Það þrengir enn að KSÍ, Guðna Bergssyni og stjórn sambandsins, og uppi eru háværar kröfur um afsögn Guðna og uppstokkun innan KSÍ.
Enn á ný virðist KSÍ hafa málað sig út í horn – sambandið sendi tölvupóst í gærkvöld á alla miðla nema Mannlíf, sem mest hefur fjallað um þöggunartilburði KSÍ.
Í tölvupóstinum var aftekið með öllu að lögmaðurinn sem hafði samband við Þórhildi hafi verið á vegum KSÍ. Þannig er vegið að æru fórnarlambsins sem hélt öðru fram.
KSÍ virðist nú bæta gráu ofan á svart og grípa til ósannsöglu ofan á þöggun, ef marka má orð Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur, sem kærði landsliðsmann fyrir ofbeldi, og kom í viðtal á RÚV.
Hún segist á Twitter muna vel eftir því að lögfræðingur á vegum KSÍ hafi boðið henni þagnarskyldusamning:
„Ég man vel að þetta var lögfræðingur á vegum KSÍ þar sem mér var orðrétt boðið á fund með „stjórnarmeðlimum KSÍ og tilteknum landsliðsmanni“ þar sem bera átti undir mig þagnarskyldusamningin. Ég gæti mögulega fundið heimildir fyrir því, stay tuned.“































Athugasemdir