Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Þurfum að gera greinarmun á heilbrigðri ættjarðarást og þjóðrembu, öfgahyggju og þröngsýni“

„Þurfum að gera greinarmun á heilbrigðri ættjarðarást og þjóðrembu, öfgahyggju og þröngsýni“
Guðni Th Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Pistill frá for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­essyni.

„Í dag eru rétt fimm ár frá því að ég tók við emb­ætti for­seta Íslands. Ég þakka öllum vel­vild og hlý­hug á þessu merka skeiði minnar ævi, stuðn­ing og ábend­ingar um það sem betur má gera,“ skrifar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, vegna þeirra tíma­móta sem runnin eru upp í for­seta­tíð hans.

„Hvern dag finn ég þá ábyrgð og þann heiður sem stöð­unni fylgir. Þá er gott að eiga góða að, fjöl­skyldu og vini, og ljúft að finna vel­vild landa sinna. Megi ykkur öllum ætíð farn­ast vel.

Nú þegar virð­ist sýnt að þessa sam­tíma okkar verður helst minnst í heims­sög­unni vegna far­sótt­ar­innar sem nú hefur geisað yfir í vel á annað ár, og sama gildir um okkar ágæta Ísland. Í far­aldr­inum hef ég leit­ast við að þakka þeim sem hafa staðið í ströngu í þágu okkar allra. Þær kveðjur ítreka ég hér og nú. Jafn­framt hef ég hvatt til þess að við látum öll til okkar taka, sinnum eigin sótt­vörnum, kynnum okkur rök að baki til­mælum stjórn­valda um hvers kyns sam­fé­lags­hömlur og föll­umst á þær í krafti eigin sann­fær­ingar og skyn­semi.

Alltaf má benda á mis­tök og aðrar leiðir sem hægt hefði verið að fara en á heild­ina litið megum við Íslend­ingar þakka fyrir hversu vel hefur tek­ist til að verj­ast vágest­inum hér á landi.

Nú glímum við enn eina bylgju smita en bless­un­ar­lega hefur fátt fólk veikst alvar­lega enn sem komið er. Því má ekki síst þakka víð­tækum bólu­setn­ingum, því öfl­uga tákni um mátt rann­sókna, vís­inda og þekk­ingar.

Enn þurfum við þó að vera á verði, enn er verk að vinna.

Að því þarf að koma að við hugum ræki­lega að fram­tíð heil­brigð­is­mála í heild sinni. Mest um vert er að huga enn betur en nú er gert að lýð­heilsu, geð­heilsu og for­virkum aðgerðum á þeim sviðum. Að sjálf­sögðu verður ætíð nauð­syn­legt að bregð­ast við sjúk­dómum og suma þeirra er ekki hægt að forð­ast en aukin áhersla á heilsu­sam­legt líf­erni í sam­fé­lag­inu mun alltaf skila árangri.

Hér þarf ekki boð, bönn og vand­læt­ingu heldur jákvæð skila­boð og hvatn­ingu. Líði fólki vel á sál og lík­ama er það mun lík­legra til að geta tek­ist á við alls kyns áskor­anir okkar daga og fram­tíðar. Þar fyrir utan er marg­sannað að for­virkar aðgerðir á sviði lýð­heilsu og geð­heilsu spara ríki og sveit­ar­fé­lögum stórfé. Framlög á þeim vett­vangi valda því að minni fjár­muni þarf í aðra útgjalda­liði heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Þau fimm ár sem ég hef setið á for­seta­stóli hef ég einnig leitt hug­ann að því hvort við ættum mörg hver að reyna að flýta okkar hægar í dag­legu lífi. Vera má að hér sé þó stundum auð­veld­ara um að tala en í að kom­ast. Aftur þarf hver að finna í eigin sál og sinni hvert stefna skuli og sumum leyf­ist ekki sá lúxus að eiga mikið val um frí­tíma og atvinnu, lífs­stíl og dægradvöl. En mörg getum við eflaust reynt að forð­ast streitu­valda, minnka stress, stefna ætíð að því að skapa okkur umhverfi sem okkur líður vel í, læra að greina kjarna frá hismi, hégóma frá því sem skiptir máli.

Við ættum jafn­framt að stefna að því að efla enn frekar það þjóð­skipu­lag þar sem hver getur sýnt hvað í sér býr, sjálfum eða sjálfri sér til heilla og sam­fé­lag­inu öllu. Í skóla­kerf­inu þurfum við að halda áfram að horfa á sér­hverja mann­eskju fyrir sig, skapa svig­rúm fyrir hvern og einn, hamra á klisj­unni góðu að eng­inn er góður í öllu en öll erum við góð í ein­hverju. Við eigum að efla umburð­ar­lyndi og fjöl­breytni, sjálfs­traust og þekk­ing­ar­leit. Þetta hef ég nefnt á fundum mínum með nem­endum um land allt um leið og ég hef svarað spurn­ingum þeirra um fátt og stórt, erfið mál og auð­veld.

Embætti for­seta teng­ist þjóð­ern­is­hyggju órofa böndum. Við þurfum að gera skýran grein­ar­mun á heil­brigðri ætt­jarð­ar­ást ann­ars vegar, virð­ingu fyrir landi og sögu og gleði yfir þeim góðu þáttum sem sam­eina okkur, og þjóð­rembu hins vegar, drambi og tor­tryggni í garð ann­arra, öfga­hyggju og þröng­sýni. Und­an­farin ár hef ég gjarnan sagt í gamni, en þó alvöru um leið, að það sé nán­ast skrifað í starfs­lýs­ingu þjóð­höfð­ingja að vera bjart­sýnn, hampa því sem vel er gert og stuðla að fag­urri fram­tíð­ar­sýn. Hér þarf þó að var­ast að byggja skýja­borgir sem geta svo hrunið fyrr en varir. Raunsæi kemur sér alltaf vel, hóg­værð sömu­leiðis. Þjóð með sjálfs­traust þarf ekki að hamra á því hvað hún sé frá­bær.

Fram undan eru kosn­ingar til Alþingis, þær þriðju frá því að ég tók við emb­ætti. Ágrein­ingur er aðal heil­brigðs og öfl­ugs sam­fé­lags. Nú eiga þing­manns­efni að takast á um strauma og stefnur flokka sinna og almenn­ingur má segja skoðun sína á kostum og löstum hvers og eins. Öll þessi skoð­ana­skipti ættu að vera hvöss ef þurfa þykir en þó mál­efna­leg. Á því getur verið mis­brestur. Fyrir kemur að á ég bágt með að skilja hvað fær fólk til að bjóða sig fram til áber­andi ábyrgð­ar­starfa. Netið og sam­fé­lags­miðlar eru frá­bær lýð­ræð­is­bylt­ing, opinn vett­vangur allra. En því miður er hætt við að þar sé vegið úr laun­sátri, sví­virð­ingum ausið í skjóli nafn­leyndar, aug­lýs­ingar birtar án ábyrgð­ar­manns. Við eigum ekki að láta þannig fram­ferði átölu­laust. Vissu­lega þarf fólk að þola gagn­rýni en öllu má ofgera.

Í stjórn­skipun okkar er það í verka­hring for­ystu­sveitar stjórn­mála­flokka á Alþingi að skipa land­inu starf­hæfa rík­is­stjórn. Þegar ræða þarf myndun nýrrar rík­is­stjórnar, yfir­leitt eftir kosn­ingar, veitir for­seti þeim stjórn­mála­leið­toga umboð til stjórn­ar­mynd­unar sem má telj­ast lík­leg­astur til að geta leitt það verk og svo öðrum ef nauð­syn krefur.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð er því ekki ein­hvers konar verð­laun eða við­ur­kenn­ing fyrir góðan árangur í alþing­is­kosn­ingum.

Í lok þessa pistils vík ég aðeins að lið­inni viku.

Nú er lokið dvöl okkar fjöl­skyld­unnar á Aust­fjörðum. Við nutum þar gest­risni og góð­vildar heima­fólks, eins og ann­ars staðar á ferðum okkur um landið í sumar, og þökkum kær­lega fyrir okkur. Við héldum austur á mánu­dag­inn var. Í bak­sýn­is­spegl­inum sáum við sól­ina brjót­ast í gegnum skýin yfir höf­uð­borg­ar­svæð­inu en ókum inn í súld og sudda. Ekki er það þó neitt að kvarta undan en óneit­an­lega dálítið grá­glettið í ljósi þess hvernig veður hefur verið á báðum stöðum í sumar.

Í nýlið­inni viku var Mary Simon sett í emb­ætti land­stjóra í Kanada og hef ég sent henni heilla­óskir. Elísabet drottn­ing er þjóð­höfð­ingi þar í landi en land­stjóri full­trúi hennar, situr í tákn­rænni tign­ar­stöðu. Simon er af ættum frum­byggja, fyrst úr þeim hópi til að gegna emb­ætti land­stjóra. Í sumar hafa skelfi­legar fregnir af fjölda­gröfum við skóla fyrir börn frum­byggja á síð­ustu öld skekið kanadískt sam­fé­lag. Núna um helg­ina fagna íbúar Norður-Ameríku af íslenskum upp­runa Íslend­inga­deg­inum. Ég sendi þeim kveðju í til­efni og má sjá hana á heima­síðu emb­ætt­is­ins: https://www.forseti.is/…/2021-08-02-kve%C3%B0ja-til…/

Í ávarp­inu komst ég meðal ann­ars svo að orði:

„Last year, Íslend­inga­dag­ur­inn was marked by the pandemic that has affected us all. This sum­mer, Canada Day was marked by discoveries of burial sites at res­idential schools for Indigenous children. At the Canadian Embassy in Reykja­vík, the flag has flown at half mast. All Canadians should learn about this horrific chapter of Canadian history and continue to work towards reconciliation with Indigenous peop­les. In that spi­rit, we can still celebrate Íslend­inga­dag­ur­inn, the day of the Icelanders in Canada and the United States. We must allow ourselves to value the positive aspects of pat­riot­ism, a love for one’s country and society, the decent aspects of its culture and history.“

Við búum í ynd­is­legu landi, förum vel með það í smáu sem stóru. Við eigum saman ríkar auð­lindir, lærum að nýta þær og njóta saman. Við búum í góðu sam­fé­lagi. Gerum það enn betra“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forseti Íslands

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ