Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Aldís ein skærasta leikkona Íslands: „Alls konar hæðir og lægðir við að vinna í sjálfri mér“

Aldís ein skærasta leikkona Íslands: „Alls konar hæðir og lægðir við að vinna í sjálfri mér“
Ljós­mynd­ari: Julie Rowland fyrir Svarta Sanda

„Að vinna í sjálfri mér and­lega og lík­am­lega hefur haft í för með sér alls konar hæðir og lægðir. Ég get ekki und­ir­strikað það nóg oft hversu heppin ég er að hafa traust stuðn­ings­net í kringum mig af fólki sem lyftir mér alltaf upp þegar ég ligg með and­litið í drull­unni. Mín helsta áskorun þessa dag­ana er eflaust að halda áfram að vinna í sjálfri mér svo þau þurfa ekki að bera mig reglu­lega uppi! Þetta er allt á réttri leið.“

Helstu áskor­anir Aldísar hefur verið sjálfs­vinnan, sér­stak­lega and­lega og lík­am­lega en sú vinna hefur haft í för með sér alls konar hæðir og lægðir.

Aldís Amah Hamilton er ein skærasta leik­kona á Íslandi í dag. Hún er dýra­vel­ferð­ar­sinni og akti­visti í hjá­verkum. Leik­konan góð­kunna kom í stutt en bráð­skemmti­legt spjall um það sem hún hefur verið að fást við síð­ustu miss­eri.

Lífstíll sem byggir á sam­kennd og virð­ingu
„90% af tím­anum mínum utan vinnu fer í að sitja í sóf­anum að spila tölvu­leiki eða hanga á Instagram, en hin 10% fara í að berj­ast fyrir vel­ferð þeirra sem minna mega sín og hvetja fólk til lífs­stíls sem bygg­ist á sam­kennd og virð­ingu fyrir öllum líf­verum.

Persónan Ryn úr tölvu­leik Myrkur Games

Ég flyt til Íslands þriggja ára gömul, í gamla Vesturbæinn þar sem ég hef búið meira og minna síðan. Þannig að ég er í raun lattelepjandi-listasmíðandi-miðbæjarVesturbæingur.“

Aldís hefur verið í 6 vikna pásu eftir síð­asta verk­efni en hún var við tökur á sjón­varps­þátta­röð­inni Svörtu Sandar, þar sem hún er með­höf­undur og aðal­leik­kona.

„Ég tók mér hvíld frá list­inni, ferð­að­ist til Póllands og er núna að koma mér rólega inn í næsta verk­efni. Ég leik aðal­hetju í tölvu­leik sem er á vegum Myrkur Games. Tökur eru dreifðar svo ég hef tíma þeirra á milli til þess að leita mér að inn­blæstri sem ger­ist aðal­lega með því að ég spila nóg af tölvu­leikjum sjálf og hlusta á hlað­vörp/bækur.“

Vantaði fjöl­breytni í leik­araflór­una
Aldís seg­ist að lokum hafa fengið áhuga á leik­list, en í grunn­inn lang­aði hana að vera söng­kona og dans­ari þegar hún var barn.

„En svo varð ég tán­ingur og upp­tekin af alls konar öðru en að æfa söng­list­ina og gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði þurft að æfa dans sam­hliða henni til að geta náð ein­hverjum árangri. Ég var á leið­inni í kín­verska við­skipta­fræði 22 ára þegar mér var bent á að Lista­há­skól­inn væri með prufur fyrir leik­ara­braut­ina. Ég var hvött til að taka þátt. Á svip­uðum tíma tók ég eftir að það vant­aði fjöl­breytni í leik­araflór­una hér­lendis og reyndar líka erlendis, sér­stak­lega í tölvu­leikjum á þeim tíma, svo ég ákvað að fara í pruf­urnar. Svo komst ég ein­hvern veg­inn í gegnum öll þrepin og inn í skól­ann. Þá var það of freist­andi að prófa þetta nám svo ég hætti við Kína og þar við sat.“

Það sem hefur komið Aldísi mest á óvart er hversu heppin hún hefur verið og tæki­færin sem henni hafa boð­ist.

Ljós­mynd­ari: Birta Rán Björg­vins­dóttir

„Án gríns þá hélt ég að ég þyrfti að berj­ast miklu meira fyrir því að fá þau hlut­verk sem ég hef fengið að leika. Ég var viss um að mín örlög yrðu að vera stöðugt í hlut­verki túrista eða ensku­mæl­andi starfs­manns á kassa. Ég hef hvor­ugt leikið þannig að kannski ætti það að vera næsta mark­mið.“

Mörg ár af ofvinnu og óhollum lífstíl
Atvinnu­lega séð er Aldís stolt­ust af sjón­varps­þátta­röð­inni Svörtu Sandar sem verða sýndir um næstu jól á Stöð 2. Í þátt­unum voru teknar miklar áhættur með sögu og per­sónu­sköpun og það virt­ist virka vel.

„Við þrýstum á ákveðin þol­mörk með því að fara á móti norm­inu og ég er ótrú­lega ánægð með okkur að hafa náð að skapa eitt­hvað nýtt. Þetta er fyrsta verk­efnið sem ég tek þátt í að skrifa, fyrir utan skóla­verk­efni, en satt best að segja hélt ég að ég hefði þetta ekki í mér. En per­sónu­lega er ég stolt­ust af því að hafa tekið ábyrgð á eigin heilsu og geð­heilsu sem hrak­aði mjög mikið eftir mörg ár af ofvinnu og óhollum lífstíl. Ég hef unnið mjög ötul­lega í átt að betri heilsu síð­asta árið og mun halda því áfram.“

Þau báru mig á herðum sér
Fyrsta árið í Lista­há­skól­anum var Aldísi mjög erfitt. Þessi tími var mik­ill umbreyt­ing­ar­tíma í hennar lífi og námið krafð­ist alls og miklu meira en hún gat gefið.

Ljós­mynd­ari: Saga Sig

„Ég flutti heim til for­eldra minna dag­inn áður en skól­inn byrj­aði með hund í fartesk­inu og allar mínar eigur. Þau vildu alls ekki fá dýr á heim­ilið á þeim tíma, en bless­un­ar­lega sigr­aði tíkin hug þeirra og hjörtu. Það er engum blöðum um það að fletta að án þeirra stuðn­ings, hjálpar, hvatn­ingar og skiln­ings hefði ég aldrei klárað námið. Þau báru mig eig­in­lega á herðum sér, ég sé það þegar ég lít til­baka. Ég ætl­aði að hætta eftir fyrsta árið, en ákvað bless­un­ar­lega að prófa eitt ár í við­bót og sé ekki eftir því.“

Það eru spennandi tímar framundan hjá Aldísi, en hún er í tökum á tölvuleik og verður það næstu 3 árin, með hléum.

„Ég vona svo að Svörtu Sandar fái hlýjar mót­tökur svo að við getum haldið áfram með sögu þeirra per­sóna, en svo er ég til­búin til þess að ferð­ast til útlanda á ný svo von­andi geri ég það á næst­unni. Og von­andi fæ ég, eða skapa mér sjálf, fleiri spenn­andi atvinnu­tæki­færi. Þess á milli ætla ég að halda áfram með fyrr­nefnda sjálfs­vinnu, leika mér í tölvu­leikjum, lesa meira, auka við upp­skriftaflór­una mína og jafn­vel fara af stað með blogg sem ég hef ætlað mér að gera síð­ustu fimm árin eða svo.“

Vera óhrædd við að biðja um hjálp
Að lokum ítrekar Aldís það og und­ir­strikar hversu mik­il­vægt það er að setja and­legu heilsu í for­grunn og vinna í sér ef nauð­syn krefur, eins erfitt og það getur verið. Að gefa sér til tíma í það. Því fyrr sem gripið er inn í, því styttra er í batann. Ef fólk skynjar að það er í vanda statt hvetur Aldís fólk til að vera óhrætt við að biðja um hjálp.

„Ég geri mér fulla grein fyrir því að ekki allir hafa traust stuðn­ings­net né búa svo fjár­hags­lega vel að geta sótt aðstoð en hvað sem þú getur gert, gerðu það. Hlaðvörp hafa til dæmis hjálpað mér svaka­lega, þau eru nán­ast ókeypis og fullt af fag­fólki sem gefur góð ráð. Bendi samt á að það þarf að vanda valið þar sem hver sem er getur búið til hlað­varp. Svo eru auð­vitað fullt af sam­tökum sem veita stuðn­ing og aðstoð gegn frjálsum fram­lögum. Einnig geta heim­il­is­læknar oft veitt góða aðstoð, líka sál­fræði­lega. Og svo mæli ég með því að bjóða fram aðstoð í fram­tíð­inni þegar fólk hefur tök á því. Það hjálpar líka til við að halda sér í bata.“

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ