Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar spyr á miðli sínum hvort Davíð Oddsson hafi efni á að gagnrýna Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, fyrir fylgistap flokksins. Telur Sigurjón nokkuð augljóst að það er Davíð sjálfur sem stendur á bakvið gagnrýnina í leiðara Moggans nýlega sem bar heitið „Horfa skal bitur um öxl.“
Miðaldra fólk og það unga flýr Morgunblaðið og Davið Oddsson, ritstjóra þess samkvæmt nýjustu mælingum. Segir Sigurjón í pistlinum að það sé „nokkuð vel innan við tíu prósent miðaldra fólks og yngra les Moggann, 9,4 prósent,“ samkvæmt Gallup. Sigurjón meina að Davíð hafi varla efni á að „ybba gogg“ þar sem nýjasta mæling sýni að sífellt fleiri flýji Morgunblaðið og Davíð.
Morgunblaðið hefur verið rekið með himinháu tapi um árabil en ritstjórarnir er með hæstu laun sem bjóðast á fjölmiðlum. Guðbjörg Matthísasdóttir athafnakona og eigandi Ísfélagsins í Vestmannaneyjum hefur haldið lífi í fjölmiðlinum með reglubundum peningasendingum.
Lýkur Sigurjón pistlinum með þessum orðum: „Nú er hún Snorrabúð stekkur.































Athugasemdir