Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hallgrímur: „Við sitjum uppi með heilbrigðiskerfi í rúst og auðmennirnir græða sem aldrei fyrr“

Hallgrímur: „Við sitjum uppi með heilbrigðiskerfi í rúst og auðmennirnir græða sem aldrei fyrr“

„Við viljum end­ur­komu hins eðli­lega lífs“ „hrópa margir þessa dag­ana. En verðum við ekki að vera þol­in­móð og skyn­söm svo það megi takast?“, ritar Hall­grímur Hróð­mars­son fram­halds­skóla­kenn­ari, en hann er þekktur fyrir að hafa skoð­anir á sam­fé­lagi okkar og er alls ófeim­inn að tjá sig um þær.

Hann bætir við:

„Á dög­unum hitt­ist hluti ráð­herr­anna úti á landi til að setja nýjar reglur um sótt­varnir. Það var ljóst, eftir að sér­fræð­ing­arnir okkar höfðu skilað til­lögum sínum um nýjar varnir, að grípa þarf enn einu sinni til áhrifa­ríkra og harðra aðgerða. Það sér hver heil­vita maður að nú þarf að bregð­ast skjótt við – af fullri ábyrgð og hörku. En ferða­þjón­ustan – maður – hún er lífæð þjóð­ar­innar – maður sker ekki á líf­æð­ina! Hvaða gagn er af því að mála Ísland fagur rautt á heimskort­inu?“

Hall­grímur segir að „ráð­herr­arnir eru ein­ungis mis­vitrir leik­menn – eða er kannski einn þeirra dýra­lækn­is­mennt­aður? – Ég man það bara ekki. Á að treysta mis­vitrum leik­mönnum til að ákvarða hvort hér verði einn eða tveir metrar á milli manna? Á að treysta mis­vitrum leik­mönnum til að ákvarða hve margir mega flykkj­ast saman í ákveðnu rými? Á að treysta mis­vitrum leik­mönnum til að ákvarða hvaða sótt­varnir skuli gilda á landa­mær­unum eða hvort við eigum yfir höfuð að hleypa ferða­mönnum inn í landið – ferða­mönnum sem nú flykkj­ast til eyj­unnar okkar af því að ástandið á að vera svo gott hér?“

Hall­grímur telur það „væg­ast sagt hneyksli að for­ráða­menn ferða­mála í land­inu tali nú um að rík­is­stjórnin hafi „gengið á bak orða sinna“ og vilji nú bara loka öllu á ný; á að treysta mis­vitrum leik­mönnum til að ákvarða opn­un­ar­tíma veit­inga- og öld­ur­húsa? Nú hefur það sýnt sig að margur land­inn hagar sér eins og gleði­fylltar kýr sem hleypt er út á vorin. Munurinn er bara sá að kýrnar sparka kannski óvilj­andi í hver aðra – það eru öfga­fyllri við­brögð sem margur land­inn sýnir í „frels­inu.““

Og segir að „því ver reyn­ast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman.

Margir stjórn­mála­menn hafa gagn­rýnt skort á sam­ráði – ráð­herr­arnir ákvarða hvað eigi að gera og engu má hnika til þó skyn­samar til­lögur komi fram. Nema þá þegar næstu aðgerðir eru kynntar. Þá koma þessir sömu ráð­herrar fram með þessar sömu til­lögur ofur­lítið breyttar í fartesk­inu. Þeir glotta í laumi og hugsa með sér „af skyn­semi okkar datt okkur þetta í hug á undan ykkur – og svo erum það við sem ráðum.“ Þetta er eins og sand­kassa­leikur barna í leik­skóla.“

Hann segir að þegar við skoðum „afleið­ingar sam­ráðs­ins í stjórn­inni á þessum fræga fundi á lands­byggð­inni þá verður maður að segja að „sam­ráðið“ var í skötu­líki; Katrín varð að beygja sig – hún réði ekki við „villi­kett­ina“ í Sjálf­stæð­is­flokknum. Hefði sam­ráð allra flokka á þingi orðið heilla­drý­gra ef hóp­ur­inn hefði verið stærri sem stóð að til­lög­unum? Af hverju eru fræði­menn­irnir ekki alfarið látnir ráða ferð­inni? Er það af því að þessir mis­vitru ráð­herrar vilja fá rauða rós í hnappa­gatið?“

„Og undir væng vals­ins þríf­ast sníkju­dýrin. Bjarni Ben hefur svo til einn ráðið ferð­inni í í aðgerð­ar­pökkum rík­is­stjórn­ar­innar til bjargar efna­hags­málum þjóð­ar­innar. En hann er bara leiksoppur þrýsti­hópa auð­manna sem allt eiga í land­inu okkar – eða ættum við að orða það þannig að hann sér um sína. Og hans fólk eru ekki fátækir launa­menn og ekki heldur mörg smá­fyr­ir­tækin í land­inu. Mörg fyr­ir­tæki stór og með­al­stór hafa rakað til sín millj­ónum á millj­ónir ofan með hjálp Bjarna í far­aldr­inum; mörg fyr­ir­tæki sem borgað hafa „eig­endum“ sínum tugi millj­óna í arð und­an­farin ár og eiga digra vara­sjóði skamm­ast sín ekki að sníkja pen­ing frá hinu opin­bera – frá almenn­ingi í land­inu. Sem betur fer eru mörg fyr­ir­tæki á Íslandi það vel stödd að þau sækja ekki um ölm­usu frá rík­inu. Og einnig eru mörg fyr­ir­tæki á Íslandi sem skila pen­ing­unum aftur þegar þau átta sig á að þau hafa ekki þörf fyrir þá.“

„Mér þykir vænt um fólk sem er og var í VG, og mér þykir vænt um stefnu VG.

Þó flokk­ur­inn hafi komið ein­hverju að sínum sjón­ar­miðum í fram­kvæmd á kjör­tíma­bil­inu þá stendur það upp úr að við sitjum uppi með heil­brigð­is­kerfi í rúst og auð­menn­irnir græða sem aldrei fyrr. Ef núver­andi rík­is­stjórn heldur velli þá er allt útlit fyrir það að almennir laun­þegar lands­ins verði látnir borga mik­inn meiri­hluta af þeim lánum sem við höfum þurft að taka.“

Heimild: kjarn­inn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð