Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Pólitískir andstæðingar VG deila draumi Svandísar og geta ekki hugsað sér heppilegri andstæðing

Pólitískir andstæðingar VG deila draumi Svandísar og geta ekki hugsað sér heppilegri andstæðing

Ólafur Arnarson ritar áhuga­verðan pistil um póli­tík tengda Covid og stjórn­ar­skránni „nýju“ sem ekk­ert bólar á, og nefnir að VG – vegna heims­far­ald­urs­ins – hafi fengið mikla athygli sem hefur að hans mati gert það að verkum að flokk­ur­inn hefur komið „þokka­lega út í skoð­ana­könn­unum.

Ólafur Arnarson.

Gott gengi flokks­ins er því að „þakka að frá því veiran hóf inn­reið sína hér á landi hefur nær engin póli­tísk umræða farið fram.“

Ólafur beinir kast­ljós­inu að því að „for­sætis- og heil­brigð­is­ráð­herra hafa stöðugt stillt sér upp við hlið þrí­eyk­is­ins og baðað sig í ljóm­anum sem af því stafar,“ en að mati Ólafs sér nú lík­lega „fyrir end­ann á því. Nú hefst stjórn­mála­um­ræða að nýju. Mörg vand­ræða­mál VG munu því fá eðli­lega athygli.“

Að mati Ólafs kemur for­sæt­is­ráð­herrra, Katrín Jak­obs­dóttir, „óneit­an­lega löskuð út úr störfum þings­ins á þessu kjör­tíma­bili þótt hún njóti vin­sælda meðal þjóð­ar­innar. Hún kom breyt­ingum á stjórn­ar­skrá ekki í gegnum þingið. Var gerð aft­ur­reka með málið eftir að hafa leitt það í fjögur ár með engum árangri.“

Hann bendir á að „nið­ur­staðan varð­andi hálend­is­þjóð­garð­inn var mikið áfall fyrir VG, enda ber stjórn­ar­sátt­mál­inn frá 2017 með sér að flokk­ur­inn hafi fórnað mörgum prinsipp­málum sínum í stjórn­ar­mynd­un­inni til að ná því máli fram. Nú situr VG uppi með að hafa svikið mörg hjart­ans mál kjós­enda sinna fyrir hálend­is­þjóð­garð sem svo ekki verður.“

Ólafur telur að ráð­herrar Vinstri grænna muni ekki geta skýlt sér á bak við góða lend­ingu í veiru­málum þjóð­ar­innar; vegna þess að eng­inn ágrein­ingur hafi verið um þau mál í stjórn­mála­flokkum lands­ins, „ef und­an­skilin er ólund Mið­flokks­ins og sumra þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, einkum Sigríðar Andersen og Brynjars Níels­sonar.“

Og bætir við: „Þeim var refsað í próf­kjöri og á tíma leit út fyrir að Brynjar myndi hætta í stjórn­málum en nú hefur honum snú­ist hugur. Vænt­an­lega hefur flokks­for­ystan, sem vann gegn honum í próf­kjör­inu, áttað sig á því að án hans og Sigríðar á lista myndi Mið­flokk­ur­inn hirða drjúgan hluta fylgis Sjálf­stæð­is­flokks­ins – ekki bara í Reykja­vík heldur í öllum kjör­dæmum. Veiran getur ekki orðið kosn­inga­mál því að ekki er deilt um með­ferð á vörnum gegn henni.“

Nú, þegar „Covid-umsát­urs­á­standið“ virð­ist vera í rénum „mun fram­ganga Svan­dísar Svav­ars­dóttur í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu verða Vinstri grænum þung í skauti. Ágrein­ings­málum á hennar mála­sviði fjölgar stöðugt. Má þar nefna skimun­ar­klúðrið, deilur við Krabba­meins­fé­lag Íslands, nú síð­ast ágrein­ing við SÁÁ og átök við sér­fræði­lækna svo eitt­hvað sé nefnt.“

Að mati Ólafs kemur for­sæt­is­ráð­herra illa lask­aður „eftir þá nið­ur­læg­ingu sem hún mátti þola í þing­inu undir lokin, og Svandísi í ill­deilum við stóra hópa. Flokk­ur­inn gæti endað í eins stafs pró­sentu­tölu með sex eða sjö þing­menn í stað ell­efu í síð­ustu kosn­ingum. Ekki þyrfti þá að gera ráð fyrir flokknum í næstu rík­is­stjórn,“ segir Ólafur og varpar fram þess­ari spurn­ingu:

„Hvað gerir Katrín þá?“

Ólafur svarar sjálfum sér og segir að hermt sé „að hún hafi leitað eftir áhuga­verðum stöðum hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, gjarnan hjá UNESCO í París. Virð­ing­ar­staða í útlöndum næstu árin yrði kjörin fyrir hana til að búa sig undir að sækj­ast eftir emb­ætti for­seta Íslands þegar Guðni lætur af emb­ætti eftir sjö ár, en hann hefur afdrátt­ar­laust lýst því yfir að hann hygg­ist ekki sitja lengur en tólf ár.“

Að mati Ólafs gæti „Katrín hæg­lega fengið góðan stuðn­ing í for­seta­fram­boði ef hún hyrfi fljót­lega úr arga­þrasi stjórn­mál­anna og hlýtur í raun að telj­ast lík­leg sem næsti for­seti Íslands haldi hún rétt á spil­unum.“

Og aftur er spurt, og aftur er svarað:

„Hver gæti þá tekið við VG? Ekki þarf að leita langt yfir skammt. Svandís Svav­ars­dóttir er eina mann­eskjan í flokknum sem hefur stjórn­mála­reynslu til að takast á við slíkt leið­toga­hlut­verk. Ekki skortir hana sjálfs­traustið. For­mennska í VG yrði drauma­staða fyrir hana.

Póli­tískir and­stæð­ingar VG deila þeim draumi með Svandísi og geta vart hugsað sér heppi­legri and­stæð­ing en hana.“

Heimild: hring­braut.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð