Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Friðbjörn Haukur, ekkill Þórunnar Egilsdóttur: „Hún var frábær kona í alla staði“

Friðbjörn Haukur, ekkill Þórunnar Egilsdóttur: „Hún var frábær kona í alla staði“
Frið­björn Haukur Guð­munds­son

Frið­björn Haukur Guð­munds­son, ekk­ill Þórunnar Egils­dóttur alþing­is­manns sem lést í júlí, tekur sæti hennar á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi en Þórunn skip­aði heið­urs­sæti list­ans.

„Stjórn kjör­dæma­sam­bands Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi hafði fjallað um málið og sam­þykkt þessa breyt­ingu að því gefnu að ég mundi vilja taka sætið. Formaður kjör­dæma­sam­bands­ins hringdi síðan í mig og spurði hvort ég vildi taka þetta sæti. Ég hugs­aði þetta svo sem ekki mikið. Ég veit að Þórunn hefði ekk­ert verið á móti því úr því svona fór. Þetta er ekk­ert bar­áttu­sæti,“ segir Frið­björn Haukur. Það að hann taki sæti Þórunnar segir hann aðspurður að það sé auð­vitað fyrst og fremst tals­verður heiður að hann skyldi vera beð­inn að taka sæti hennar.

„Ef ég get gert eitt­hvað gagn mun ég best gera það með því að halda hennar merki á lofti og kannski minna þing­menn á þau mál sem hún hafði mik­inn áhuga á yrðu að veru­leika. Það er  svo sem ekk­ert annað og meira sem vakir fyrir mér þannig séð nema eins og ég hef alla tíð gert; stutt við þá sem eru í for­ystu fyrir flokk­inn.“ Frið­björn Haukur er bóndi á Hauks­stöðum í Vopna­firði og seg­ist hann aldrei hafa kosið annað en Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Ef ég get gert eitt­hvað gagn mun ég best gera það með því að halda hennar merki á lofti .

Blaða­maður tók í jan­úar við­tal við Þórunni. Hún greind­ist með brjóstakrabba­mein í árs­byrjun 2019 og virt­ist hafa unnið bug á mein­inu og kom það því öllum á óvart þegar hún í des­em­ber í fyrra greind­ist með 4. stigs krabba­mein í lifur. Í við­tal­inu sagði Þórunn:

„Ég held að sálin mín sé að verða svo­lítið sjóuð í að takast á við áföll. Ég hef aldrei brotnað alveg niður. Ég hef mínar leiðir til þess. Það er alltaf þannig að maður getur aldrei sagt neinum hvernig á að takast á við svona. Það verður hver að finna sína leið og ég fer mína leið eins og aðrir fara sína leið. Og það að ég hafi ekki brotnað niður segir ekk­ert um það að aðrir geri það ekki eða það sé ekki best fyrir þá.

Mér hefur ein­hvern veg­inn tek­ist að skrúfa haus­inn rétt á mig; ég tala alltaf um að skrúfa haus­inn rétt. Maður verður alltaf að horfa fram og alltaf upp. Og maður má aldrei missa von­ina. Aldrei. Maður á alltaf að vera von­góður og bjart­sýnn. Svo er mottó sem ég til­eink­aði mér fyrir löngu síðan í líf­inu og það er að glata ekki gleð­inni. Af því að í hverri stöðu eru alltaf tæki­færi. Það er eitt­hvað gott við allt; það er sama í hverju fólk lendir. Það er alltaf ein­hver lær­dómur og alltaf eitt­hvað gott í öllu. Það er alltaf hægt að vera þakk­látur fyrir eitt­hvað og ef maður nær að vera í þakk­læt­inu og auð­mýkt­inni þá held ég að maður kom­ist svo­lítið langt.“

Frið­björn Haukur seg­ist takast á við sorg­ina í anda Þórunnar. „Ég reyni bara að lifa líf­inu  í hennar anda. Eða eins og hún sagði svo oft „glata ekki gleð­inni og vera  jákvæð“. Og þegar næg verk­efni eru til staðar gengur þetta upp.

Þórunn var fram­kvæmda­mann­eskja og hik­aði ekki við að fara í fram­kvæmdir ef henni fannst þörf á. Í vetur fannst henni tími til kom­inn að breyta íbúð­ar­hús­inu, skipta um eld­húsinn­rétt­ingu, hurðir og fleira. Þessu var því miður ekki öllu lokið þegar hún kvaddi okkur. En nú er verk­efnið á loka­stigi. Allt gert eins og hún hafði lagt upp með. En verst er að hún fékk ekki að njóta þess­ara breyt­inga sem heitið gat. Þessar breyt­ingar þó verða góð minn­ing um hvernig hún hugs­aði og vildi hafa hlut­ina í lagi.“

Ég reyni bara að lifa líf­inu í hennar anda

Hvert sækir hann styrk í sorg­inni?

„Auðvitað trúir maður á það góða. Amma mín kenndi mér bænir þegar ég var barn. Þær hafa óspart verið not­aðar síð­ustu mán­uði og veita manni hug­arró. Svo er mik­ill styrkur að eiga frá­bæra fjöl­skyldu sem hefur staðið eins og klettur með okkur í gegnum súrt og sætt. Og ekki má gleyma öllum vinum og vanda­mönnum sem hugsa  til manns.“ 

Þórunn var 56 ára þegar hún lést og var fjöl­skyldan bjart­sýn þegar hún virt­ist hafa sigr­ast á brjóstakrabba­mein­inu en svo kom seinni skell­ur­inn í des­em­ber í fyrra. Frið­björn Haukur hefur margt lært á þessum tíma.

„Maður lærir alltaf eitt­hvað á því að ganga í gegnum svona en við áttum ekki von á því að hún myndi grein­ast aftur. Það var ekk­ert sem benti til þess þegar hún fór í eft­ir­lit í októ­ber 2020. Þetta greind­ist ekki fyrr en á síð­ustu stundu þarna í des­em­ber, á fjórða stigi. Maður lærir að það er ekk­ert öruggt í þessum heimi. Barátta við krabba­meinið var í raun búin að standa frá byrjun árs 2019.“

Maður lærir að það er ekk­ert öruggt í þessum heimi.

Hann er beð­inn um að lýsa Þórunni heit­inni.

„Hún var frá­bær kona í alla staði. Það var svo margt sem heill­aði mig við hana þegar ég kynnt­ist henni. Alltaf  stutt í gleð­ina og húmor­inn. Við vorum saman í 36 ár en gift í 34 ár.“

Í við­tal­inu í jan­úar sagði Þórunn að augu Frið­björns Hauks hafi heillað sig þegar hún kynnt­ist honum.

Í því við­tali segir:

„Hún útskrif­að­ist frá Versl­un­ar­skóla Íslands árið 1984 og ákvað eftir útskrift að kenna í einn vetur á Vopna­firði. Þá kom kenn­ara­verk­fall og fór hún að vinna í slát­ur­hús­inu í bænum. „Ég leit upp einn dag­inn þegar ég var þar í vinnu og sá Hauk,“ segir hún og á þá við eig­in­mann sinn, Frið­björn Hauk Guð­munds­son. „Ég hugs­aði með mér að þarna væri mað­ur­inn minn. Svo hristi ég haus­inn og hugs­aði með mér að þetta væri vit­leysa; ég væri rétt tví­tug og þetta væri kall uppi í sveit.“ Haukur er 18 árum eldri en hún. „En það varð þannig. Hann varð mað­ur­inn minn. Ég sá það bara strax. Augun í honum heill­uðu mig og hann er svo fal­legur að innan og utan. Hann er góð mann­eskja. Ég fór svo um vet­ur­inn að spyrja hvar hægt væri að kom­ast að sem kaupa­kona sum­arið eftir og þá var mér bent á hann. Ég fór til hans í Hauks­staði og þá fórum við að vera saman.“ Þetta var sum­arið 1985. Þau trú­lof­uðu sig ári síðar og giftu sig árið 1987.“

Hjónin bjuggu allan sinn búskap á Hauks­stöðum en Frið­björn Haukur tók við búinu í kringum 1970 en þar ólst hann upp. Hann segir að það hafi aldrei neitt annað komið til greina en að verða bóndi. Bróðir hans, Baldur, var með sauð­fjárbú á sömu jörð en hann lést árið 2017.

„Þessi sauð­fjár­bú­skapur hefur gengið alla­veg­ana í gegnum tíð­ina. Hann hefur verið erf­iður síð­ustu ár eftir að afurða­verð lækk­aði veru­lega og lítið fékkst fyrir afurð­irnar. Bændur hafa verið launa­lausir í mörg ár. En af því að maður er orð­inn það full­orð­inn og á engar skuldir þá gengur þetta en ég vildi ekki vera ungur bóndi í dag.“

Ætlar hann að bregða búi?

„Já, þetta er nátt­úr­lega eng­inn búskapur þannig séð. Ég geri þetta meira að gamni mínu. Maður átti að vera hættur þessu fyrir löngu síðan. Það hefur ekk­ert verið upp úr þessu að hafa.“

Hann segir að fram­tíðin sé óráðin.

„Það kemur ekk­ert í ljós fyrr en í haust hvað maður gerir. Maður heldur áfram að lifa hérna. Það eru nokkrar kindur ennþá til en hvort þær verði látnar lifa eða ekki kemur í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð