Illa hefur verið farið með eldri borgara landsins á 21. öldinni ef marka má orð Ómars Ragnarssonar. Skýtur hann föstum skotum á ríkisstjórnir allra flokka.
Ómar, fyrrverandi fréttamaður RÚV, er harðorður í skrifum sínum inni á bloggsíðu sinni Íslands þúsund ár í dag. Þar gagnrýnir Ómar ríkisstjórnir allra flokka 21. aldarinnar sem hann segir hafa unnið „sleitilítið við að ná af elsta fólkinu sem mestu, helst öllu, sem það vann sér inn utan lífeyriskerfisins.“
Ómar nefnir eina aðferðina „Ein aðferðin var að halda krónutölu frítekjumarksins óbreyttu árum saman á meðan verðbólgan át það hægt og bítandi upp.“ Segir hann hugkvæmnina að baki svokölluðum tekjutengingum hafi verið svo mikil að slíkt finnist ekki í öðrum löndum. Þá segir Ómar að „gamlingjunum“ sem neyddir voru á sínum tíma er þeir voru á vinnumarkaðinum, til að leggja frá pening af launum sínum, í lífeyrissjóði, „var refsað með því að ná þessari eign þeirra af þeim í sem allra stærstum mæli.“
Í beittum lokaorðum Ómars talar hann um nýjasta „afrekið“ sem komið hefur frá stjórnvöldum sem hann segir að felist „í einhverju lélegasta ástandi varðandi heimilisfesti og kjör elsta fólksins síðustu æviárin, sem vitað er um á Vesturlöndum, og hefur í för með sér aldeilis einstæða sóun fjármuna í kringum hjúkrunarheimilin.“































Athugasemdir