Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Manndráp í Hafnarfirði: Hlöðver gerði lítið úr upplifun Sveins Inga og falaðist eftir meira samræði

Manndráp í Hafnarfirði: Hlöðver gerði lítið úr upplifun Sveins Inga og falaðist eftir meira samræði

Á milli jóla og nýárs árið 1996 drap ungur Hafn­firð­ingur, Sveinn Ingi Andr­és­son, Hlöðver S. Aðal­steins­son, við Krýsu­vík­ur­veg.

Þeir Sveinn Ingi og Hlöðver þekkt­ust en höfðu ekki verið í sam­bandi lengi; morðið var upp­gjör vegna kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar sem Hlöðver beitti Svein Inga þegar hann var á ung­lings­aldri.

Hlöðver var þekktur í Hafn­ar­firði fyrir að leita á unga drengi eða ung­lings­pilta og bauð þeim gjarnan áfengi til að freista þeirra. Altalað var í Hafn­ar­firði um langt skeið að Hlöðver, sem var alltaf kall­aður Hlölli Pomm, liti unga drengi girnd­ar­augum og var gjarnan varað við honum og ungum drengjum og ung­lingum ráð­lagt að hafa aldrei sam­skipti við hann nema að vera fleiri en einn og fleiri en tveir.

Sú var ekki raunin með Svein Inga. Hann átti ekki auð­velda æsku og var lagður í ein­elti í Víði­staða­skóla á meðan á skóla­göngu hans þar stóð.

Hann komst í kynni við Hlöðver sem mis­not­aði Svein Inga kyn­ferð­is­lega um tveggja ára skeið

Laug­ar­dags­kvöldið 28. des­em­ber árið 1996 hélt Sveinn Ingi partý og bauð vinum sínum heim. Þar var drukkið og djammað og ein­hver stakk upp á því að gera símaat í Hlöðveri. Nokkrir úr partý­inu hringdu í Hlöðver og fífl­uð­ust, en klukkan eitt um nótt­ina var haldið á skemmti­stað.

Sveinn Ingi ungi varð mjög drukk­innn þetta kvöld og þegar skemmti­staðnum var lokað gekk hann einn heim og hringdi þaðan í Hlöðver og bað hann að hitta sig. Klukkan fjögur þessa nótt lagði Hlöðver af stað á bílnum sínum, hvítri Lödu Sport, og á meðan beið Sveinn Ingi með hlaðna hagla­byssu.

Þegar Hlöðver og Sveinn Ingi hitt­ust var hlýtt en slag­veð­urs­rign­ing; hann gekk út í bíl til Hlöðvers með hlaðna byss­una og sett­ist frammí. Hann bað Hlöðver að aka suður úr bænum í átt að Krýsuvík og á afleggjar­anum þar stað­næmd­ist bíll­inn.

Við afleggjar­ann barst talið að for­tíð­inni; nánar til­tekið tólf árum fyrr, þegar Hlöðver hafði tælt Svein Inga með áfengi og tóbaki og mis­notað hann kyn­ferð­is­lega í kjöl­farið. Samkvæmt Sveini Ingi var sam­tal þeirra Hlöðvers rólegt og yfir­vegað en leikar æst­ust þegar Hlöðver gerði lítið úr upp­lifun Sveins Inga og fal­að­ist eftir frekara sam­ræði. Sveinn Ingi fór út úr bílnum til að kasta af sér vatni og Hlöðver gekk út á eftir, mjög æstur.

Þá sneri Sveinn Ingi sér við og hleypti skoti af sem hæfði Hlöðver í hægri hand­legg­inn, rétt ofan við oln­boga. Hlöðver tók á rás og hljóp yfir göt­una og faldi sig í svart­nætt­inu bak við veg­ar­brún. Ungi mað­ur­inn fór inn í Löduna hans Hlöðvers og ók henni í bæinn.

Daginn eftir, klukkan ell­efu um morg­un­inn, fannst lík Hlöðvers, um þrjú hund­ruð metrum norðar á veg­inum. Tveir lög­reglu­menn og sjúkra­bíll með lækni mættu á svæðið og var Hlöðver úrskurð­aður lát­inn á staðnum. Æðar höfðu farið í sundur og blóð­miss­ir­inn varð svo mik­ill að hann fór í lost og lést.

Hlöðver var með síma­núm­era­birti þar sem sást að hringt hafði verið í hann af heim­ili unga manns­ins um nótt­ina. Heima hjá Hlöðveri fannst blað þar sem á stóð nafn unga manns­ins og síma­númer. Leit hófst að bif­reið­inni sem fannst loks síð­degis bak við fisk­verk­un­ar­hús við Herj­ólfs­götu í Hafn­ar­firði.

Rann­sóknin beind­ist strax að unga mann­inum og var hann hand­tek­inn sam­dæg­urs. Hann vís­aði lög­reglu á Rem­ington-hagla­byss­una en neit­aði að hafa fram­kvæmt verkn­að­inn.

Dómari féllst ekki á gæslu­varð­hald og var Sveini Inga því sleppt. Lög­reglan hafði hann þó enn grun­aðan og rann­sókn máls­ins mið­að­ist við þann grun.

Lög­reglan hafði ýmis gögn til rann­sóknar. Í Lödunni fannst sígar­ettu­stubbur sem ein­hver hafði drepið í á mæla­borð­inu og var hann sendur út til Noregs til DNA-rann­sóknar. Nið­ur­stöð­urnar sýndu að níu­tíu og níu pró­sent líkur væru á því að munn­vatnið í stubbnum væri úr Sveini Inga. Á líki Hlöðvers fannst for­hlað, innan úr hagla­byssu­skoti, sem rann­sókn sýndi að pass­aði við hagla­byss­una sem Sveinn Ingi hafði notað. Þegar leyfi fékkst fyrir að skoða sím­hring­ingar sást að í níu skipti hafði verið hringt úr síma Sveins Inga til Hlöðvers þessa nótt.

Að fengnum þessum gögnum var ungi mað­ur­inn aftur hand­tek­inn í febr­úar og þá úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Hann þrætti hann fyrir verkn­að­inn, en þegar hann fékk að sjá gögnin ját­aði hann.

Sveinn Ingi sagð­ist hann hafa verið fórn­ar­lamb Hlöðvers frá þrettán til fimmtán ára ald­urs. Kyn­ferð­is­of­beldið hafi legið þungt á honum allar götur síðan og þarna í des­em­ber árið 1996 hafi hann verið langt niðri; ætlað að svipta sig lífi, en að hann hafi líka viljað mæta Hlöðveri og hræða hann. Þessa nótt hafi hann fengið tauga­á­fall og ákveðið að láta til skarar skríða. Hann sagði að eng­inn úr fjöl­skyld­unni hefði vitað af mis­notk­un­inni. En jafn­framt að það hafi aldrei verið ætlun hans að drepa Hlöðver og ef ein­hver annar hefði verið ákærður fyrir drápið hefði hann stigið fram og játað. Daginn eftir hafi hann ekki einu sinni vitað að Hlöðver væri lát­inn og því hafi hann hringt í síma Hlöðvers úr sjoppu. Gögn stað­festu að sú hring­ing átti sér stað.

Sveinn Ingi var þann 26. júní sama ár dæmdur til tíu ára fang­els­is­vistar. Var talið ólík­legt að Sveinn Ingi hafi ætlað sér að myrða Hlöðver, en hann hafi engu að síður mátt vita að svona gæti farið ef hann skyti í átt að honum með hagla­byssu á nokk­urra metra færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ