Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðrún um offitu: „Lyfin eru of dýr“

Guðrún um offitu: „Lyfin eru of dýr“
Guðrún Þuríður Hösk­ulds­dóttir. Mynd / Úr einka­safni.

Skurð­að­gerðir gegn offitu minnka líkur þeirra sem eru með syk­ur­sýki 2 á hjarta­bilun og gátta­tifi og fólk deyr síður. Þetta er meðal nið­ur­staðna í dokt­ors­rit­gerð Guðrúnar Þuríðar Hösk­ulds­dóttur við Gauta­borg­ar­há­skóla, sem er sér­fræði­læknir á offitu- og syk­ur­sýkis­mið­stöð Sahlgrenska.

Hún segir afar mik­il­vægt að auka árangur lyfja­með­ferða við offitu og nefnir að 40 pró­sent minni líkur voru á inn­lögn á sjúkra­hús vegna gátta­tifs og yfir 70 pró­sent minni vegna hjarta­bil­unar í hópi þeirra sem höfðu farið í skurð­að­gerð vegna offitu, og höfðu ekki þekkta hjarta­bilun eða gátta­tif fyrir, en meðal þeirra sem ekki höfðu farið í skurð­að­gerð.

„Þessar inn­lagnir voru þá túlk­aðar sem nýgreind hjarta­bilun eða gáttaflökt á þessu níu ára tíma­bili sem ein­stak­ling­unum var fylgt eftir,“ nefnir hún og einnig að mun lægri dán­ar­tíðni hafi verið hjá þeim sem hafi haft þekkta hjarta­bilun fyrir aðgerð miðað við þá sem höfðu ekki farið í aðgerð.

„Þessi hópur ein­stak­linga með þekkta hjarta­bilun var þó aðeins lítið úrtak úr heild­ar­hópnum þar sem almennt er ekki mælt með offitu­að­gerðum á þeim sem þannig standa. Því þarf að rann­saka þetta frekar. Hér er eng­inn íslenskur lækna­nemi í grunn­námi en margir læknar í sér­námi. Það er svo gott sem Íslend­ingur í hverri und­ir­grein á lyf­lækn­inga­svið­inu og við getum alltaf hringt í hvert annað.“

Guðrún nefnir að rann­sókn­ar­hópur hennar hafi skoðað áhrif maga­hjá­veitu­að­gerða á ein­stak­linga með týpu 1 syk­ur­sýki, og að „það hefur ekki verið skoðað að ráði áður þar sem með­ferðin við offitu ein­stak­linga með syk­ur­sýki 1 er mjög flókin. Við sjáum að aðgerðir hafa mjög góð áhrif þegar kemur að hjarta- og æða­sjúk­dómum, sér­stak­lega heila­blóð­föllum og hjarta­bilun. Áhrifin virð­ast sam­bæri­leg á þennan hóp og þann sem er með syk­ur­sýki 2 en hætta er þó á að ein­stak­lingar með syk­ur­sýki 1 þrói með sér alvar­lega auka­verkun,“ því ef magn insúl­íns í kerf­inu „er ekki rétt byrjar það að brjóta niður fitu og mynda sýrð efni í blóð­inu, sem er lífs­hættu­legt og því þarf að íhuga stöð­una vel og hafa syk­ur­sýkisteymi með í ráðum til að koma í veg fyrir það.“

Guðrún bendir á „aukna hættu á ofneyslu áfengis og fíkni­efna eftir skurð­að­gerðir. Fólk finnur meiri áhrif en áður. Þá virð­ist hætta á geð­rænum fylgi­kvillum einnig aukast. Andleg áhrif eftir offitu­að­gerð eru ekki alltaf til hins betra heldur getur van­líðan auk­ist mikið.“

Og bætir við:

„En við sáum ekki töl­fræði­legan mun þegar kom að geð­heilsu og sjálfs­vígstil­raunum í þessum hópi. En það er þekkt sem alvar­legur fylgi­kvilli af offitu­að­gerðum.“

Færir einnig í tal að það þarf alltaf að vera val hvers og eins að fara í aðgerð eða ekki, enda sé ljóst sé að árangur lyfja­með­ferðar og aðgerða hafi verið ólíkur; flestir þeirra 1000 sem fóru í maga­hjá­veitu- eða maga­ermis­að­gerð og þau fylgdu í tvö ár hafi lést um 50 pró­sent af þyngd umfram lík­ams­þyngd­ar­stuð­ul­inn – BMI-gildin – eða kom­ist undir BMI 30.

„Með­al­þyngd­ar­tapið var 9 pró­sent hjá þeim sem voru í lyfja­með­ferð­ar­hópnum,“ segir Guðrún og að vill breyta því og sjá betri árangur lyfja­með­ferða, en margt þurfi að skoða því eft­ir­lit með lyfja­með­ferð­unum sé ófull­nægj­andi og lyfin eru ekki nið­ur­greidd, þannig að fólk heldur oft ekki lyfja­með­ferð­ina út:

„Ég get nán­ast talið á fingrum ann­arrar handar þá sem enn voru á lyfjum að tveimur árum liðnum,“ segir Guðrún og heldur áfram:

„Þá höfðu ein­stak­ling­arnir farið í gegnum tólf mán­aða ferlið hjá okkur og þurftu eftir það að treysta á sjálfa sig til að halda þyngd­inni niðri. Við treystum á að heilsu­gæsl­urnar fylgi fólki eftir en þær hafa ekki bol­magn til þess. En við getum ekki sinnt því og það er vanda­mál.“

Guðrún bendir á að fólk sem taki lyfin berj­ist, ólíkt þeim sem fari í skurð­að­gerð, við að lík­ami þeirra kalli aftur á að safna upp orkunni sem hann átti:

„Þegar fólk létt­ist mikið eykur lík­am­inn fram­leiðslu á horm­ónum sem auka áhug­ann á mat. Hung­ur­til­finn­ingin magn­ast upp þegar matur sé aftur kynntur til leiks eftir allt að þriggja mán­aða duft­með­ferð og mik­il­vægt að taka lyf til að minnka hungrið og vinna á móti þessum horm­óna­á­hrifum sem verði ekki við skurð­að­gerðir. En vand­inn við lyfja­með­ferð­ina er að hún er dýr og aðeins nið­ur­greidd fyrir þá sem hafa þróað með sér syk­ur­sýki 2. Lyfin þurfi jafn­vel að nota til fram­búðar en sjaldn­ast fá ein­stak­ling­arnir þau til lengri tíma. Eft­ir­leik­ur­inn er þeim því erf­iður, en þrátt fyrir þennan mis­mun­andi árangur er mik­il­vægt að bjóða fleiri kosti en skurð­að­gerðir; þótt þær séu árang­urs­ríkar eru þær ekki hættu­lausar og henta ekki öllum. Ný lyf hafa verið þróuð sem gætu komið á markað fljót­lega,“ og með þeim „getum við betur boðið upp á eins árang­urs­ríka með­ferð og fæst með skurð­að­gerðum.“

Nú í fram­hald­inu hefur Guðrún mestan áhuga á að gera með­ferð­ar­formin utan skurð­að­gerð­anna betri „þannig að þau valdi langvar­andi þyngd­ar­tapi,“ og leggur áherslu á að þau á offitu­mót­tök­unni sjái ekki mun á auka­verk­unum eða fylgi­kvillum eftir skurð­að­gerð­irnar eða með­ferð­ina.

„Við teljum að það sé meðal ann­ars vegna þess að allir ein­stak­lingar sem fá til­vísun til okkar fá fræðslu um báða með­ferð­ar­mögu­leika. Beiðnir þeirra sem óska eftir skurð­með­ferð fara svo fyrir fund þar sem lyf­læknir og skurð­læknir skoða hverja beiðni fyrir sig og leggja mat á það hvort skurð­með­ferð sé heppi­legur kostur. Mér finnst erfið til­hugsun að við séum alltaf að með­höndla sjúk­dóma en vinnum ekki að því að fyr­ir­byggja þá,“ en sér­greinin heilli enda fram­farir þar miklar; sér­stak­lega þegar litið er til syk­ur­sýki 1; í insúl­ín­pumpum og blóð­syk­ur­s­mælum. Einnig í syk­ur­sýki 2.

„Þar er lyfja­þró­unin hröð og lang­flestir þeirra sem njóta þjón­ustu offitu­mót­tök­unnar hafa mætt miklum for­dómum í heil­brigð­is­kerf­inu. Viðmótið hefur verið leið­in­legt og leitt að heyra það. Fólk hefur nefnt að því finn­ist því í fyrsta sinn vera mætt af virð­ingu á offitu­mót­tök­unni,“ segir Guðrún og bætir við:

„Það er dásam­legt að útskrifa ein­stak­linga með breytta og bætta líðan og geta sýnt fólki breyt­ingar á blóð­þrýst­ingi, blóð­fitu og -sykri og þá sé jafn­vel búið að draga úr annarri lyfja­notkun. Margir hugsa um offitu­með­ferðir út frá útliti. Margir ein­blína á að vera í eðli­legri þyngd en í raun­inni er allt þyngd­ar­tap af hinu góða. Útskýra þarf mik­il­vægi þess að setja sér mark­mið sem hægt er að ná; ann­ars er svo auð­velt að gef­ast upp. Þyngd­ar­tap upp á 5 til 10 pró­sent hefur mikið að segja.“

Heimild: Lækna­blaðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð