Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Elís myrti móður Gunnars í Krossinum: „Vildi ekki drepa hana fyrir framan börnin“

Elís myrti móður Gunnars í Krossinum: „Vildi ekki drepa hana fyrir framan börnin“

Elís Helgi Ævarsson myrti Sig­ur­björgu Ein­ars­dóttur, móður Gunnars Þor­steins­sonar, oft­ast kenndur við Krossinn, í des­em­ber 1999. Hann var þá 26 ára gam­all og þau þekkt­ust ekki neitt.

Við rann­sókn máls­ins og yfir­heyrslu yfir Elís kom fram að við verkn­að­inn hafi hann verið í geð­veikis­á­standi og í raun ætlað að valda sjálfum sér sem mestum skaða. Fram að þessum tíma­punkti hafði hann ítrekað velt fyrir sér sjálfs­morði en end­aði á því að myrða Sig­ur­björgu í stað­inn.

Helber tilviljun

Sig­ur­björg var rúm­lega átt­ræð og bjó í Espi­gerði 4 í íbúð á 7. hæð. Föstu­dags­kvöldið 3. des­em­ber 1999 var hún myrt á hrotta­legan hátt, með hnífi og bar­efli. Sig­ur­björg var stungin 14 sinnum í háls og bak, skorin á háls og slegin með styttu í höf­uðið.

Elís bjó hjá móður sinni á næstu hæð fyrir ofan Sig­ur­björgu. Þau þekkt­ust ekk­ert og svo virð­ist sem algjör til­viljun hafi ráðið því að Sig­ur­björg varð fórn­ar­lamb hans klukkan 20 þetta örlaga­ríka kvöld.

Samkvæmt frétta­flutn­ingi DV á sínum tíma gaf Elís sig ekki strax fram eftir morðið en gerði þó enga sér­staka til­raun til að hylja slóð sína heldur. Á fötum hans fund­ust blóð­slettur og blóðug fót­spor hans á morð­vett­vangi. Eftir nokk­urra daga yfir­heyrslur ját­aði Elís morðið.

Í maí árið 2000 var Elís dæmdur í 16 ára fang­els­is­vist.

Sturlaður

Þetta kvöld var Elís undir áhrifum marg­vís­legra vímu­gjafa, s.s. áfengis, kóka­íns, amfetamíns og e-taflna. Hann yfir­gaf heim­ili sitt síð­degis þennan dag með þeim ásetn­ingi að ætla að vinna ein­hverjum mein.

Fyrst hringdi Elís dyra­bjöll­unni beint á heim­ili móð­ur­innar. Þar bjó líka gömul kona en hjá henni voru gestir þannig að Elís hætti við morð þar. Hann hélt hins vegar áfram og fór þá niður á næstu hæð. Þá valdi hann dyr Sig­ur­bjargar af handa­hófi.

Elís spurði gömlu kon­una hvort hann gæti kom­ist í síma hjá henni en réðst að Sig­ur­björgu um leið og hún sneri frá dyr­unum. Eftir morðið stal hann 2-3.000 krónum úr veski gömlu kon­unnar.

Afplánaði í Byrginu

Elís átti að baki langa sögu eit­ur­lyfja­neyslu og afbrota. Hann fór fyrst í með­ferð 16 ára gam­all en virð­ist aldrei hafa náð neinum tökum á vímu­lausu lífi. Á bak­inu var Elís með fjöl­marga dóma fyrir lík­ams­árásir og brot á fíkni­efna­lögum.

Elís myrti Sig­ur­björgu í Espi­gerði og hlaut fyrir það 16 ára dóm. Morðið vakti mik­inn óhug á
sínum tíma. Eftir eitt ár á Litla-Hrauni var hann fluttur á rétt­ar­geð­deild­ina að Sogni. Þremur árum seinna var Elís fluttur á með­ferð­ar­heim­ilið Byrgið þar sem hug­myndin var að honum gæf­ist kostur á end­ur­hæf­ingu. „Hér get ég byggt mig upp og skapað nýjan mann,“ sagði Elís í sam­tali við DV og sagð­ist þá hafa þegið fyr­ir­gefn­ingu Gunnars í Kross­inum.

„Hérna líður mér vel,“ sagði Elís í her­bergi sínu í Byrginu. Um morðið hafði hann þetta að segja:

„Ég var vit­stola brjál­æð­ingur, nýdott­inn í það. Áður en þetta gerð­ist hafði ég náð mér á
nokkuð gott strik. Mér fannst hlut­irnir vera farnir að skýr­ast.“

Stórir skammtar

En svo féll Elís í harða neyslu. Skammt­arnir sem hann tók voru stórir og tíu daga neyslut­úr­inn end­aði með skelf­ingu. Með morð­inu á Sig­ur­björgu.

„Ég sat úti á svölum. Útúr­dóp­aður. Með The Mercy Seat með Nick Cave á
fón­inum. Ætli ég hafi ekki setið svona í eina átta tíma. Mig lang­aði að deyja en þorði ekki að svipta mig sjálfur lífi. Ég átti enga vini. Enga lykla að heim­ili. Þarna átti ég ekki
neitt.“

Leiðin út var sú að gera eitt­hvað nógu hræði­legt. Elís stóð upp, slökkti á græj­unum og gekk út úr íbúð­inni. Hann seg­ist fyrst hafa bankað á eina hurð og kona komið til dyra. Allt hefði verið fullt af börnum og blöðrum og hann hélt að barna­af­mæli væri í gangi. Frá morð­inu man hann ekki neitt.

„Ég hélt á hnífnum í hend­inni en vildi ekki drepa hana fyrir framan börnin. Ákvað í stað­inn að berja á næstu hurð. Seinna komst ég að því að það voru engin böm. Ekkert afmæli. Ég sá ekki neitt; vissi ekki neitt. Ég man ekki einu sinni hvernig and­litið á Sig­ur­björgu leit út. Kannski á það eftir að rifj­ast upp síðar.“

Mikilvægt faðmlag

Þegar Elís myrti í Espi­gerði var sonur hans fimm ára gam­all. Ungi dreng­ur­inn er ástæða þess að hann ákvað að lifa í stað þess að taka eigið líf í afplán­un­inni. Annar vendi­punktur í ferl­inu var afar mik­il­vægt faðm­lag, frá Gunnari í Kross­inum sem heim­sótti Elís á Sogni.

„Þegar ég sá hann brotn­aði ég niður og grét. Ég baðst fyr­ir­gefn­ingar og hann tekur utan um mig og veitir mér fyr­ir­gefn­ingu. Hann gerði mér kleyft að taka næsta skref. Þegar hann
hafði fyr­ir­gefið mér gat ég hafið þá vinnu að fyr­ir­gefa sjálfum mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð