Byssumaður áreitti varaborgarfulltrúa og þurfti lögreglan að vakta Ráðhús Reykjavíkur í kjölfarið, en haldinn var borgarstjórnarfundur þar síðastliðinn þriðjudag.
Fréttablaðið hefur þær heimildir og segir frá að þetta sé byssumaðurinn sem áður hefði skotið á höfuðstöðvar hjá nokkrum stjórnmálaflokkum, bíl Dags B. Eggertssonar, auk þess sem hann áreitti Baldur Bergþórsson, varaborgarfulltrúa Miðflokksins. Baldur mun ekki hafa viljað tjá sig um málið að svo stöddu.
Fyrr á árinu var skotið á bíl borgarstjóra með stuttu millibili og var fólk uggandi yfir málinu. Auk þess var skotið á skrifstofu Samfylkingarinnar. Ekki fékkst staðfest að skotið hefði verið á fleiri staði.
Byssumaðurinn neitaði sök og reyndist hann vera fyrrverandi lögreglumaður. Málið er til rannsóknar.































Athugasemdir