Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kýrin sem féll í Krossneslaug – Saga einnar frægustu sundlaugar landsins sem opnar loksins aftur

Kýrin sem féll í Krossneslaug – Saga einnar frægustu sundlaugar landsins sem opnar loksins aftur
Sund­laug­ar­verð­irnir Davíð Már og Sigrún í fjör­unni, neðan við laug­ina. Mynd: Karen Ósk Lárusdóttir.

Ein allra vin­sælasta sund­laug lands­ins, Kross­neslaug i Árnes­hreppi, verður opnuð á föstu­dag eftir gríð­ar­legar end­ur­bætur sem staðið hafa und­an­farið hálft ár. Laugin hefur verið lokuð vegna end­ur­bót­anna. Margir gestir og heima­menn hafa harmað að kom­ast ekki í sund. En nú hyllir undir verk­lok og hul­unni verður flett af glæsi­legum húsa­kynnum.

Laugin er ein­stök að því leyti að hún stendur í fjöru­borð­inu í sjón­línu við hið fagra fjall, Reykja­nes­hyrnu. Fólk kemur gjarnan akandi yfir 100 kíló­metra leið, lengst af á mal­ar­vegi, til að bregða sér í sund. Gestir Ferða­fé­lags Íslands á Val­geirs­stöðum, nema hund­ruðum árlega. Lang­flestir þeirra hafa notið þess að fara í sund­laug­ina við hafið.

Davíð Már Bjarna­son, tals­maður og sund­laug­ar­vörður Kross­neslaugar, er við stjórn­völ­inn í sund­laug­ini ásamt eig­in­konu sinni, Sigrúnu Sverr­is­dóttur. Hann segir það vera fagn­aða­efni að loks­ins sé komið að opnum. Miðinn ofan í kostar 1000 krónur fyrir full­orðna og frítt börn. Kross­neslaug er ann­áluð fyrir að þar er opið allan sól­ar­hring­inn og fólki er treyst til að borga þótt sund­laug­ar­verð­irnir sofi. Davíð er hæstá­nægður með fram­kvæmd­ina.

,,Það er mikil ánægja með þessa fram­kvæmd. Við þökkum fyrir stuðn­ing sem hefur borist í mörgum áttum. Verk­efnið brot­hættar byggðir hafa stutt þetta með veg­legum hætti. Allt er þetta gert af miklum metn­aði. Þessi fram­kvæmd leggur grunn­inn að áfram­hald­andi lífi Kross­neslaugar. Það var löngu kom­inn tími á við­hald. Kross­neslaug heldur nú áfram að vera perla hér­aðs­ins næstu ára­tug­ina,“ segir Davíð Már.

Sagan

Kross­neslaug hefur verið starf­rækt frá því árið 5. júlí árið 1954 eða í 68 ár. Það var Ung­menna­fé­lagið Leifur heppni sem byggði laug­ina og rekur hana enn í dag. Vatnið í laug­ina kemur úr svo­nefndum Kross­neslaugum.

Laugin komst í flesta fjöl­miðla lands­ins á fyrsta ári sínu vegna þess óhapps varð að kýr frá bænum Kross­nesi hafn­aði í laug­inni. Tvær kýr höfðu, að talið var, verið að stymp­ast á bakk­anum á sund­laug­inni með þeim afleið­ingum að önnur féll í sund­laug­ina og átti ekki aft­ur­kvæmt upp á bakk­ann af sjálfs­dáðum. Heima­maður frá Kross­nesi átti leið að laug­inni og sá hvernig komið var og kall­aði eftir aðstoð. Hófust þá þegar björg­un­ar­að­gerðir sem gengu illa í fyrstu enda ekki auð­velt að færa til svo stóran grip sem getur vegið allt að 500 kílóum. Mikið basl við að reyna að ná kúnni upp úr grunna end­anum skil­aði engu. Loksins hug­kvæmd­ist ein­hverjum að bregða þver­böndum á kúnna og velta henni þannig upp á bakk­ann. Voru þá liðnar nokkrar klukku­stundir frá því kýrin sást í laug­inni. Meðal þeirra sem konu að björg­un­inn var Ágúst Gíslason, fyrr­ver­andi bóndi í Steins­túni. Honum er þetta enn mjög minn­is­stætt. Eftir þetta atvik var laugin girt af og hefur svo verið síðan.

Þann 11.júlí 1954 birt­ist frétt í Morg­un­blað­inu um sund­nám­skeið fyrir börn í laug­inni sem átti að standa í hálfan mánuð. Hætta varð eftir nokkra daga vegna þess að flest börnin, 21 að tölu, veikt­ust. Þau fengu mik­inn hita, kvalir í eyrun, bein­verki og kvef. Börnin náðu sé svo að fullu og nám­skeið voru haldin í laug­inni.

Glæpamál upplýst

Kross­neslaug hefur einnig komið við sögu þegar glæpa­mál var upp­lýst í sveit­inni fyrir nokkrum árum. Það gerð­ist í maí­mán­uði árið 2015 að brot­ist var inn í Kaup­fé­lagið og ýmsu stolið. Farið var inn um glugga sem er af þrengri gerð­inni. Eins og ger­ist í slíkum málum voru allir undir grun framan af. Þó tókst að þrengja hóp­inn með því að fólk mældi ummál sitt og sýndi fram á að það kæm­ist ekki inn um glugg­ann. Stundum þurfti ekki að mæla því sak­leysið birt­ist í sýni­legum þétt­leika. Dagar liðu án þess að tæk­ist að upp­lýsa um glæp­inn. Þá var aftur brot­ist inn og farið um sama glugg­ann. Það mátti ljóst vera að rað­ræn­ingi var þarna á ferð. Alls­konar mat­vöru var stolið. En svo var einnig stolið ull­ar­sokkum sem Ágúst í Steins­túni hafði prjónað af stakri list. Sokk­arnir hans Gústa voru með þekktu hand­bragði og róm­aðir af gæð­unum. Ráðgátan um ránið var rætt þar sem fólk kom saman. En svo dró til tíð­inda. Það gerði slag­viðri með til­heyr­andi sudda og kulda. Einn morg­un­inn þegar Sigrún sund­laug­ar­vörður mætti til að þrífa bún­ings­klef­ana, brá henni í brún. Karla­klef­inn var und­ir­lagður af tjaldi, svefn­pokum og fatn­aði. Breytt hafði verið úr dót­inu til þerris. Sviss­neskt par, sem tjaldað hafði á flöt­inni austan við Bergistanga, var mætt með allt sitt haf­urtask. Sigrún benti fólk­inu vin­sam­lega á að þeim væri óheim­ilt að breyta bún­ings­klefum laug­ar­innar í þurrk­her­bergi. Þau tóku saman dótið í snar­hasti og hurfu á braut.

Ljósmynd Stefáns Karls­sonar hafn­aði á for­síðu Frétta­blaðs­ins.

Ráðgátan um ránin í Kaup­fé­lag­inu voru enn á hvers manns vörum. En í sund­laug­inni gekk lífið sinn vana­gang; en samt ekki. Sigrún tók eftir tor­kenni­legri og vax­andi lykt í karla­klef­anum. Hún leit­aði skýr­inga, dögum saman. Loksins hug­kvæmd­ist henni að leita á bak við ofn í klef­anum. Þar kom í ljós ull­ar­sokkur sem lyktaði af táfýlu. Við nán­ari skoðun kom í ljós að þetta var helm­ingur af sokkap­ari frá Gústa í Steins­túni. Það rann upp ljós fyrir Sigrúnu. Tjald­bú­arnir voru að baki rán­inu. Þegar var haft sam­band við lög­regl­una á Hólmavík sem brá skjótt við og kom sól­ar­hring síðar undir bláum ljósum. Þeir stöðv­uðu bif­reið sína nokkra metra frá tjald­inu og klædd­ust, að sögn, skot­heldum vestum og köll­uðu á ræn­ingj­ana. Í glugga veit­ing­ar­stað­ar­ins, Kaffi Norð­ur­fjarðar, var Stefán Karlsson, ljós­mynd­ari Frétta­blaðs­ins, sem náði myndum af hand­tök­unni á ræn­ingjap­ar­inu sem birt­ist á for­síðu Frétta­blaðs­ins. Ránið upp­lýst­ist þar með og parið frá Sviss var lands­frægt. Flötin sem þau tjöld­uðu á er síðan kölluð, manna í milli, Ræn­ingja­flöt. Þau voru dæmd með hraði úi tveggja mán­aða fang­elsi fyrir inn­brotið í Kaup­fé­lagið og víðar. Alls stálu þau sam­tals 25.000 krónum, mat­vöru, gasi, lamb­hús­hettu, hann­yrðum, sokkum, garni, dömu­bindum, sam­tals að verð­mæti um 100.000 krónur.

Ungir sem aldrnir stunda laug­ina. Hér er heils­ast.

Brúðhjónin

Hægt væri að tína til fleiri sögur af laug­inni sem fylgt hefur íbú­unum í næstum manns­aldur. Hér verður ekki sagt frá brúð­hjón­unum sem  eyddu brúð­kaups­nótt­inni í laug­inni en fengu inn á sig göngu­hóp. Við hverfum aftur til nútím­ans. Til stendur að halda pylsupartý þegar laugin opnar eftir end­ur­bæt­urnar. Svo heppi­lega vildi til að Myllan sendi fyrir mis­skiln­ing 1200 pylsu­brauð í Verzlunarfélagið, mat­vöru­búð hrepps­ins. Ef miðað er við að 40 manns eiga lög­heim­ili í hreppnum þá nemur þetta 30 brauðum á hvert manns­barn Brauðin eru nú á útsölu en munu jafn­framt nýt­ast við opnun laug­ar­innar. Þetta er einn mesti mis­skiln­ingur sem orðið hefur í pönt­unum síðan þung­un­ar­prófin komu í búð­ina í stað þorsk­hnakka.

Á föstu­dag­inn verður gleði um alla sveit þegar Kross­neslaug opnar að nýju eftir alltof langt hlé. Þá mun fólk streyma í laug­ina og sumir langt að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð