leysta kassa af áfengi í póst­hús­inu í Ólafsvík.

Einar var tal­inn sak­hæfur. Tók rétt­ur­inn til­lit til að hinn látni hefði átt upp­tökin að viður­eign­inni sem dró hann til dauða auk þess sem Einar hefði verið mjög ungur og geng­ist hrein­skiln­is­lega við verkn­að­inum. Á móti kom að afar hættu­legu vopni hefði verið beitt þegar Rafn lést.

Arið 1976 var Einar dæmdur í sex ára fang­elsi í hér­aði og bætti Hæsti­réttur sex mán­uðum við þann dóm ári síðar.

Bak­sýnispeg­ill­inn er end­ur­birtur. Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ