Fyrir þremur árum síðan birtist hæna óvænt fyrir utan hús Steinars Sigurðssonar, íbúa við Aðalstræti á Akureyri. Hvaðan hænan kom er enn á huldu, en á þessum árum hefur Steinar ítrekað reynt að komast að uppruna hænunnar, en ekki haft erindi sem erfiði. Því hefur hann og fjölskylda hans annast hænuna síðan og segir hana vera orðna hálfgert gæludýr. „Hún byrjaði bara að vappa hérna í kringum húsið, svo leiðir þetta hvert af öðru. Svo fer maður að gefa henni.“ sagði Steinar í samtali við RÚV.

Segir Steinar hænuna fá sér göngu um hverfið á sumrin, en haldi kyrru fyrir í einu og sama trénu á veturna. „Við náttúrlega bara sjáum um hana og förum á hverjum degi og gefum henni að borða. Hún er hérna í görðunum í kring og ég frétti af henni upp í kirkjugarði einu sinni þannig að hún er að spóka sig um hérna. En á veturna þá er hún alveg gjörsamlega kjur í einu tré, fer bara niður til að borða og upp aftur.“
Steinar segir að nú gangi þetta þó ekki lengur svona, hænan verði að komast í sveit og í samneyti við aðrar hænur. „Við erum búin að fá heimili fyrir hana, það heitir Grjótgarður en nú er bara vandamálið að ná henni. Oft er talað um að hænur séu heimskar en þetta er ekki heimskingi, það er alveg ljóst.“































Athugasemdir