Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Busar reknir af skotvettvangi á Egilsstöðum – Busavígsla haldin í nágrenninu

Busar reknir af skotvettvangi á Egilsstöðum – Busavígsla haldin í nágrenninu
skotárás Mynd: Gunnar Gunnarsson

Lög­reglan á Egils­stöðum rak busa úr Selskógi í gær­kvöldi vegna skotárás­ar­innar í Dalskógi en busa­vígsla hafði verið í gangi þar um kvöldið.

Líkt og gert hefur verið und­an­farin ár, héldu nem­endum og starfs­fólk Mennta­skól­ans á Egils­stöðum busa­vígslu í Selskógi í nágrenni Dal­skógar þar sem maður skaut úr byssu í gær­kvöldi. Lög­reglan rak fólkið úr skóg­inum þegar skotárásin var í gangi.

Sjá einnig:  Ástríðu­glæpur á Egils­stöðum – Börn voru á staðnum þegar sjó­maður var skot­inn af lög­reglu

Skotárásin á Egils­stöðum í gær­kvöldi tengd­ist ást­ar­málum. Byssu­mað­ur­inn æddi inn á heim­ili fyrr­ver­andi eig­in­manns kær­ustu sinnar, vopn­aður kröft­ugum loft­riffli. Börn voru á heim­il­inu.

Lög­reglan á Aust­ur­landi skaut mann­inn við íbúð­ar­hús á Egils­stöðum í gær­kvöld. Maðurinn var fluttur með sjúkra­flugi til Reykja­víkur en ekki er vitað um líðan hans.

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að byssu­mað­ur­inn á Egils­stöðum í gær­kvöldi, hafi farið inn á heim­ili fyrr­ver­andi eig­in­manns kær­ustu sinnar, í þeim til­gangi að skjóta hann. Börn kær­ustu hans voru á heim­il­inu.

Rauði kross­inn mun síð­degis veita íbúum Egils­staða sál­rænan stuðn­ing og skyndi­hjálp eftir skotárás­ina. Þar var maður skot­inn af lög­reglu og liggur við­kom­andi þungt hald­inn á sjúkra­húsi. Maðurinn er sagður hafa skotið að lög­reglu­bíl í gær­kvöldi vopn­aður hagla­byssu.

Haldinn var fundur um atvikið með nem­endum skól­ans í morgun en einnig var farið yfir við­brögð skól­ans til hjálpar þeim nem­endum sem eiga um sárt að binda vegna þess­arar lífs­reynslu. Aðspurður segir Árni Ólason, skóla­meist­ari Mennta­skól­ans á Egils­stöðum að eng­inn hafi orðið vitni að atburð­inum en að nýnemunum hafi verið brugðið og fengju við­eig­andi aðstoð.

Sjá einnig: Áfalla­mið­stöð opnuð á Egils­stöðum eftir skotárás – Maðurinn liggur þungt hald­inn

Maðurinn er rúm­lega fer­tugur sjó­maður og ekki þekktur fyrir ofbeldi. Hefur hann verið í ást­ar­sam­bandi við kær­ustu sína í rúmt ár en heim­ildir Mannlífs herma að sam­bandið hafi verið nokkuð storma­samt og að lög­reglan hafi verið kölluð á heim­ili þeirra fyrr í sumar. Maðurinn hefur í gegnum tíð­ina verið mik­ill áhuga­maður um byssur og átt fjöl­mörg skot­vopn.

Atvikið átti sér stað laust fyrir klukkan 11 í gær­kvöld. Hafði lög­reglan verið kölluð til eftir að skot­hvellir heyrð­ust í göt­unni. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs, skipt­ist lög­reglan á skotum við mann­inn eftir að hafa ítrekað skipað honum að leggja frá sér byss­unni. Því hlýddi mað­ur­inn ekki og því var hann skot­inn. Stóð umsát­urs­á­stand yfir í um hálf­tíma.

Maðurinn hafði gengið ber­serks­gang í efstu götu Egils­staða, Dalseli og skotið úr hagla­byssu á nokkur hús í göt­unni. Íbúi eins húss­ins var staddur í bíl­skúrnum þegar hann heyrir hvelli fyrir utan og fór að athuga málið. Sá hann þá að búið var að sund­ur­skjóta rúður í húsi hans. Lög­reglan hafi beðið mann­inn um að leggja niður vopn sem hann varð ekki við og því hafi lög­reglan skotið hann í kvið­inn. Sá vitnið blóð leka niður göt­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð