Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragnar læknaprófessor varar við faraldri: „Áhættan er meiri hjá konum“

Ragnar læknaprófessor varar við faraldri: „Áhættan er meiri hjá konum“

Ragnar Dani­el­sen er klínískur pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands, hjarta­sér­fæð­ingur og for­stöðu­læknir hjarta­ómun­ar­ein­ingar hjarta­deild Land­spít­ala.

Hann segir að „teg­und 2 syk­ur­sýki (T2SS) er marg­slung­inn efna­skipta­sjúk­dómur sem getur leitt til alvar­legra fylgi­kvilla í mörgum líf­færa­kerfum. Langvinn syk­ur­sýki skerðir veru­lega lífslíkur og hefur víð­tæk lýð­heilsu­á­hrif um heim allan. Í Evrópu eru nú um sex­tíu milljón full­orð­inna með syk­ur­sýki og af þeim er um helm­ing­ur­inn með sjúk­dóm­inn ógreindan,“ segir hann og bætir við:

„T2SS er um 90 pósent af allri syk­ur­sýki í heim­inum og þættir sem stuðla að þróun syk­ur­sýki eru að veru­legu leyti lýð­heilsu­legir: Offita, óheil­brigt matar­æði, lítil lík­ams­hreyf­ing og vanda­mál tengd efna­hag ýmissa þjóð­fé­lags­hópa. Algengi syk­ur­sýki fer vax­andi í Evrópu, og er um 10 til 20 pró­sent hjá ýmsum þjóðum í Evr­ópu­sam­band­inu, og er einnig hækk­andi í aust­ur­löndum.“

Ragnar nefnir að algengi syk­ur­sýki hafi auk­ist veru­lega á Íslandi á und­an­förnum ára­tugum og fjölg­aði ein­stak­lingum með T2SS 2,5-falt áár­unum 2005 til 2018:

„Nýgengi jókst einnig á sama tíma hjá báðum kynjum, einkum konum. Samkvæmt fram­tíð­ar­spá mun ein­stak­lingum með T2SS fjölga veru­lega hér á landi á næstu ára­tugum og það er því ljóst að veru­legt lýð­heilsu­legt vanda­mál blasir við íslensku heil­brigð­is­kerfi.“

Hann segir að „æski­leg­ast væri að stemma stigu við þess­ari þróun með for­vörnum, skipta þar mestu lýð­heilsu­leg verk­efni eins og grein­ing áhættu­hópa og að stemma stigu við vax­andi ofþyngd þjóð­ar­innar. Slíkt hefur þó borið tak­mark­aðan árangur hér á landi enda ekki fram­kvæmt á full­nægj­andi hátt. Ein algeng­asta dán­ar­or­sök ein­stak­linga með T2SS er hjarta­sjúk­dómur. Hann er fjöl­þættur og leiðir meðal ann­ars til hjarta­bil­unar, einkum í sam­spili við háþrýst­ing. Almennt er áhætta fyrir hjarta- og æða­sjúk­dómum hjá T2SS tvö­föld í sam­an­burði við ein­stak­linga án syk­ur­sýki, hún er meiri hjá konum og þær fá þessa sjúk­dóma yngri en karlar.

Þá nefnir hann að „kransæða­sjúk­dómur þró­ast hraðar hjá syk­ur­sjúkum, óháð öðrum áhættu­þáttum, en áhættan eykst veru­lega ef við­kom­andi ein­stak­lingur glímir auk þess við of háan blóð­þrýst­ing, blóð­fitu­brenglun, brenglun á storku­þáttum, reyk­ingar og offitu. Lang­tíma­horfur syk­ur­sjúkra eftir hjarta­á­föll eru verri en hjá ein­stak­lingum án syk­ur­sýki og þeir fá frekar hjarta­bilun.“

Einnig segir Ragnar að nú sé gerð sú krafa til nýrra syk­ur­sýkis­lyfja að þau hafi ekki óhag­stæð áhrif á þróun hjarta- og æða­sjúk­dóma.

„Í kjöl­far þess hafa komið fram ný lyf sem hafa vernd­andi áhrif gegn hjarta- og æða­sjúk­dómum hjá ein­stak­lingum með T2SS. Lyf í flokki SGLT2-hemla hafa sýnt lægri heild­ar­dán­ar­tíðni hjá syk­ur­sjúkum, lækk­aða dán­ar­tíðni vegna hjarta- og æða­sjúk­dóma, lægri tíðni kransæða­stíflu, en ekki afger­andi áhrif á heila­á­föll. Þessi lyf hafa þvag­ræsi­á­hrif auk ann­arra flókn­ari áhrifa á hjarta- og æða­kerfið sem í heild minnka þróun á hjarta­bilun hjá fólki með T2SS. SGLT2-hemlar hafa þó ekki ein­göngu letj­andi áhrif á þróun hjarta­bil­unar hjá syk­ur­sjúkum heldur er nú einnig verið að reyna þessi lyf sem með­ferð við hjarta­bilun hjá ein­stak­lingum án syk­ur­sýki.“

Hann bendir á að „í lyfja­flokknum GLP-1-hlið­stæður hafa sum lyf – semaglú­tíð, líraglú­tíð – einnig sýnt sig að hafa hag­stæð áhrif til að letja þróun hjarta- og æða­sjúk­dóma hjá fólki með T2SS. Svo­nefndir DPP-4-hemlar hafa hins vegar ekki sýnt hag­stæð hjarta- og æða­á­hrif, að sítaglip­tíni und­an­skildu hafa þau flest aukið líkur á hjarta­bilun. Í nýlegum evr­ópskum klínískum leið­bein­ingum er nú mælt með því að hjá ein­stak­lingi með T2SS og án klínískra fylgi­kvilla sé met­formín fyrsta lyf en síðan sé bætt inn nýrri syk­ur­sýkis­lyfjum með hag­stæð áhrif á hjarta- og æða­kerfi, ýmist SGLT2-hemli eða GLP-1-hlið­stæðu. Hjá syk­ur­sjúkum sem þegar eru komnir með merki um hjarta- og æða­sjúk­dóma ættu lyf í þessum flokkum að vera í fyrsta sæti og síðan bæta við met­formíni. Hvaða lyfjum er síðan bætt við fer eftir því hversu vel gengur að ná syk­ur­sýk­inni undir stjórn.“

Að mati Ragnars er mjög mik­il­vægt að læknar hafi greiðan aðgang að þessum nýju lyfjum:

„Þannig sýndi nýleg sam­nor­ræn rann­sókn sem bar saman SGLT2- og DPP-4-hemla, um 34 pró­sent lækkun á hættu á hjarta­bilun hjá þeim sem fengu SGLT2-hemla og þessi lyf lækk­uðu heild­ar­dán­ar­tíðni um 20 pró­sent. Van­með­höndl­aður ein­stak­lingur með T2SS og fylgi­kvilla er heil­brigð­is­kerf­inu þung­bær og dýr fyrir þjóð­ar­bú­skap­inn. Það er því mik­il­vægt að auk virkra for­varna sé með­ferð T2SS á Íslandi í sam­ræmi við nútíma­legar klínískar rann­sóknir og leið­bein­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð