Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kristrún segir Moggann og Viðskiptablaðið ljúga um kauprétt: „Þetta er algjör lágkúra í fjölmiðlun“

Kristrún segir Moggann og Viðskiptablaðið ljúga um kauprétt: „Þetta er algjör lágkúra í fjölmiðlun“
Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

„Sam­an­tekin ráð virð­ast nú vera hjá Mogganum og Við­skipta­blað­inu að gef­ast upp á að ræða um mína póli­tík á efn­is­legum grunni og reyna nú bara að keyra kon­una niður með smjör­klípum, óhróðri og gera lítið úr jafn­að­ar­manna­skoð­unum mínum,“ skrifar Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ingar í Reykja­vík, um fréttir Morg­un­blaðs­ins og umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins, um að hún hefði nýtt sér kaup­rétt­ar­samn­inga og grætt tugi millj­óna. Þessu var meðal ann­ars haldið fram í þætt­inum Dagmál sem Andrés Magn­ús­son og Stefán Stef­áns­son stjórna. Stað­hæfðu þeir í við­tali við Loga Ein­ars­son, for­mann Sam­fylk­ingar, að Kristrún hefði hagn­ast með þessum hætti: „

Verður þetta ekki hol­ur hljóm­ur gagn­vart þeim sem höll­um fæti standa að segja, hér erum við með kandí­dat­inn sem ætl­ar að breyta þess­um mál­um. Hann er reynd­ar ný­kom­inn út úr banka­kerf­inu með tugi millj­óna í vas­an­um?“

Afbakanir

Kristrún segir að illa hafi gengið hjá and­stæð­ingum Sam­fylk­ingar að svara mál­flutn­ingi flokks­ins um lífs­kjara­breyt­ing­arnar sem eru vel ger­legar með jafn­að­ar­manna­stjórn.„Þá fara menn í örvænt­ing­ar­kasti að snúa út úr og afbaka stað­reyndir um minn per­sónu­lega fjár­hag. Þeir hafa nákvæm­lega ekk­ert efn­is­lega fram að færa. Ég er víst ekki nógu mik­ill jafn­að­ar­maður vilja þeir halda fram. Ástæðan ver­andi sú að stuttu eftir að ég flutti heim úr námi og hóf störf í Kviku þá setti ég stóran hluta af per­sónu­legum sparn­aði mínum og manns­ins míns í rétt­indi fyrir hlut í bank­anum. Upphæð sem okkur mun­aði mjög mikið um. Þarna erum við hjónin nýkomin úr námi og vinnu, með lítið á milli hand­anna, en tókum þá ákvörðun um að leggja í þessa fjár­fest­ingu. Ef verð á bréfum í bank­anum hefði staðið í stað, eða jafn­vel aðeins hækkað hóf­lega, hvað þá lækkað, hefðum við tapað allri fjár­fest­ing­unni,“ skrifar hún.

Fékk ekki krónu

Og hún áréttar að óhróð­ur­inn eigi sér enga stoð.„Ég fékk ekki 1 kr. í kaupauka­greiðslu frá Kviku og borg­aði fyrir mína eigin fjár­fest­ingu í félag­inu takk fyrir mig. Fjár­fest­ing sem kom vel út, eins og margar fjár­fest­ingar á hluta­bréfa­mark­aði und­an­farin ár. Síðast þegar ég vissi mega fleiri en Sjálf­stæð­is­menn taka þátt á hluta­bréfa­mark­aði“.Hún segir að Við­skipta­blaðið hafi  í nýlegri umfjöllun reynt að tengja saman tvö ólík mál sem snúa að rann­sókn á Kviku og kaupum hennar í bank­anum.„Mín kaup eru ekki til rann­sóknar, þessi fjár­fest­ing, né ég. Þetta hefur nákvæm­lega ekk­ert með mig að gera. Ég hef borgað mína skatta af þess­ari fjár­fest­ingu sem ég borg­aði fyrir og er í raun ekki í stöðu til að ákvarða hversu mikla skatta ég greiði af því. Ég er nefni­lega ekki með mínar fjár­fest­ingar í sér­stöku félagi þar sem ég skammta mér fjár­magn“.Hún segir að aldrei myndi sér detta í hug að gera lítið úr for­rétt­indum sínum.„Ég er afsprengi vel­ferð­ar­sam­fé­lags, það er ástæðan fyrir því að ég er nú í fram­boði fyrir jafn­að­ar­manna­flokk. Því ég hef trú á mik­il­vægi stuðn­ings­kerf­anna okkar. Ég hef einnig verið gríð­ar­lega heppin í líf­inu, kem frá sterkum félags­legum grunni þó fjár­magnið hafi ekki flætt á mínu heim­ili. Og er mjög með­vituð um það. Slíkri vel­gengni þarf þó ekki að fylgja firr­ing fyrir stöðu ann­arra“.Í lok umfjöll­un­ar­innar fá blaða­menn Við­skipta­blaðs­ins enn frekar á bauk­inn.„Þetta er algjör lág­kúra í fjöl­miðlun, og ástæðan fyrir því að margt ungt fólk veigrar sér við póli­tískri þátt­töku. Svona frétta­mennska er bara til þess fallin að kúga fólk frá lýð­ræð­is­legri þátt­töku. Ég ætla ekki að leggj­ast flöt fyrir þessu, þið getið gleymt því“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð