Meirihluti kjósenda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru á því að lýðræðinu á Íslandi standi ekki ógn af kvótakerfinu, en alls segjast 77 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins og 67 prósent kjósenda Framsóknarflokksins vera á þeirra skoðun.

Þetta kemur fram í sem MMR gerði fyrir Öldu, sem er félag um sjálfbærni og lýðræði

Í síðasta mánuði og svöruðu 945 manns; úrtakið voru Íslendingar á aldrinum 18 ára og eldri sem voru valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR – sem telur 18 þúsund manns; valdir með tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá.
Kjósendur annarra flokka sem mælast með möguleika á að komast á þing í komandi kosningum eru á öðru máli; heilt yfir telja 64 prósent landsmanna – rétt tæplega tveir af hverjum þremur – að kvótakerfið ógni lýðræðinu.
Kjósendur Sósíalistaflokksins og Flokks fólksins telja kvótakerfið vera ógn við lýðræðið; 92 prósent kjósenda Samfylkingarinnar eru á sama máli; hjá Pírötum er andstaðan við kvótakerfið 81 prósent og svipað, eða 79 prósent, kjósenda Viðreisnar hafa eru á því sama.
Kjósendur Miðflokksins eru minnst hræddir við lýðræðisógnina sem stafar af kvótakerfinu af stjórnarandstöðu flokkunum – 62 prósent þeirra segja engu að síður að lýðræðinu stafi ógn af kerfinu.
71 prósent kjósenda VG telja að kvótakerfið sé ógn við lýðræðið.
Þá kemur fram í könnuninni að mun fleiri landsmenn, alls 56 prósent, eru fylgjandi því að á komandi kjörtímabili verði kvótakerfinu breytt með lýðræðislegum aðferðum; til dæmis með slembivöldu borgaraþingi eða þjóðaratkvæðagreiðslu: Andvígir því voru 25 prósent.
Andstaðan við þessa leið er mest á hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins; þar eru 57 prósent er andvíg slíkum aðferðum og aðeins 25 prósent eru fylgjandi.

Kjósendur Framsóknarflokksins eru sömuleiðis fleiri á móti slíkri aðferðarfræði við breytingar á kvótakerfinu – 43 prósent – en fylgjandi eru 31 prósent.
Meirihluti kjósenda annarra flokka sem mælast með möguleika á að ná inn manni á þing í komandi kosningum eru fylgjandi því að breyta kvótakerfinu með lýðræðislegum aðferðum. Þar á meðal eru kjósendur VG – 60 prósent þeirra eru fylgjandi slíkri aðferð en 24 prósent andvígir.































Athugasemdir