Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Burt með bensínbílinn og þú sparar 10 þúsund á mánuði – Fáðu þér ís annan hvern dag

Burt með bensínbílinn og þú sparar 10 þúsund á mánuði – Fáðu þér ís annan hvern dag

Miðað við 213 krónur á lítr­ann, 8 krónur á kílóvattið, 15.000, krónur fyrir olíu­skipti á ári og 12 þús­und kíló­metra akstur á ári spar­ast 115.956,- árlega, eða 9.663,- mán­að­ar­lega, með því að skipta út bens­ínknúnum Toyota Yaris fyrir raf­knú­inn Nissan Leaf. Alls myndu spar­ast 133.596,- ef Audi A6 væri skipt út fyrir Tesla Model S.

Gríð­ar­leg aukn­ing hefur orðið í sölu raf­knú­inna bif­reiða und­an­far­inn ára­tug. Samkvæmt vef Sam­göngu­stofu hafa selst 1944 raf­magns­bílar hér­lendis og í fyrra höfðu selst alls 2925 öku­tæki ein­göngu knúin raf­magni á móti 11.333 díselknúnum öku­tækjum og 9747 bens­ínknúnum. 

Kostir raf­knú­inna bif­reiða umfram þeirra sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti, eins og hag­kvæmni í rekstri og lægra kolefn­is­spor, virð­ast höfða til land­ans. Þó kostn­aður við að knýja öku­tæki séu ekki eini kostn­að­ar­lið­ur­inn í rekstri þeirra er áhuga­vert að sjá sam­an­burð­inn. 

Ís annan hvern dag!

Á vef Sam­göngu­stofu kemur fram að með­alakstur fólks­bif­reiða sé 12.665 kíló­metrar á ári og ef bens­ín­bíll eyðir um 7 lítrum á hverja hund­rað ekna kíló­metra af öku­manni sem kaupir elds­neyti af þeim sem selur elds­neytið nú ódýr­ast á 212.9 krónur. Sá sem ekur raf­magns­bíl sem eyðir 18  kílóvatt­stundum á hverja hund­rað kíló­metra og greiðir 8 krónur fyrir hverja kílóvatt­stund sparar um 175 þús­und krónur árlega sem jafn­gildir næstum því stórum bragð­aref í næstu ísbúð ann­an­hvern dag allt árið.

Aðrir kostir raf­magns­bíla umfram þá sem not­ast við jarð­efna­elds­neyti eru m.a. að vél­bún­að­ur­inn sam­anstendur af færri hlutum sem geta bilað, þeir vinna tölu­vert betur úr orku­gjaf­anum, raf­magns­vélar bregð­ast hratt við og eru mun hljóð­lát­ari.

Ekki gallalausir

Raf­magns­bílar eru þó fjarri því að vera galla­lausir því að með­al­tali er drægnin styttri en hjá bens­ín­bílum, mun lengri tíma tekur að bæta á þá orku­gjafa, þeir krefj­ast þess að hleðslu­stöðvar séu upp­settar á heim­ilum fólks eða að fólk þurfi að sækja sér hleðslu í hleðslu­stöðvar, hleðslu­stöðvar eru enn til­tölu­lega fáar sem gera lang­ferða­lög í til­felli skamm­dræg­ari bíl­teg­unda óheppi­legar, raf­hlöð­urnar rýrna og munu að lokum þurfa end­ur­nýjun með tölu­verðum til­kostn­aði og þar sem raf­bíla­tæknin er til­tölu­lega ný af nál­inni liggja ekki fyrir eins áreið­an­leg gögn um þá og olíu­knúin öku­tæki.

Mengun af rafhlöðum

Raf­hlöð­urnar sjálfar eru unnar úr efnum eins og litíum, nikkel, grafíti og kóbalti sem öll þarf að vinna úr jörðu með til­heyr­andi mengun. Förgun þeirra er svo annað vanda­mál því séu þær ein­fald­lega urð­aðar geta þær lekið eit­ur­efnum og þunga­málmum út í nátt­úr­una. Gerðir þess­ara raf­hlaða eru margar og því erfitt að koma á stöðl­uðum ferlum um förgun þeirra en þó eru ein­hverjir bíla­fram­leið­endur og sam­tök farin að huga að bættri end­ur­vinnslu og enn sem komið er eru raf­hlöður raf­magns­bíla ekki hann­aðar með end­ur­vinnslu í huga.

Þróun raf­bíla­tækn­innar er ör og gefur til kynna að ann­markar þeirra muni vega minna er fram líða stundir. Aukning á sölu hreinna raf­magns­bíla sýnir að þeir eru komnir til að vera en hvort neysla ísrétta hér­lendis hafi áhrif á sölu raf­magns­bíla skal hér ósagt látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð