Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Runólfur spyr: „Starfa svona miklir viðvaningar hjá tryggingafélögunum við fjárfestingarnar?“

Runólfur spyr: „Starfa svona miklir viðvaningar hjá tryggingafélögunum við fjárfestingarnar?“
Runólfur Ólafsson.

Runólfur Ólafsson fram­kvæmda­stjóri Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda bendir á að á „und­an­förnum 6 árum hefðu iðgjöld bíla­trygg­inga hækkað um 44% meðan verð­lags­vísi­tala hefði á sama tíma hækkað um 17% og slysum í umferð­inni fækkað veru­lega. Málsvari trygg­inga­fé­laga full­yrti „að við­gerð­ar­kostn­aður bif­reiða hefði hækkað um 45% og laun um 69% á þessu tíma­bili og það sýndi að hækkun iðgjald­anna væri til að mæta þeim kostn­aði.“

Og heldur áfram:

„Hag­stofan tekur ekki undir þessar tölur málsvara trygg­inga­fé­lag­anna. Við­gerðir og við­hald bíla hafa hækkað um 35% á tíma­bil­inu, ekki 45%. En það segir ekki alla sög­una. Bílar hafa aðeins hækkað í verði um 2,8% og vara­hlutir hafa lækkað í verði um -9,3%. Þar að auki er við­gerð­ar­kostn­aður öku­tækja aðeins lítið brot af tjóna­bótum trygg­inga­fé­lag­anna enda selja þau við­gerð­ar­hæfa bíla frá sér,“ segir Runólfur og bætir við:

„Hafa laun virki­lega hækkað um 69% á síð­ustu 6 árum og þannig leitt til hærri bóta­greiðslna? Launa­vísi­tala Hag­stof­unnar segir að hækk­unin hafi verið 54%. Einnig þarf að hafa í huga að bóta­upp­gjör vegna örorku mið­ast við með­al­tal árs­launa 3 árum fyrir slysið. Það tekur oft­ast nær mörg ár að úrskurða um þessar bætur, þannig að núna eru trygg­inga­fé­lögin að miða við laun áður en laun fóru að hækka umtals­vert. Og jafn­vel þó þær bætur séu reikn­aðar upp miðað við hækkun launa­vísi­tölu, þá hafa bæt­urnar ekki tærnar þar sem und­an­farnar launa­hækk­anir hafa hæl­ana.“

Runólfur nefnir að „sjálf­sögðu hefur mikil áhrif á kostnað trygg­inga­fé­lag­anna að almennt verð­lag hefur ekki hækkað nema um 17% á síð­ustu sex árum. En mest áhrif hefur að slös­uðum í umferð­inni hefur fækkað um 23%. Þetta eru töl­urnar sem sýna hvað best að engin inni­stæða er fyrir 44% hækkun iðgjald­anna.

Málsvar­inn segir að iðgjöld þurfi að standa undir kostn­aði trygg­inga­fé­lag­anna og þau geri það sjaldn­ast. Þetta er mark­laust. Trygg­inga­fé­lögin búa til eigin tölur um tjóna­kostnað og hræra í þeim eftir því hvort þurfi frekar að sýna góðan hagnað eða hlaða í bóta­sjóð­ina, sem núna kall­ast tjóna­skuld.“

Runólfur bendir á að það sé fíll í her­berg­inu – bóta­sjóð­irnir.

Og þá er komið að fílnum í her­berg­inu. Málsvar­inn segir að hagn­aður trygg­inga­fé­lag­anna að und­an­förnu sé að mestu til kom­inn vegna ávöxt­unar fjár­fest­ing­ar­eigna – hluta­bréf hafa hækkað. Trygg­inga­fé­lögin geti ekki ein­ungis treyst á slíkan hagnað og því þurfi grunn­rekst­ur­inn að bera sig.

Í hvaða heimi lifa trygg­inga­fé­lögin, Fjár­mála­eft­ir­litið og Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, ef þau telja að trygg­inga­fé­lög geti ekki treyst á að fá hagnað af ávöxtun eigna sinna? Hvers vegna eiga bankar, fjár­fest­inga­sjóðir og líf­eyr­is­sjóðir að treysta á ávöxtun eigna en ekki trygg­inga­fé­lög? Starfa svona miklir við­van­ingar hjá trygg­inga­fé­lög­unum við fjár­fest­ing­arnar?

Hvað bíla­trygg­ingar áhrærir, þá byggir hin góða ávöxtun trygg­inga­fé­lag­anna á spik­feitum bóta­sjóði. Þessi bóta­sjóður stóð í 50 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót og hann er alfarið mynd­aður úr ofteknum iðjg­öldum af lög­boðnum ábyrgðar- og slysa­trygg­ingum öku­tækja. Fyrir 6 árum stóð sjóð­ur­inn í 27 millj­örðum króna. Tapið á trygg­inga­rekstr­inum hefur sem sagt ekki verið meira en svo að félög­unum hefur tek­ist að nurla saman 50 millj­arða króna afgangi sem þau ávaxta skatt­frjálst með því að kalla þessu stærstu eign sína tjóna­skuld en ekki bóta­sjóð,“ segir hann og bætir við:

„Það svaka­leg­asta er svo að trygg­inga­fé­lögin ættu fyrir löngu að vera búin að skila mestum hluta þess­ara bóta­sjóða til trygg­inga­taka, til dæmis í formi lækk­aðra iðgjalda. Langt er síðan Evr­ópu­sam­bandið breytti fyr­ir­komu­lagi reikn­ings­skila trygg­inga­fé­laga með svo­kall­aðri Solvency 2 reglu­gerð. Með þeirri breyt­ingum á eigið fé trygg­inga­fé­lag­anna að mæta áhættu vegna trygg­inga­starf­sem­innar. Ekki þarf lengur bóta­sjóði/tjóna­skuld til að mæta tjóns­á­hættu.

Fyrir liggur að eig­in­fjár­staða trygg­inga­fé­lag­anna er firna­sterk. Hvernig stendur þá á því að trygg­inga­fé­lögin halda áfram að bæta í bóta­sjóð­ina, þó fyrir liggi að fjár­mun­irnir eru marg­falt það sem þarf til að mæta áhættu? Hvers vegna tekur fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans ekki í taumana?“

Runólfur færir í tal að „málsvari trygg­inga­fé­lag­anna segir að 75% bóta­greiðslna vegna var­an­legrar örorku eftir bílslys sé vegna lík­ams­tjóna sem metin eru til 15% var­an­legrar örorku eða lægri. Hún segir þarna mun lengra gengið í bóta­greiðslum en í nágranna­lönd­unum. Án vafa er ástæða til að huga að breyt­ingum á þessu fyr­ir­komu­lagi, sér­stak­lega þegar fólk hefur orðið fyrir litlu eða engu fjár­hagstjóni. En hvers vegna eru trygg­inga­fé­lögin fyrst núna að vekja athygli á þessu? Þetta hefur verið svona frá því skaða­bóta­lögum var breytt fyrir 22 árum. Hvers konar ábyrgð­ar­leysi er það af atvinnu­grein­inni að láta reka undan vindi og hækka frekar iðgjöld á bíl­eig­endur? Þetta eru engar smá­upp­hæðir. Málsvar­inn segir að Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja vilji gjarnan eiga sam­tal um það sem betur má fara í starfs­um­hverfi trygg­inga­fé­laga. Einnig nefnir hún að ræða þurfi gild­andi ákvæði skaða­bóta­laga. Hún segir sam­tökin kalla eftir góðu sam­tali við FÍB og aðra tals­menn neyt­enda ásamt stjórn­völdum um raun­hæfar leiðir að því mark­miði að lækka iðgjöld trygg­inga enda sé það allra hagur.“

Endar á þessu:

„Þau orð vita á gott. FÍB er alltaf til­búið til við­ræðna um bættan hag neyt­enda og heil­brigða sam­keppni. Ekki er eftir neinu að bíða hvað trygg­inga­fé­lögin áhrærir. Þau geta byrjað að skila bóta­sjóð­unum að stórum hluta til baka, enda er þeirra ekki þörf. Til dæmis mætti gera það með skipulagri og gegn­særri lækkun iðgjalda á nokkrum árum. Þau geta líka byrjað að ræða við lög­gjafann um skyn­sam­legar end­ur­bætur á skaða­bóta­lög­unum. Ekki mun FÍB standa í vegi fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð