Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Erna Huld er hrædd og fær martraðir: „Stundum dreymir mig að Talibanar séu að skjóta á mig“

Erna Huld er hrædd og fær martraðir: „Stundum dreymir mig að Talibanar séu að skjóta á mig“

„Ég er svo hrædd; sér­stak­lega vegna fjöl­skyldu­með­lima sem eru í Afganistan. Ég fæ stundum martraðir og það er oft sem ég get ekki sofið og stundum dreymir mig að Tali­banar séu að skjóta á mig. Og ég er oft með verk í mag­anum,“ segir Erna Huld Ibra­hims­dóttir þegar hún er spurð hvernig henni líði þessa dag­ana.

Ég hef verið í sam­bandi við fjöl­skyldu mína í Afgan­instan og það eru allir svo hræddir.

Hún er frá Afganistan, hefur búið á Íslandi frá árinu 2010 og er með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. „For­eldrar mínir, systur mínar og einn bróðir og fjöl­skyldan hans eru í Afganistan en þrjú systk­ini mín búa á Íslandi. Ég hef verið í sam­bandi við fjöl­skyldu mína í Afgan­instan og það eru allir svo hræddir. Systir mín ferð­að­ist á mót­or­hjóli í þrjá daga til að kom­ast til Kabúl í þeirri von að geta flogið þaðan til Íslands en hún með vega­bréfs­á­ritun til Íslands og stefnir á háskóla­nám hér. Ein frænka mín reyndi að fara á flug­völl­inn í Kabúl. Hún datt í gólfið og það var labbað yfir hana. Bróðir minn sagð­ist ekki getað tekið þá áhættu for­eldra okkar og barna sinna vegna að reyna að fara á flug­völl­inn og ég geri ekki neitt nema að bíða hér og fylgj­ast með,“ segir Erna Huld.Í dag birti visir.is svo þá frétt að Afgönum sé meinað að fara á flug­völl­inn í Kabúl og að tals­maður Talibana hafi sagt að öryggi þeirra sem hafa safn­ast saman fyrir utan flug­völl­inn væri tryggt. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa fengið til­kynn­ingar um alvar­leg mann­rétt­inda­brot í land­inu eftir valda­töku Talibana og breska rík­is­út­varpið hefur eftir mann­rétt­inda­stjóra SÞ að fregnir af fjölda­af­tökum Talibana séu áreið­an­legar.

Fjöl­skylda Ernu Huldar til­heyrir sjía múslímum sem eru minni­hluta­hópur í land­inu. Þá til­heyra þau þjóð­ar­broti Hazara/Sayed og árið 2001 þegar Tali­banar tóku yfir Bamiyan- og Yakawlang-héruð í eitt skiptið drápu þeir yfir 200 úr þeim hópi. Þar af voru fjórir móð­ur­bræður Ernu Huldar.

Faðir Ernu Huldar  hefur unnið hjá kvenna­at­hvarfi sem fjár­magnað var af UNWomen og GIZ. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Talibana um að konum verði ekki var­an­lega meinað að vinna þá vilja þeir að konur haldi sig heima. Hér fyrir neðan er hluti þeirra reglna sem Tali­banar hafa sett varð­andi konur en þeir fara eftir shar­ía­lögum.

* Algert bann við því að konur séu úti­vinn­andi. Einungis nokkrar sem starfa sem læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar mega vinna á nokkrum sjúkra­húsum í Kabúl

* Algert bann við því að konur geti gert nokkurn skap­aðan hlut fjarri heim­ilum sínum ef þær eru ekki í fylgd „mahram“ ( svo sem föður, bróður eða eig­in­manns)

* Algert bann við því að karl­kyns læknar sinni konum

* Konur mega ekki stunda nám í skólum, háskólum (Talí­banar hafa breytt stúlkna­skólum í til­beiðslu­staði)

* Konur eiga að klæð­ast búrkum sem hylja þær frá toppi til táar

* Konur mega ekki nota snyrti­vörur (mörg dæmi eru um að fingur hafi verið hoggnir af konum sem hafa verið með lakk­aðar neglur)

* Konur mega ekki tala við eða heilsa körlum sem ekki eru „mahram“

* Konur mega ekki hlæja hátt eða syngja

* Konur mega ekki ganga í skóm með háum hælum sem gæti heyrst í (karl­menn eiga ekki að heyra í konum þegar þær ganga)

* Konur mega ekki fara í leigu­bíl án „mahram“

* Konur mega ekki stunda íþróttir eða fara á íþrótta­leik­vanga

* Konur mega ekki hjóla

* Það er bannað að birta myndir af konum. Þær eru ein­fald­lega ekki til!

Konur mega ekki hlæja hátt eða syngja

Von á allt að 120 Afgönum

Tali­bönum var komið frá völdum í Afganistan eftir inn­rás alþjóða­hers í landið árið 2001 eftir fimm ára valda­tíð og segir Erna Huld að núna eftir inn­rás þeirra fyrr í þessum mán­uði þá séu Afganir í raun á byrj­un­ar­reit. Hún segir að sem NATO-þjóð þurfi Íslend­ingar að axla ábyrgð. „Það hafa orðið miklar breyt­ingar í Afganistan síð­ast­liðin 20 ár svo sem varð­andi rétt­indi kvenna og menntun og það þarf að vernda þetta. Við vitum ekki hvernig Tali­banar ætla að stjórna og þess vegna þurfa NATO-þjóðir sér­stak­lega að taka ábyrgð á konum og minni­hluta­hópum.“

Við vitum ekki hvernig Tali­banar ætla að stjórna

Tilkynnt hefur verið að Ísland taki á móti allt að 120 flótta­mönnum frá Afganistan og er jafn­vel búist við að þeir verði fleiri. Fólk sem hefur starfað með NATO verður sér­stak­lega í for­gangi, fólk sem hefur verið í jafn­fétt­is­skól­anum hér á landi og loks ætt­ingjar Afgana sem búa hér á landi. Erna Huld seg­ist von­ast til þess að ætt­ingjar sínir verði í þessum hópi og nefnir að þeir séu í sér­stakri hættu í Afganistan þar sem þeir séu þekktir fyrir frjáls­lynd við­horf.

Erna Huld fædd­ist í Íran og flutti með fjöl­skyldu sinni til Afganistan þegar hún var 12 ára. Hún var 13 ára þegar Tali­banar tóku völdin í eitt skiptið.

„Þegar Tali­banar frömdu fjöldamorð á hazörum í Yakawlang í jan­úar 2001 bjuggum við í Pakistan. „Þetta var eitt erf­ið­asta tíma­bil lífs míns. Við vissum af fjöldamorð­unum en höfðum enga leið til að vita hverjir hefðu verið myrtir. Við lágum á bæn og von­uðum að ætt­ingjar okkar væru óhultir og biðum eftir lista yfir fórn­ar­lömbin frá UNAMA. Þá kom í ljós að móðir mín hafði orðið fyrir miklum missi en þrír bræður hennar, börn þeirra og frændur hennar, voru á meðal þeirra sem létu lífið. Þetta var svo mikil sorg, sér­stak­lega að horfa upp á mömmu í þessum aðstæðum.“

Ertu Talibani?

Faðir Ernu Huldar ákvað að hún og bróðir hennar skyldu flytj­ast til Pakistan þegar hún var 16 ára til að þau yrðu örugg­ari; önnur systk­ini hennar voru yngri og bjuggum áfram hjá for­eldrum sínum. Hún flutti svo aftur til Afganistan þegar hún var að verða 18 ára, fór að læra ensku í háskól­anum í Kabúl í eitt ár og hóf svo nám í stjórn­mál­fræði og lög­fræði og útskrif­að­ist sem stjórn­mála­fræð­ingur árið 2007. Hún starf­aði síðan í nokkur ár á vegum SÞ og bar ábyrgð á kynja­fræði við háskól­ann í Kabúl. Hún var 27 ára þegar hún flutti til Íslands árið 2010 til að hefja nám í kynja­fræði við Jafn­rétt­is­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna (UN Guest program) sem er hluti af GRÓ – þekk­ing­ar­mið­stöð um þró­un­ar­sam­vinnu ásamt Jarð­hita­skól­anum, Sjáv­ar­út­vegs­skól­anum og Land­græðslu­skól­anum, en hún starfar undir merkjum Mennta-, vís­inda- og menn­ing­ar­mála­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNESCO. Hún ílent­ist og er orðin íslenskur rík­is­borg­ari og rekur túlka­þjón­ust­una Fatimu þar sem boðið er upp á túlka­þjón­ustu meðal ann­ars á pers­nesku/darí, kúrdísku, úrdú, arab­ísku, kín­versku og pólsku. Þá er boðið upp á fyr­ir­lestra um ýmis menn­ing­ar­leg og félags­leg við­fangs­efni. Á meðal fyr­ir­lestra má nefna „konur og kyn­ferði í Íslam“, „yfir­lit um sögu, menn­ingu og tungu­mál Afganistan“ og „inn­flytjndur og vinnu­mark­að­ur­inn á Íslandi.“ Hæl­is­leit­endur eru á meðal þeirra sem nýta sér þjón­ustu Fatimu.

„Það er ýmis­legt í menn­ingu múslíma sem þarf að taka til­lit til. Það þarf að byggja brú á milli menn­inga og við þurfum að tala um þetta. Íslend­ingar þurfa líka að læra um aðra menn­ingu.“

Það hefur þegar komið fram að þrjú systk­ini Ernu Huldar búa hér á landi. Einn bróðir hennar stefnir á meist­ara­nám í tölv­un­ar­fræði, annar fór í meist­ara­nám í verk­fræði og systir hennar er að hefja meist­ara­nám í leik­skóla­kenn­ara­fræðum.

Erna Huld er spurð út í for­dóma í sinn garð hér á landi. Hún seg­ist hafa upp­lifað for­dóma og nefnir dæmi. „Ég fór einu sinni í sund og maður spurði mig hvaðan ég væri. Þegar ég sagð­ist vera frá Afganistan spurði hann hvort ég væri Talibani. Ég brást þannig við að hann sagð­ist hafa verið að djóka en ég tók þessu ekki sem djóki. Tali­banar hafa drepið stóran hluta af fólki mínu. Þetta er ekki fyndið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð