Guðni Már Henningsson, fyrrverandi útvarpsmaður, lést á heimili sínu í höfuðborg Tenerife, 69 ára að aldri. Þar hafði hann búið frá árinu 2018.
Þetta skrifar Anna Kristjánsdóttir í hlýjum minningarorðum um vin sinn, Guðna Má Henningsson.

„Guðni Már Henningsson.
Þegar ég flutti til Paradísar þekkti ég þrjár manneskjur sem bjuggu á Tenerife. Náfrænku mína, eiginmann hennar og Guðna Má Henningsson.
Guðna Má kynntist ég fyrir 40 árum er við unnum samtímis inni í Sundahöfn, ég við frystigámaeftirlit, hann á aksturdeildinni, en áður hafði hann unnið ýmis störf í hafnarvinnunni. Guðni var engum öðrum líkur, sífellt reytandi af sér brandarana og segjandi nýjar sögur.
Svo fór ég aftur út á sjó, Guðni hætti hjá Eimskip og við sáumst ekki í mörg ár, þó bjuggum við að einhverju leyti samtímis í Svíþjóð, hann í suður-Svíþjóð, ég í Stokkhólmi. Er ég kom heim árið 1996 endurnýjuðust kynnin fljótlega. Hann var þá byrjaður hjá Rás 2 nokkru áður, en að auki var hann í sambúð með Buggu bekkjarsystur minni í barnaskóla að Brúarlandi í Mosfellssveit.

Já Rás 2, þvílíkur útvarpsmaður sem Guðni var. Rödd hans var svo hljómfögur og þægileg í útvarpi og öll kvöldin sem hann var með Næturvaktina á Rás 2, lengst af á föstudagskvöldum, en síðustu árin á Rás 2 á laugardagskvöldum og öllum innhringjendum tók hann jafn fallega. Nokkrir innhringjenda hans eru enn fólki í fersku minni, Vagna Sólveig Vagnsdóttir á Þingeyri , Birgir Guðmundsson í Þorlákshöfn og fleiri. Ekki má heldur gleyma samtölum hans við Kela bónda á Snæfellsnesi í frægum sunnudagsþáttum sem hann sá um í nokkur ár. Hann hafði alltaf pláss fyrir hjartahlýtt fólk eins og hann var sjálfur og gerði ekki upp á milli fólks. Þá voru þættir hans á milli fjögur og sex á aðfangadag jóla algjört eyrnakonfekt.
Ég man ekki hvort það var haustið 2013 eða 2014 sem niðurskurðarhnífurinn var látinn tala hjá RÚV. Tveir uppáhaldsútvarpsmennirnir mínir á Rás 2 voru látnir taka pokann sinn auk margra annarra, Guðni Már Henningsson og Linda Blöndal. Linda fann sína fjöl á nýjum slóðum, en Guðni ekki. Hann var kominn yfir sextugt og heilsutæpur og slíkir fá ekki nýja vinnu á Íslandi. Á þessum tíma var hann í nýrri sambúð og átti litla dóttur, Steinu Elenu. Við vorum mörg sem sendum nýjum útvarpsstjóra skeyti þar sem við kvörtuðum yfir skorti á Guðna Má og að endingu var hann endurráðinn til verktöku sem þó var einungis örlítill plástur á sárin, en þá á laugardagskvöldum.
Ný sambúð gekk ekki og María og Guðni skildu að skiptum og að ráðum vina ákvað hann að breyta til, sagði upp á Rás 2 og flutti til Tenerife þar sem hann fékk þægilega íbúð í Santa Cruz. Ég heimsótti hann nokkrum sinnum þangað eftir að ég settist að á Tenerife sextán mánuðum á eftir Guðna. Þarna naut hann sín að vissu leyti, rölti niður að Römblunni um hádegisbil, fékk sér kaffi og spjallaði við barþjóninn Christian, studdi við betlarann Nikulás (nafnið örugglega rangt skrifað) sem hann titlaði útgefandann sinn að ritum sínum, átti góða stund með Paulu í apótekinu. Samt var ávallt eins og að eitthvað vantaði í líf hans. Kannski var hann einmana, ekki veit ég. Hann bar ekki tilfinningar sínar á torg þótt hann væri ávallt tilbúinn til að hlusta á annað fólk og rétta þeim hjálparhönd.
Guðni Már komst að því að Nicolas betlarinn hans sæi ákaflega illa. Sjálfur átti hann erfitt um vik með sín fátæklegu eftirlaun svo hann sendi beiðni út í kosmóið á Facebook og áður en langt um leið var hann búinn að fá fyrir tvennum vönduðum gleraugum fyrir Nikulás og gott betur sem fékk sín gleraugu og síðan mánaðarlegan styrk frá aðdáendum Guðna í nokkra mánuði eftir það.

Þarna var Guðni í essinu sínu. Alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum þótt hann þyrfti kannski sjálfur á stuðningi að halda með sín lélegu eftirlaun.
Fyrir fáeinum dögum kom vinur Guðna til Tenerife til að hjálpa við að ganga frá sjálfsævisögu Guðna til prentunar og Guðna sem var nýlega búinn að kaupa sér bíl langaði til sýna Rögnvaldi margt af því fallega sem þessi yndislega eyja hefur að bjóða í fegurð og sögu. Er Rögnvaldur kom til eyjarinnar var Guðni hvergi sjáanlegur. Hann svaraði ekki síma, né skilaboðum. Eftir tvo daga þar sem við vinir hans í Paradís gátum lítið gert þrátt fyrir vilja, var loks haft samband við ræðismann Íslands á Kanaríeyjum sem hafði samband við lögregluna sem braust inn til hans og kom að honum látnum, sennilega orðið bráðkvaddur á heimili sínu, enda hafði hann lengi verið heilsutæpur.
Okkur þykir miður að hafa misst Guðna Má Henningsson svona óvænt úr vinahóp okkar og viljum votta fjölskyldu hans og vinum okkar innilegustu samúð.“































Athugasemdir