Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íbúar fóru með bænir vegna drauga í Bústaðahverfi: „Þá bar ég fyrir mig hendurnar og brann illa“

Íbúar fóru með bænir vegna drauga í Bústaðahverfi: „Þá bar ég fyrir mig hendurnar og brann illa“

Uppnám var ríkj­andi í húsi við Bústaða­veg í Reykja­vík árið 1994. Í íbúð nokk­urri var vart líft fyrir óró­leika, að sögn Hreiðars Jóns­sonar, sem upp­lifði hluti sem ein­kennd­ust af eld­glær­ingum og norð­ur­ljósum. DV fjall­aði um málið á sínum tíma og ræddi við aðila máls­ins og álits­gjafa.

Í for­siðu­upp­slætti DV 5. maí þetta ár segir að óvættir hafi verið hraktir úr húsi við Bústaða­veg. Rætt var við miðil og íbúa sem stað­fast­lega lýstu ófremd­ar­á­standi í íbúð­inni.

„Það skipti engum togum að kvöldið sem ég kom frá þessum miðli varð allt nán­ast vit­laust hér inni. Það má segja að það hafi verið sam­bland af eld­glær­ingum og norð­ur­ljósum,“ sagði Hreiðar Jónsson, eig­andi íbúð­ar­innar við Bústaða­veg.

Hann lýsti því í DV að þetta hefði haf­ist þremur árum fyrr þegar hann hefði byrjað að sjá „óskýr­an­legar myndir fyrir augum sér“.

Í eitt skipti kom þetta að mér í nauts­formi

Tveimur vikum fyrir við­talið hafði hann svo leitað til bresks mið­ils. Þá hafi ýmis­legt verið búið að ganga á. Meðal ann­ars hafi ein­hverju verið brugðið um háls­inn á konu hans í atgang­inum. Þá hafi ágang­ur­inn verið svo mik­ill að þjófa­varna­kerfi hafi farið í gang í nær­liggj­andi verslun. Hann og kona hans höfðu reynt apð fara með bænir gegn bölvald­inum en ekk­ert dugði.

„Þetta hélt svo áfram í nokkrar nætur, rúmið gekk til og það var hreyf­ing á öllu hvar sem við sett­umst niður, sér­stak­lega þegar við báðumst fyrir. Í eitt skipti kom þetta að mér í nauts­formi og þá bar ég fyrir mig hend­urnar og brann illa á þeim en brun­inn kom frá mér sjálfum því ég hef svo mik­inn kraft í mér,“ sagði Hreiðar í við­tali við DV.

Miðill til hjálpar

Hreiðar hafði sam­band við Njál Torfason miðil að til­stuðlan Sál­ar­rann­sókna­fé­lags Íslands. Njáll hófst strax handa við að hreinsa út óværuna. Hann lýsti ástand­inu þannig: „Þegar ég kom hingað fann ég fyrir fólki hér. Ég lið­sinnti því, fór með fað­ir­vorið og bað það að fara sína leið, betri leið, og fara sem sagt upp. Ég sá allar þessar verur en annað slagið var eins og það kæmi svona raf­spenna. Ég fór her­bergi úr her­bergi og fór ekki úr þeim fyrr en ég var búinn að hreinsa hvert og eitt og loka þeim. Þá meina ég ekki að loka dyr­unum heldur hreinsa þau. Eftir að búið var að hreinsa her­bergi var eins og hleypt væri loft­þrýst­ingi af manni. Það er eins og maður hafi búið við yfir­þrýst­ing í langan tíma,“ sagði Njáll eftir aðgerð­irnar.

Rauð vera

Það vakti athygli blaða­manns DV að Njáll og Hreiðar teikn­uðu báðir ver­urnar sem voru á ferli, á blað hvor í sínu lagi og bar þeim saman í öllum meg­in­at­riðum. Segja þeir aðra ver­una á teikn­ing­unum full­trúa hins illa og geta tekið á sig ýmsar myndir. Hin sé rauð að lit og sé full­trúi reið­innar. Hún hafi hvolfst inn í sjálfa sig og orðið að eldi.

Njáll sagði blaða­manni að hann starf­aði sem nudd­ari en hann sé skyggn og hafi aðstoðað fólk sem hafi átt í vand­ræðum. Hann sagð­ist búa yfir ógn­ar­krafti, sem komi frá ljós­inu eða Guði. Hann vill alls ekki kalla þetta sær­ingar heldur séu þetta eins konar samn­inga­við­ræður þar sem hann hjálpi fólki eða öndum að kom­ast inn á rétta braut. Ótrúleg orka fari í þetta en hann hafi nóg af henni og hafi á skömmum tíma beint verum í sex húsum á rétta braut.

Kertaljós og hvítir krossar.

„Svo þegar þetta er búið birtir til og ég sé ekk­ert annað en kerta­ljós, hvíta krossa og svo kemur eng­ill sem fer um allt á eftir. Þegar ég hef lokið verki mínu er eins og búið sé að létta af mér fleiri, fleiri kílóum. Mér líður ótrú­lega vel,“ sagði Njáll árið 1994.

Bæði Njáll og Hreiðar lýstu því að sam­hliða þessum látum hafi verið mikil orka. Til dæmis hafi Hreiðar tíðum þurft að fara með raf­magns­tæki á heim­il­inu í við­gerð en þegar hann hafi komið að ná í þau hafi hann fengið þau til baka með þeim orðum að ekk­ert væri að þeim. Það var reyndar eftir að Njáll hreins­aði út að Hreiðar og konan hans gátu horft á sjón­varpið.

Hundruð hjálparbeiðna vegna drauga

DV ræddi einnig við Konráð Adolfs­son, for­seta Sál­ar­rann­sókna­fé­lags Íslands, sem sagði að árið 1994 hefði  félag­inu borist á milli sex og sjö hund­ruð beiðnir um aðstoð vegna óvætta í húsum.

Stundin hafði á sínum tíma sam­band við Sál­ar­rann­sókna­fé­lagið á Akureyri. Anna Guðný Egils­dóttir, stjórn­ar­maður í félag­inu, segir að félags­mönnum ber­ist gjarnan erindi um aðstoð vegna reim­leika.

„Hjá okkur er um að ræða um það bil eitt til­vik í mán­uði að með­al­tali. Erindin ber­ast okkur í gegnum aðra félags­menn og alla­vega. Við bregð­umst við með því að senda hlýjar hugs­anir eða að biðja fyrir fólki.“

Greinin er byggð í upp­hafi á DV og sam­an­tekt Stund­ar­innar. Höfundur er sá sami í öllum til­vikum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð