Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Erna: „Það er verið að sýna konum á Íslandi vanvirðingu“

Erna: „Það er verið að sýna konum á Íslandi vanvirðingu“
Erna Bjarna­dóttir

Ekki var lesið úr brjósta­mynda­tökum í síðsta mán­uði eins og þegar hefur komið fram í fjöl­miðlum og samdi Land­spít­al­inn við danska fyr­ir­tækið Sen­ologia ApS um heild­ar­þjón­ustu í brjósta­mynd­grein­ingu. Þá hefur komið fram að báðir íslensku lækn­arnir sem sinntu starf­inu hafi hætt í sumar vegna gæða­mála.

„Við erum felmtri slegnar. Ég hef strax fengið við­brögð frá konum og þetta kemur þeim mjög á óvart og þetta veldur mik­illi óvissu á meðal kvenna,“ segir Erna Bjarna­dóttir sem er for­svars­maður Facebook-hóps­ins „Aðför að heilsu kvenna“ sem er gras­rót­ar­hópur til að mót­mæla aðför að heilsu kvenna en eins og margir vita hefur Erna barist fyrir því að leg­háls­sýni kvenna hér á landi verði rann­sökuð á Íslandi en ekki Danmörku eins og verið hefur síð­ustu mán­uði sem hefur orðið til þess að konur hafa jafn­vel beðið í nokkra mán­uði eftir því að fá nið­ur­stöður. Þetta teng­ist því að um ára­mótin flutt­ust skimanir fyrir leg­hálskrabba­meini frá Krabba­meins­fé­lagi Íslands til Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og síðan voru málin í miklum ólsetri. Nú á að verða breyt­ing þar á.

„Þetta með brjósta­mynda­tök­urnar kom mér á óvart. Ég hafði ekki hug­mynd um þetta. Ég ótt­að­ist kannski að mæt­ingin og boð­unin væri ekki í nægi­lega góðu horfi en þetta kom mér alveg í opna skjöldu og auð­vitað veldur þetta konum kvíða og óvissu.“

Erna segir að kven­fyr­ir­litn­ing sé stórt orð en að það sé vissu­lega verið að sýna konum á Íslandi van­virð­ingu. „Mér dettur ekki í hug að fólk eigi að bíða mán­uðum saman eftir nið­ur­stöðum tengdum öðrum sjúk­dómum.

Þetta vekur aftur upp spuningar um að það sé eins og varð­andi leg­háls­skimanir að verða rof á milli skimun­ar­sögu kvenna með því að það sé danskt fyr­ir­tæki sem tekur við þessu og hefur ekki aðgang að fyrri upp­lýs­ingum og svo líka rof gagn­vart læknum hér og svo hvernig sú teng­ing verður. Að öðru leyti erum við í „Aðför að heilsu kvenna“ stutt á veg komnar með að kynna okkur hvað þetta þýðir og þessi hópur var stofn­aður til að fást við hitt við­fangs­efnið; leg­háls­skimanir. Það verður í kvöld hald­inn fundur með nokkrum konum í hópnum þar sem meðal ann­ars brjósta­mynda­tök­urnar verða ræddar. Ég held að það sé engin leið að víkja sér undan því að setja sig inn í þetta og reyna þá eftir atvikum að hafa áhrif til betra forms varð­andi þetta.“

Erna segir að kven­fyr­ir­litn­ing sé stórt orð en að það sé vissu­lega verið að sýna konum á Íslandi van­virð­ingu.

Í upphafi skyldi endinn skoða

Erna segir að það þurfi fyrst og fremst að breyta um hugs­un­ar­hátt innan íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins. „Verk­efnin þurfa að vera í for­gangi og hvernig þau verða best leyst en ekki á að ein­blína á hvort Krabba­meins­fé­lag Íslands, heilsu­gæslan eða ein­hver annar vinni þetta heldur eiga bæði verk­efnin og þjón­ustan við þá sem hennar eiga að njóta að vera for­gangs­at­riði. Það á að horfa á hags­muni þeirra sem eiga að njóta þjón­ust­unnar. Konur hafa til dæmis talað um að þeim finn­ist vera óþægi­legt að leg­háls­skimanir séu komnar til heilsu­gæsl­unnar sem er víða en að þetta sé ekki gert á ein­hverjum sam­ræmdum stað.

Það á að horfa á hags­muni þeirra sem eiga að njóta þjón­ust­unnar.

Ég skil ekki á hvaða veg­ferð stjórn­völd voru með því að skoða ekki end­inn í upp­hafi varð­andi leg­háls­skiman­irnar. Það var anað út í þessar breyt­ingar án þess að búið væri að þarfa­greina verk­efnið og tryggja að tölvu­kerfi og annað sem átti að halda utan um þetta væri í lagi. Ég bara skil ekki svona vinnu­brögð og það gerir það bara ekki nokkur maður. Ég hef skiln­ing á stöðu Ágústs Inga Ágústs­sonar kven­sjúk­dóma­læknis sem tek­inn er við sem yfir­læknir og nýr for­stöðu­maður Sam­hæf­ing­ar­stöðvar krabba­meins­skima; hann getur ekk­ert að þessu gert og er að gera sitt besta. Hann er allt í einu kom­inn í þá stöðu að svara fyrir þetta. Það er ekki hans að svara fyrir af hverju konur sem fóru í leg­háls­skimun í febr­úar, mars eða apríl eru fyrst núna að fá svör. Það er bara alls ekki upp á hann að klaga út af því.“

Erna byrj­aði í bar­átt­unni fyrr á þessu ári og segir að nú hafi gefið sig fram öfl­ugar konur sem hafa sleg­ist í hóp­inn og munu þær halda áfram að vekja athygli á þessum málum og nú líka varð­andi brjósta­mynda­tök­urnar. „Ég hef ásamt annarri konu verið beðin um að taka sæti í starfs­hópi á vegum Lækna­fé­lags Íslands til að fara yfir þetta leg­skim­ana­mál frá a til ö. Við munum líka halda bar­átt­unni áfram með bréfa­skriftum og öðru til að vekja athygli á þessu varð­andi brjósta­mynda­tök­urnar.“

Erna hefur ýmis­legt lært á þessu ferli og segir að það sem komi sér mest á óvart sé hvernig stjórn­sýslan hefur reynt að kasta ryki á hvað raun­veru­lega gerð­ist. „Það sem mér finnst vera lær­dóm­ur­inn er að stjórn­sýslan og upp­lýs­ingar þurfa að virka.“

Við munum líka halda bar­átt­unni áfram með bréfa­skriftum og öðru til að vekja athygli á þessu varð­andi brjósta­mynda­tök­urnar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð