Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fyrstu íslensku náttúruverndarsinnarnir: bændurnir, stíflan og dýnamítið

Fyrstu íslensku náttúruverndarsinnarnir: bændurnir, stíflan og dýnamítið

Í fyrra voru komin fimm­tíu ár frá því að stórt atvik átti sér stað í íslenskri umhverf­is­vernd­ar­sögu.

Að kvöldi dags þann 25. ágúst árið 1970 tóku nokkrir bændur í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu sig saman og sprengdu stíflu í Laxá í Aðaldal við Mývatn í loft upp. Alls lýstu 113 yfir ábyrgð á verkn­að­inum, en að end­ingu voru 65 þeirra ákærðir og sak­felldir. Þeir aðilar fengu þó ekki þunga dóma.

Í grein Björns Jón­as­sonar úr Þjóð­málum segir meðal ann­ars um atburð­inn:

„Fólk er yfir­leitt sam­mála um að bændur hafi forðað stór­slysi. Að hefðu áform verk­fræð­inga og virkj­un­ar­sinna náð fram að ganga hefði tjónið verið óbæt­an­legt. Fremja átti hryðju­verk gegn Íslandi. Því var afstýrt með hjálp Dýnamits.“

Þetta var í fyrsta sinn í sögu Íslands sem mál er varð­aði umhverf­is­vernd varð að dóms­máli.

Yfirvofandi umhverfisslys en enginn hlustaði

Aðdrag­andi máls­ins er sam­þykkt þess efnis að byggja skyldi 60 mw stíflu í Laxá og er málið í heild kallað Lax­ár­deilan, en hún stóð í raun frá árinu 1968 til 1973.

Það var Lax­ár­virkjun sem stóð fyrir bygg­ingu stífl­unnar í Miðkvísl, en með til­komu hennar yrðu miklir vatna­flutn­ingar á svæð­inu með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríkið. Bænd­urnir á svæð­inu, sem best þekktu virkj­ana­kost­inn, sögðu áformin stofna lax­inum í ánni í hættu og að virkj­unin myndi sömu­leiðis skaða við­kvæmt líf­ríki Laxár og Mývatns. Auk þessa myndu vatns­borðs­hækk­anir leggja Laxárdal í eyði.

Bænd­urnir lögð­ust því alfarið gegn áformum Lax­ár­virkj­unar og mót­mæltu gerð stífl­unnar. Á þá var hins­vegar ekki hlustað. Þrátt fyrir mikla þekk­ingu þeirra á svæð­inu, hags­muni og skiln­ing á hinu mikla líf­ríki voru sjón­ar­mið bænd­anna algjör­lega hunsuð. Því hafð­ist Lax­ár­virkjun handa við að reisa stífl­una, þvert á vilja land­eig­enda.

Bænd­urnir leit­uðu allra leiða til þess að fá áformunum hnekkt. Ítrekað var reynt að fara laga­legu leið­ina, bændur vildu fá lög­bann á virkj­un­ina út frá vel rök­studdu máli sínu, en allt kom fyrir ekki.

Það end­aði því svo að bænd­urnir tóku sig saman og sprengdu stífl­una í skjóli nætur. Spreng­ing stífl­unnar í Miðkvísl við ósar Mývatns er afdrifa­rík­asti atburð­ur­inn í Lax­ár­deil­unni og skipti sköpum í mál­inu.

Samstaða og leynd

Samstaða bænd­anna 113 brást aldrei. Enginn þeirra lét buga sig í vitna­leiðslum og því sagði aldrei nokkur þeirra frá því hver eða hverjir það voru sem höfðu sprengt stífl­una. Þess í stað ját­uðu þeir allir sök. Það hvíldi ákveðin bann­helgi yfir mál­inu og í ára­tugi vissi jafn­vel yngra fólkið í sveit­inni ekki nákvæm­lega hverjir það voru sem fír­uðu upp í sprengj­unni.

Í gegnum árin hefur málið stundum verið kallað „eina íslenska hryðju­verkið“, en með tíð og tíma, sem og auk­inni nátt­úru­vernd og umhverf­is­vit­und, hefur málið fengið á sig annan blæ og atvikið frekar verið talið hetju­dáð þeirra bænda sem þarna áttu í hlut. Atburð­ur­inn er í dag tal­inn marka upp­haf nátt­úru­verndar á Íslandi.

Þrátt fyrir að merki­leg atvik sem tengja má nátt­úru­vernd hafi fyrr átt sér stað, eins og bar­átta Sigríðar í Bratt­holti, þá var þessi atburður algjör vendi­punktur í sög­unni og íslenskri nátt­úru­vernd. Eftir þetta fór sann­ar­lega að verða ein­hver hug­ar­fars­breyt­ing í þjóð­fé­lag­inu og mál af þessum toga voru rædd á nýjan hátt. Umhverf­is­vernd varð raun­veru­legra fyr­ir­bæri sem fleiri skildu að væri mik­il­vægt.

Freklega gengið á rétt bænda

Það er um margt merki­legt að virkj­un­ar­sinnar hafi fengið að ganga jafn langt á sínum tíma og raun ber vitni. Með virkj­un­inni hefðu margar jarðir í einka­eigu farið undir vatn og þarna var að öllu leyti gengið mjög harka­lega fram gagn­vart bænd­unum og eign­ar­rétti þeirra.

Auk þessa kom virkj­unin aldrei til með að þjóna bænd­unum á nokkurn hátt, þar sem nýta átti ork­una á Akureyri.

Sömu­leiðis átti að reisa virkj­un­ina sjálfa á landi í einka­eigu. Auk ofan­greinds er svo auð­vitað skað­semi virkj­un­ar­innar gagn­vart líf­rík­inu, en það var bænd­unum mikið hita­mál og reyndu þeir að benda á það hvað eftir annað, en töl­uðu fyrir daufum eyrum.

Út frá þessu máli hafa margir haldið því fram að besta nátt­úru­verndin felist í eign­ar­rétti á land­svæðum. Að hags­munum nátt­úr­unnar sé best borgið þegar hún eigi sér eig­endur og vernd­ara, sína eigin land­vætti ef svo má að orði kom­ast.

Aðrir eru ósam­mála því og telja ein­ungis þurfa betri reglu­verk utan um nátt­úru­vernd og virkj­ana­kosti.

Hvellur

Í heim­ild­ar­mynd­inni „Hvellur“, sem frum­sýnd var árið 2013 var loks hul­unni svipt af leynd­ar­mál­inu sem bænd­urnir höfðu varð­veitt í öll þessi ár: hverjir það voru í raun sem sprengdu stífl­una; tóku í gikk­inn, ef svo má að orði kom­ast. Það voru þeir Guð­mundur Jónsson á Hofs­stöðum, Sig­ur­geir Pét­urs­son á Gaut­löndum og Arn­grímur Geirsson í Álfta­gerði. Þeir Guð­mundur og Sig­ur­geir voru báðir látnir þegar myndin kom út, en Arn­grímur á lífi. Arn­grímur lést svo í júní í fyrra.

Til þess að safna liði bænda á svæð­inu voru boð látin ganga út í jarð­ar­för á Skútu­stöðum sama dag og stíflan í Miðkvísl var sprengd. Í heim­ilda­mynd­inni kemur fram að dýnamítið sem notað var til að sprengja stífl­una var í eigu fram­kvæmda­að­ila stíflu­gerð­ar­innar, Lax­ár­virkj­unar.

Samstaða Mývetninga einstök

Það má um margt segja að virkj­un­ar­sinnar hafi þarna valið sér ranga sveit til að abb­ast upp á. Andinn og sam­staðan í Mývatns­sveit hefur löngum verið sterk og þar var alla tíð mikil sam­fé­lags­leg með­vit­und. Þarna bjó líka mikið af víð­lesnu fólki, sem jafn­vel kunni tölu­vert fyrir sér í lög­fræði.

Þessari bylt­ingu Mývetn­ing­anna hefur stundum verið líkt við Kára­hnjúka­málið, en Grímur Hákon­ar­son, leik­stjóri Hvells, sagði sömu­leiðis að honum þætti stemn­ingin í kringum Lax­ár­deil­una og spreng­ing­una árið 1970 um margt líkj­ast bylt­ing­ar­and­anum í bús­á­halda­bylt­ing­unni. Það má vel skilja þá lík­ingu. Fólkið, almúg­inn, tekur vald sitt til baka. Stendur uppi í hár­inu á ráð­andi öflum, stendur hnar­reistur augliti til auglitis við auð­valdið og segir: hingað og ekki lengra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina