Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Glúmur Baldvinsson vildi verða sendiherra; „Fráfall systur minnar, Snæfríðar, var mesta sorgin“

Glúmur Baldvinsson vildi verða sendiherra; „Fráfall systur minnar, Snæfríðar, var mesta sorgin“
Glúmur Bald­vins­son

Glúmur Bald­vins­son mun skipa odd­vita­sæti fyrir Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokk­inn í alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Hvers vegna vill hann fara þessa leið? Og hvers vegna þessi flokkur en ekki ein­hver annar? Og hver er draum­ur­inn hvað varðar stjórn­málin hjá mann­inum sem er sonur Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar?

„Frá því ég var barn ótt­að­ist ég ekk­ert meira en að þurfa að fara í stjórn­mál eins og faðir minn eða afi, Hannibal Valdi­mars­son. Öll þessi læti og allar þessar hring­ingar frá sturluðu fólki um miðjar nætur og öll þessi rætna gagn­rýni. Ég stúd­er­aði alþjóða­stjórn­mál af því mig lang­aði út; að kom­ast burt frá þessu og fá að njóta mín á eigin verð­leikum. Og það gerði ég. Mark­miðið var síðan að verða sendi­herra en utan­rík­is­ráð­herrar sem á eftir föður mínum komu höfðu engan áhuga á starfs­kröftum sonar Jóns Baldvins. Eftir því sem ég elt­ist óx mér sjálfs­traust og ég íhug­aði stjórn­mála­þátt­töku en ein­vörð­ungu á síð­ari helft ævi minnar teldi ég sam­fé­lagið á vill­götum og sjálfan mig í stakk búinn til að gera eitt­hvað í því og leggja eitt­hvað til mál­anna. Nú tel ég bæði skil­yrði upp­fyllt. Ég er enn ungur og ferskur og heilsu­hraustur svo nú er tím­inn kom­inn. Hvers vegna valdi ég Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokk­inn? Ég er krati að upp­lagi og dáð­ist að Alþýðu­flokknum gamla og væri í honum ef faðir minn hefði ekki gert þau mis­tök að láta hann renna í sam­krulli með vinstra lið­inu og Kvenna­list­anum. Krat­arnir hafa týnst í þeim flokki. Þeir eru horfnir. Svo Sam­fylk­ingin kom aldrei til greina. Þá leit ég til Við­reisnar en ólýð­ræð­is­leg vinnu­brögð þeirra við upp­stokkun á lista fellur mér ekki í geð og ég er á móti aðild Íslands að ESB að svo stöddu. Þegar Guð­mundur Franklín, vinur minn frá æsku, leit­aði til mín ákvað ég að slá til og taka odd­vita­sæti með það að mark­miði að ráða miklu um áherslu­mál af krat­ískum meiði. Þarna hef ég sem sé tæki­færi til að færa flokk­inn til krat­isma. Það tæki­færi hef ég ekki ann­ars staðar. Ég hafði hugsað mér að stofna nýjan Alþýðu­flokk, sem átti að heita Kra­ta­flokk­ur­inn, en ég hafði hvorki tíma né bol­magn til þess að koma honum á kopp­inn í tæka tíð. Svo Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn skal það vera.“

Glúmur segir að áherslur sínar séu í stuttu máli að gera Ísland að fyr­ir­mynd­ar­ríki jöfn­uðar sem aðrar þjóðir geti litið upp til og haft að leið­ar­ljósi.

„Það er skömm að því að svo ríkt land búi við svo mikla mis­skipt­ingu auðs eins og raun ber vitni og einnig sú stað­reynd að fátækt skuli fá að þríf­ast í svo ríku landi. Það er nóg til handa öllum. Helsta bar­átta mín í kom­andi kosn­ingum verður á þessum nótum og mun ég beina spjótum mínum sér­stak­lega að gjör­spilltu kvóta­kerfi til handa lít­illi forétt­inda­stétt sem skilar ekki því sem skila ber í formi auð­lind­arentu til sam­fé­lags­ins sem er eig­andi sjáv­ar­auð­lind­ar­innar. Metnaður minn að þessu sinni er fyrst og fremst að kom­ast á þing og rífa kjaft og sanna mig. Ráð­herra­stóll getur beðið.“

Helsta bar­átta mín í kom­andi kosn­ingum verður á þessum nótum og mun ég beina spjótum mínum sér­stak­lega að gjör­spilltu kvóta­kerfi til handa lít­ill forétt­inda­stétt sem skilar ekki því sem skila ber í formi auð­lind­arentu til sam­fé­lags­ins sem er eig­andi sjáv­ar­auð­lind­ar­innar.

Jón Baldvin Hanni­bals­son. Einn mest áber­andi stjórn­mála­mað­ur­inn síð­ustu ára­tuga. Faðirinn. „Þegar faðir minn komst til valda dáð­ist ég af krafti hans, mælsku og rit­list og ekki síst hug­rekki. Hann bauð íhald­inu, fram­sókn og auð­mönnum birg­inn. Þá kvikn­aði áhugi hjá mér að feta í fót­spor hans síðar um ævina teldi ég eins og áður sagði að ýmsu mætti breyta og að ég væri mað­ur­inn í það. En ég tek fram að faðir minn er póli­tískt animal sem byrj­aði í póli­tík sem marx­isti um tólf ára aldur. Pólitík hefur alltaf verið ástríða hans. Ég tel mig hafa ýmsa hæfi­leika til að verða góður stjórn­mála­maður og mögu­lega skemmti­legur stjórn­mála­maður en ég mun aldrei kom­ast með tærnar þar sem Jón Baldvin eða Hannibal höfðu hæl­ana. Og það er allt í lagi. Ég vil bara gera mitt besta. Ekki verður hægt að biðja um meira. Ég á margar fyr­ir­myndir og þeir báðir eru þar á lista en einnig Winston Churchill, Bobby Kennedy, Tony Blair og nú síð­ast Boris Johnson. Ég fíla menn sem segja hug sinn umbúð­ar­laust.“

Joe Biden ætti að segja af sér

Glúmur er með BA-gráðu í stjórn­mála­fræði og hag­fræði frá Háskóla Íslands, MSc-gráðu í alþjóða­sam­skiptum og Evr­ópu­fræðum frá London School of Economics og MA-gráðu í alþjóða­sam­skiptum og alþjóða­við­skiptum frá Uni­versity of Miami. Hvers vegna þessar náms­leiðir?

„Af því ég fædd­ist og ólst upp í litlu fiski­plássi Ísafirði og á eyju norður í ball­ar­hafi. Ég er fullur ævin­týra­þrár. Og ég ætl­aði mér aldrei að fest­ast hér á landi til eilífðar. Þess vegna valdi ég alþjóða­sam­skipti með það að mark­miði að starfa ytra. Og það hef ég gert. Ég var upp­lýs­inga­full­trúi EFTA í Genf og Brussel og einnig Sam­ein­uðu þjóð­anna í Dubai, Líberíu og Sri lanka. Ég var verk­efn­is­stjóri ÞSSÍ í Malaví í Afríku yfir verk­efni vatns- og hrein­læt­is­mála sem fyrrum utan­rík­is­ráð­herra, Össur Skarp­héð­ins­son, hefur lýst sem best heppn­aða verk­efni Íslend­inga í Afríku. Svo var ég aðstoð­ar­yf­ir­maður þró­un­ar­deildar NATO / ISAF í Kabúl Afganistan í hart­nær ár og síðar yfir­maður International Relief and Develop­ment (banda­rískt NGO) upp­lýs­inga­mála og M&E (Mon­itor­ing and Evaluation) sem útleggj­ast má sem „mat og eft­ir­fylgni á árangri verk­efn­is­ins“ sem sner­ist um að koma lífs­nauð­synjum til stríðs­hjáðra fjöl­skyldna í suð­ur­hluta Sýrlands í miðju borg­ara­stríði.

En af hverju stúd­er­aði ég alþjóða­mál? Meg­in­mark­miðið var að verða sendi­herra, ef það dygði ekki þá for­sæt­is­ráð­herra og ef það dyggði ekki þá utan­rík­is­ráð­herra.“

Hvað lærði Glúmur af þessu öllu? „Það sem ég lærði var hvað við Íslend­ingar höfum það þó gott miðað við hund­ruðir millj­óna ann­arra þjáðra í þró­un­ar­ríkjum heims­ins. En lengi má gott bæta.“

Tali­banar hafa tekið völdin í Afganistan og flestir vita hvernig ástandið þar er í dag. Hvað segir Glúmur svo sem varð­andi ábyrgð Íslend­inga sem NATO-þjóðar?

„Banda­ríkja­menn með hjálp NATO eyddu millj­örðum í að byggja upp afganskan her síð­asta ára­tug sem átti að halda Tali­bönum í skefjum. Forseti Banda­ríkj­anna, Joe Biden, hélt því fram undir lokin að sá 300.000 manna her gæti varið borg­ara lands­ins. Hvílíkur reg­in­mis­skiln­ingur og hví­lík heimska. Þetta sýnir að for­seti Banda­ríkj­anna skilur ekki Afganistan. Afganir bera enga holl­ustu til útlend­inga og allra síst Banda­ríkj­anna. Afganistan er ekki eitt ríki heldur ætt­bálka­sam­fé­lag stríðs­herra „Sturl­unga style“. Ef for­seti Banda­ríkj­anna skilur þetta ekki þá er spurt hvur á að skilja þetta? Þetta er mesta klúður for­seta Banda­ríkj­anna frá rugl­inu í Jimmy Carter fyrir 40 árum í Íran. Og verra. Joe Biden ætti að segja af sér taf­ar­laust. Og hvað segir Guð­laugur Þór utan­rík­is­ráð­herra? Ástandið mun hverfa til fyrra horfs og konur og börn munu ekki njóta mennt­unar eða mann­rétt­inda. Og konur verða kúg­aðar að vanda og haldið í skefjum þrátt fyrir við­leitni Ingi­bjargar Sólrúnar. Og auð­vitað eigum við að taka við þeim flótta­mönnum sem okkur ber skylda til.“

Þetta er mesta klúður for­seta Banda­ríkj­anna frá rugl­inu í Jimmy Carter fyrir 40 árum í Íran. Og verra.

Mesta sorg lífsins

Eitt eilífðar smá­blóm með tir­andi tár sem til­biður guð sinn og deyr. Íslands þús­und ár. Ísland er landið hans Glúms og íslensk nátt­úra er engri lík. Maðurinn sem hefur starfað á alþjóða­vett­vangi og kynnst heim­inum meira en margur annar hefur unnið sem leið­sögu­maður hér á landi.

„Ég elska úti­vist og íslenska nátt­úru sem er ein­stök. Ég hef heim­sótt um 70 lönd um ævina en ekk­ert er feg­urra en íslensk nátt­úra. Og ég elska að ferð­ast. Að vera á ferð­inni. Og mér líður best á ferða­lag­inu sem ég met meira en að kom­ast á áfanga­stað. Íslensk nátt­úra er okkar stærsta auð­lind á undan fisk­inum í sjónum og end­ur­nýj­an­legri orku. Upp­á­halds­staður minn eru Vest­firðir þar sem veg­ur­inn endar. Það er feg­ursta svæði Íslands með sinn firð­bláma eins og skáldið orti. Það vex eitt blóm fyrir vestan.“

Það var einmitt þar sem Glúmur Bald­vins­son óx upp í firð­inum á milli fjall­anna bláu sem fara í hvíta vetr­ar­bún­ing­inn sinn eins og sjálf rjúpan þegar skyggja tekur. Skáldið skrif­aði að lífið sé eins og salt­fiskur. Stundum. Lífið getur verið eins og dagur og nótt. Svart og hvítt. Gleði og sorg. Sorgina þekkir Glúmur. Fráfall systur, fjöl­skyldu­erjur og ásak­anir kvenna á hendur fjöl­skyldu­föð­urnum sem hafa orðið opin­berar í fjöl­miðlum lands­ins og manna á millum.

„Fráfall systur minnar, Snæ­fríðar, var óvænt og mesta sorg lífs míns. Hún var besti vinur minn. Ég veit ekki hvort ég muni nokkru sinni jafna mig á dauða hennar. Ég hugsa til hennar á hverjum degi. Hún var lang­feg­urst okkar systk­ina að utan sem innan. Fjöl­skyldu­erj­urnar hafa vissu­lega tekið á. Ég elskaði Aldísi systur mína sem var mér svo góð í æsku. Hún var sól­ar­geisl­inn minn. Svo veikt­ist hún, fjar­lægð­ist og breytt­ist og ég missti hana. Svo nú á ég bara eina systur. En ég harka þetta af mér og vona að einn góðan veð­ur­dag getum við öll náð sáttum á ný og orðið fjöl­skyldan sem við vorum. En ég lofa þér einu. Teldi ég föður minn sekan þá sneri ég baki við honum sam­stundis. Faðir minn er hlýr maður og minn besti vinur. Og ég þekki ekki þann mann sem þessar konur lýsa.“

For­eldrar Glúms, Jón Baldvin og Bryndís. Mynd / Facebook

Glúmur segir að Snæ­fríður hafi hringt í sig á fimmtu­dags­kvöldi og viljað hitt­ast til að ræða mik­il­væg mál yfir „dinner“ á föstu­dagskveldi. „Hvaða mál vildi hún ekki nefna. Daginn eftir sendi ég henni sms og bað um frest til morg­un­dags. Og dag­inn eftir var hún farin. Og ég hef kennt mér um æ síðan að hafa ekki hitt hana þetta föstu­dags­kvöld því þá hefðu hlut­irnir mögu­lega farið á annan veg. Hin sorgin er missir Aldísar, systur minnar.“

Fráfall systur minnar, Snæ­fríðar, var óvænt og mesta sorg lífs míns. Hún var besti vinur minn. Ég veit ekki hvort ég muni nokkru sinni jafna mig á hennar missi.

Dauðinn. Dauðinn sem bíður allra og sem sumir þekkja betur en aðrir. Hvað er dauð­inn í huga Glúms? „Hvað veit ég um það. Ætli hann sé ekki bara langur, óend­an­legur svefn. Ef hann er það ekki væri gaman að hitta ást­vini sína aftur þarna hinum megin eins og afa og ömmu, Dídí systur og Möllu frænku. En ég veðja ekki á það. Svo væri ekki leið­in­legt að enda uppi í í Valhöll og þá á ég ekki við Valhölll Sjálf­stæð­is­flokks­ins heldur Valhöll vík­inga og val­kyrja.“

Hvatning ömmu

Heims­maður.

Það mætta nota það orð. Og þegar hann er spurður hvað hafi mest mótað hann nefnir hann æsku­árin fyrir vestan þar sem blómin vaxa. „Þetta voru stór­kost­leg æskuár á Ísafirði þar sem ég horfði út fjörð­inn og dreymdi um að skoða heim­inn. Nema þá vissi ég ekki að ég horfði til norð­urs í átt að norð­ur­pólnum. Mamma fór með okkur snemma í ferða­lög um heim­inn og það kveikti bakt­er­í­una um að skoða hann allan. 70 lönd þegar komin og nóg eftir. Og amma mín mót­aði mig með því að kenna mér að gef­ast aldrei upp þótt á móti blési. Eitt sinn var ég nýráð­inn á Bylgjuna tví­tugur og fokk­aði illi­lega upp fyrsta frétta­lestri. Amma yrti ekki á mig við mat­ar­borðið þar sem ég sat skömmustu­legur. Ég ætl­aði aldrei að mæta aftur á Bylgjuna eftir þessa nið­ur­læg­ingu. Svo stóð ég upp og kvaddi og þá sagði amma, Aldís Schram: „Glúmur minn, mér finnst að fólk eigi ekki að gera það sem það getur ekki gert.“ Betri hvatn­ingu hef ég aldrei fengið því ég reidd­ist og ætl­aði sko að sýna henni og hljóp upp á Bylgju og heimt­aði að lesa næstu fréttir og las eins og eng­ill. Og alltaf þaðan í frá. En að lokum hafa ferða­lög mín og störf um hin hrjáðu þró­un­ar­lönd kennt mér að þakka fyrir það sem ég hef.“

Smáofsi, kjaftur og húmor

Hann þykir vera með munn­inn fyrir neðan nefið og jafn­vel kjaft­for. Hvað segir hann sjálfur við því?

„Ég er jöfn blanda af móður minni og föður. Þegar ég skrifa get ég ekki skrifað venju­legan, dauðan texta. Þeir verða að vera lif­andi og húmor­ískir og já, kjaft­forir. Það er bara minn stíll og ég á erfitt að beygja mig og bugta fyrir nokkrum manni. Mamma reyndi oft að tempra þennan kannski hroka minn og ofsa með því að skamma mig og segja mér að sýna kurt­eisi. Og innst inni er ég næmur og til­finn­inga­ríkur og vil ekki særa fólk. Svo það er eitt­hvað „duality“ þarna. Því ég hef stóra sam­visku sem ég fæ vænt­an­lega frá móður minni. En ég nenni ekki að lesa eftir mig texta nema honum fylgi smá­ofsi, kjaftur og húmor. En ég læt engan valta yfir mig án þess að svara í sömu mynt. Kannski lag­ast ég með árunum.“

Og innst inni er ég næmur og til­finn­inga­ríkur og vil ekki særa fólk.

Glúmur bað Ingu Sæland nýlega afsök­unar eftir að hafa verið svo­lítið dóna­legur. Örlítið. Er hann mjúkur maður innst inni? „Já, ég er mjúkur maður innst inni og vil engum illlt og fæ sam­visku­bit særi ég ein­hvern. Og ég er það mjúkur að ég má ekk­ert illt sjá eins og slæma með­ferð á minni­máttar eins og fólki sem af ein­hverjum ástæðum hefur átt erfitt upp­dráttar og getur ekki varið sig. Og svo þoli ég ekki illa með­ferð á dýrum; sem sé mál­leys­ingjum sem geta ekki borið hendur yfir höfuð sér. Kannski er þessi harka bara varn­ar­mek­an­ismi sem ég hef þróað með mér síð­ustu ára­tugi ver­andi sonur for­eldra minna.“

Ástin er vinátta

Glúmur á sér líf eftir vinnu.

„Áhugamál mín eru íþróttir. Afi, Björgvin Schram, átti Adidas og var for­maður KSÍ og fyr­ir­liði KR og lands­liðs­ins. Ég dýrk­aði hann og vildi verða eins og hann. Sama gildir um Ellert Schram, móð­ur­bróður minn. Ég spil­aði fót­bolta frá fjög­urra ára aldri til 15 þegar ég lét blekkj­ast af hinu vonda eins og skemmt­unum og kvenna­fari. Ég sé alltaf eftir því að hafa hætt. Svo elska ég tennis og minn upp­á­halds­maður er Roger Federer. Hann er lista­maður íþrótt­ar­innar og ég þoli ekki að sjá hann tapa. Sjálfur hefði ég viljað byrja að æfa tennis fjög­urra ára og náð að verða atvinnu­maður. En það varð ekki. Svo er ég hel­tek­inn aðdándi Manchester United og KR. Hvað tón­list varðar þá er ég algjör rati. Alæta. Upp­á­halds­hljóm­sveit­irnar eru Radio Head, Suede, Oasis, Nirvana, Keane, David Bowie, Rolling Stones, Bítl­arnir og Elvis Presley. Þegar ég var ungur las ég afar mikið. Til dæmis las ég allar Íslend­inga­sög­urnar þegar ég var níu ára. Svo las ég bækur eftir Laxness sem er snill­ingur sem og bækur eftir Hemingway. En ég mætti lesa meira í dag. Svo eru það ferða­lögin án fyr­ir­heits eða áfanga­staðar sem ég elska og vil helsta ferð­ast í gam­al­dags­lestum um ver­öld­ina.“

Já, hann elskar. Hann elskar Línu Rut mynd­list­ar­mann.

Hvað er ástin?

„Ástin er vin­átta. For­eldrar mínir hafa verið vinir í 62 ár, hugs­aðu þér, og eru sjálfum sér næg um vin­áttu. Og þar blómstrar ástin enn. Ástin snýst um það að geta hlegið saman. Að geta treyst hvort öðru í fjar­lægð og geta ekki beðið eftir að finna hvort annað aftur. Ástin er til­hlökkun og án ást­ar­innar er lífið einskis vert. Það að fá að upp­lifa ást eru for­rétt­indi sem ekki allir fá að njóta um lífs­leið­ina.“ Og já, Glúmur seg­ist vera róm­an­tískur djúpt undir niðri.

Glúmur og Lína Rut.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi