Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Benedikt landsliðsþjálfari fyrirgaf falsaranum: „Einhver vildi mér mjög illt“

Benedikt landsliðsþjálfari fyrirgaf falsaranum: „Einhver vildi mér mjög illt“

Lands­liðs­þjálf­ari kvenna í körfuknatt­leik, Benedikt Rúnar Guð­munds­son, er ósáttur við frétta­flutn­ing Mannlífs í gær en fréttin snéri að mynda­brönd­urum (e.memes) sem hann birti á Instagram í fyrra. Hluti af mynda­brönd­ur­unum komu ekki frá honum en sumir þeirra fóru fyrir brjóstið á leik­mönnum lands­liðs­ins sem kvört­uðu til KKÍ.

Benedikt fann sig knú­inn í gær­kvöldi til að setja út á frétta­flutn­ing Mannlífs í gær og útskýra málið nánar. Birti hann pistil um þetta á Facebook.

„Dauðleiddist heima í Covid“

Þjálf­ar­inn segir í pistl­inum að þegar Covid stóð sem hæst hér á landi, hafi honum dauð­leiðst að hanga heima en stytt sér stundir meðal ann­ars með því að skoða mynda­brand­ara sem fólk fór að senda á hann. Þetta hafi létt honum stund­irnar og hann hafi svo í kjöl­farið ákveðið að finna svona mynda­brand­ara og senda á ákveð­inn hóp inni á Instagram. „Síðan Covid skall á hef ég sent ca. 300 memes“ segir Benedikt og heldur áfram „flest voru tengd Covid, sum voru skot á sjálfan mig, ein­hver skot á karl­menn og ein­hver skot á konur og önnur skot á hitt og þetta.“ Tekur hann fram að engin þeirra hafi átt að vera móðg­andi né sýndi bert hold, hvorki kven­manns­hold né karl­manns. Mark­miðið hafi verið að áfram­senda grín og létta fólki lund­ina.

Fyr­ir­liði kvenna­lands­liðs­ins hafði á ein­hverjum tíma­punkti sam­band við Benedikt en hafði hann fengið sent ein­hverja 7-8 mynda­brand­ara af þessum rúm­lega 200 myndum sem hann hafði sent. Hafði fyr­ir­lið­inn fengið þessa brand­ara senda á sig en þá var búið að sjóða saman þessa 7-8 brand­ara og „var skilj­an­legt að fyr­ir­lið­inn hefði áhyggjur, meðal ann­ars hvort ég væri hald­inn kven­fyr­ir­litn­ingu og stund­aði það að skjóta á konur í frí­tíma mínum.“ Það sem Benedikt fannst verst var að tveir mynda­brandar­anna sem voru á gráu svæði en að hann hefði aldrei sent þá. Hann sendi aftur á móti nokkra sjálfur sem þóttu á þessu gráa svæði.

Lagði fram kæru

Benedikt fór í kjöl­farið til lög­regl­unnar með málið en síðar kom í ljós að ein­hver hefði „lagt það á sig að falsa í mínu nafni“ eins og þjálf­ar­inn orðað það í pistli sínum. Það hafi svo fljót­lega komið í ljós að ein­hver hefði falsað tvo mynda­brandra í hans nafni. Sagði hann enn­fremur í pistl­inum að það að ein­hver hrein­lega vilji honum illt, hafi brotið hann niður. Lagði hann svo fram kæru til lög­regl­unnar en áður en hann fór á fund með henni barst honum sím­tal frá mann­eskj­unni sem hafði tekið þessa mynda­brand­ara saman og bætt við tveimur. Þjálf­ar­inn ákvað að fyr­ir­gefa fals­ar­anum og draga kæruna til baka. Hann upp­lýsir ekki hver meintur fals­ari sé og þá hver hafi brot­ist inn á reikn­ing hans.

Eftir að Covid bylgjan rén­aði var boðað til fundar með Benedikt, lands­lið­inu og stjórn KKÍ þar sem Benedikt reif­aði málið frá „A til Ö“ líkt og hann orðar það sjálfur. Á fund­inum var honum tjáð að málið væri búið og fyr­ir­liði liðs­ins tjáði honum að liðs­mönnum lands­liðs­ins væru sáttir „og við tókum góða æfinga­helgi.“

Ekki haldinn kvenfyrirlitningu

Í nið­ur­lagi pistils­ins skrifar Benedikt: „Ég er ekki að skrifa þetta hér til þess að reyna að fría sjálfan mig og spila mig sem full­kom­inn ein­stak­ling sem gerir aldrei neitt rangt. Ég hef gert mörg mis­tök á ævinni og þegar ég horfi til baka þá sé ég eftir ansi mörgu á langri ævi. Ég er maður hinna ýmsu galla og veit af þeim mörgum en ég tel mig ekki hald­inn kven­fyr­ir­litn­ingu.“ Þá segir Benedikt einnig að í dag muni hann birta mynda­brand­ar­ana sem um ræðir og leyfa öðrum að dæma fyrir sig.

Rit­stjórn Mannlífs áréttar að í fyrstu útgáfu frétt­ar­innar hafi í byrjun hennar verið talað um mynda­brand­ara en síðar í frétt­inni hafi verið talað um myndir. Því var þó fljót­lega breytt eftir ábend­ingar. Mannlíf vill taka skýrt fram að mynda­brand­ar­arnir hafi ekki tengst lands­liðs­kon­unum með beinum hætti á neinn hátt enda kom það aldrei fram í frétt­inni. Mannlíf stendur við frétt­ina. Kvartað var undan mynda­brönd­urum Bene­dikts til KKÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð