Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Hvað þýða rísandi merkin?

Hvað þýða rísandi merkin?

Oft er talað um rísandi merkin í stjörnu­speki sem þá grímu sem við sýnum heim­inum. Rísandi merki okkar er talið vera sú orka sem við komum fyrst með inn í her­bergi og ein­kenni merk­is­ins eru þau sem við sýnum fólki oft­ast við fyrstu kynni. Segja má að rísandi merki okkar sé ákveðið upp­haf – sú hula sem liggur yfir okkur þegar við eigum sam­skipti við nýtt fólk eða tök­umst á við ný verk­efni.

Ekki eru allir skólar stjörnu­spek­innar sam­mála um mik­il­vægi rísandi merk­is­ins. Hér verður hins vegar tekin sú nálgun að mik­il­vægi rísandi merk­is­ins sé nokkuð meira en bara sem gríma og orkan sem er ber­sýni­leg við fyrstu kynni.

Rísandi merkið getur nefni­lega haft dýpri áhrif á okkur og sumir segja það jafn­vel hafa mikið að gera með sál­ina – og að því meira sem við lærum að halla okkur að rísandi merki okkar, því meiri sál­arró getum við fundið.

Oft er talað um að rísandi merkið sé greini­legra þegar við erum yngri og ummerki þess máist meira út eftir því sem við eld­umst. Það er okkur þá hugs­an­lega holl­ara að reyna að halda í það – eins og að halda í barnið í okkur.

Rísandi merkið í stjörnu­korti okkar finnst aðeins með nákvæmum fæð­ing­ar­tíma (hver mín­úta skiptir máli) og fæð­ing­ar­stað.

Rísandi merkin

Hrútur

Fólk með rísandi Hrút hefur yfir sér afar eld­fima orku. Það æðir með höf­uðið á undan inn í aðstæður og fram­kvæmir áður en það hugsar. Þetta fólk er bein­skeytt og dembir sér af krafti í verk­efni og hugð­ar­efni.

Rísandi Hrútar geta verið með dálítið hvassar brúnir og senni­lega myndu þeir vera sagðir margt annað áður en ein­hverjum dytti í hug að kalla þá fág­aða. Þeir virð­ast á ein­hvern hátt upp­fullir af æsku og geta verið nokkuð barna­legir í nálgun sinni á hluti – en það er aðeins vegna ein­lægni þeirra og sterkra tengsla við sitt innra barn.

Öll við­brögð rísandi Hrúta eru hröð – þeir reið­ast hratt en eru líka fljótir að jafna sig. Þetta eru keppn­is­mann­eskjur sem setja mikla pressu á sjálfar sig.

Rísandi Hrútar eru yfir­leitt bros- og hlát­ur­mildir.

Naut

Rísandi Naut koma með jafna og jarð­tengda orku með sér inn í her­bergi. Þau eru stöðug og við­brögð þeirra eru í hæg­ara lagi, oft úthugsuð. Það er ákveðin mýkt sem fylgir þeim, á sama tíma og þau eru ákveðin og föst fyrir.

Það er yfir­leitt fljót­lega ljóst í sam­skiptum við rísandi Naut að þeim verður ekki auð­veld­lega haggað: þau eru eins og stór og sterk tré með djúpar og miklar rætur sem ná langt ofan í jörð­ina.

Rísandi Naut eru heið­ar­leg og hrein­skilin. Þau kjósa að segja hlut­ina beint út og kunna að meta það þegar aðrir eru hrein­skilnir við þau.

Rísandi Naut þrá öryggi og geta brugð­ist illa við hröðum breyt­ingum. Þau eru ein­stak­lega vana­föst og geta auð­veld­lega fest sig í gömlum hjól­förum. Þau eru var­kár og vilja þreifa vand­lega fyrir sér áður en þau taka ákvarð­anir.

Naut eru í eðli sínu nautna­seggir og rísandi naut leyfa sér yfir­leitt tölu­vert þegar kemur að lífs­ins lystisemdum. Jafnvel um of.

Rísandi Naut kunna að meta þæg­indi og elska að klæða sig í föt úr gæða­efnum sem er nota­legt að klæð­ast. Þau eru oft þeirrar skoð­unar að lífið sé of stutt fyrir óþægi­lega skó.

Tvíburi

Rísandi Tvíburi er með úthverfa og lif­andi orku. Hann er félags­lyndur og for­vit­inn. Rísandi Tvíburi elskar að læra nýja hluti og helst vill hann gera það í félags­legu sam­neyti við aðra. Hann er sífellt á ferð og flugi og getur verið dálítið óstýri­látur. Hann unir sér yfir­leitt ekki á sama staðnum lengi í einu. Hann elskar fjöl­breytni og hann er ein­stak­lega áhuga­samur um mann­lífið.

Fólk með rísandi Tvíbura þarf yfir­leitt mikla félags­lega og vits­muna­lega örvun. Fái það hana ekki getur það orðið afar eirð­ar­laust og van­sælt.

Rísandi Tvíburar geta virkað óþol­in­móðir í sam­skiptum við aðra, án þess að ætla sér það. Þeir eiga það líka til að leggja of mikla áherslu á huga sinn og vits­muni og gleyma að næra sjálfa sig og aðra til­finn­inga­lega. Þannig geta þeir stundum virst til­finn­inga­lega kaldir.

Rísandi Tvíburar eru ein­stak­lega snjallir og færir í sam­skiptum. Þeir geta verið frá­bærir mála­miðl­arar, því þeir eiga afar auð­velt með að setja sig inn í mis­mun­andi skoð­anir og hliðar. Hugur rísandi Tvíbura er yfir­leitt á fleygi­ferð.

Krabbi

Rísandi Krabbar hafa inn­hverfa og hlýja orku. Þeir mæta ekki með látum í veislur, heldur nálg­ast fjöl­menni var­lega og eru yfir­leitt þeir sem standa úti í hornum eða með veggjum, að tala við einn eða tvo í einu.

Rísandi Krabbar eru ein­stak­lega næmir á umhverfi sitt og annað fólk. Þeir eiga það til að taka hluti inn á sig og eru auð­særðir. Þeir bregð­ast gjarnan við óvæntum aðstæðum eða ógn með því að draga sig inn í skel. Sumir rísandi Krabbar geta virst lok­aðir, en það er ein­ungis þeirra varn­ar­ráð til að vernda eigin til­finn­ingar og orku.

Rísandi Krabbar nálg­ast fólk yfir­leitt með umhyggju; orka þeirra getur verið nokkuð móð­ur­leg.

Fólk með rísandi Krabba þráir öryggi og elskar að búa sér gott hreiður þar sem það getur hlaðið sig og safnað orku fyrir þau átök sem dag­legt líf og sam­skipti geta verið. Þau eru yfir­leitt ekki mikil partíljón og eru hrifn­ari af því að halda sig heima í róleg­heitum.

Ljón

Rísandi Ljón hafa sterka, raf­magn­aða orku og mikið aðdrátt­ar­afl. Orkan frá þeim er úthverf og þau eru félags­lynd. Það er yfir­leitt bjart yfir þeim og þau vekja athygli hvert sem þau fara. Þau eiga það til að vera hávær og með mik­inn sprengi­kraft.

Rísandi Ljónum er yfir­leitt nokkuð umhugað um útlitið – þá sér­stak­lega hárið á sér. Hafi þau á annað borð hár­vöxt til þess eru þau gjarnan með fal­legt hár og eyða miklu púðri í að hafa það áber­andi.

Rísandi Ljón bregð­ast yfir­leitt hratt við í aðstæðum og er gjarnan hætt við skapofsa­köstum. Þau reið­ast oft nokkuð hratt en eru sömu­leiðis fljót aftur niður. Þau eru hvat­vís og fram­kvæma oft áður en þau hugsa.

Rísandi Ljón eru upp­full af drif­krafti, fram­kvæmda­gleði og ástríðu. Þau eiga það til að vera stjórn­söm og geta verið ansi þrjósk.

Rísandi Ljón eru yfir­leitt aðgengi­leg við fyrstu kynni og fólk dregst að þeim úr öllum áttum. Ljón krefj­ast athygli og fá hana oft­ast, en þau hafa mikla þörf fyrir að láta dást að sér. Þau geta verið nokkuð dramat­ísk.

Rísandi Ljón eru oft­ast hlý, ein­læg og skemmt­a­naglöð.

Meyja

Rísandi Meyjur hafa yfir sér inn­hverfa og jarð­tengda orku. Þær eru gjarnan ákveðnar og bein­skeyttar. Oft eru rísandi Meyjur nokkuð feimnar og þær þurfa tíma til að bregð­ast við hlutum. Þær eru afar hugs­andi og þurfa að fá að taka sinn tíma í að velta hlutum fyrir sér. Þær eru gjarnan praktískar og ana ekki út í neitt að óyf­ir­lögðu ráði.

Þeir ein­stak­lingar sem eru með rísandi Meyju geta stundum virst kaldir og fólk getur upp­lifað að það sé erfitt að nálg­ast þá. Það er þó ekki til­fellið, heldur eru þessir ein­stak­lingar yfir­leitt lok­aðir og feimni þeirra og til­hneig­ing til að vilja úthugsa fólk og aðstæður gerir það að verkum að aðrir mis­skilja þá gjarnan á þennan hátt.

Fólk með rísandi Meyju er afar með­vitað um lík­ama sinn. Það er fljótt að finna þegar eitt­hvað amar að því og hugsar gjarnan mikið um heilsu, bæði and­lega og lík­am­lega.

Rísandi Meyjur kunna sig í sam­skiptum við aðra og hafa fágað yfir­bragð. Þeim mis­líkar dóna­skapur mjög, sem og þegar fólk kann sig ekki í félags­legu sam­hengi. Rísandi Meyjur geta verið ansi áhyggju­fullar. Þær eru traustar og hjálp­samar.

Vog

Rísandi Vogir koma með hlýja og vina­lega orku hvar sem þær koma. Það er gott að vera í kringum þær og það er ára yfir þeim sem hefur góð áhrif á aðra. Þær fara áreynslu­laust í gegnum félags­legar aðstæður og eiga ekki í neinum vand­ræðum með að blanda geði við aðra. Þær eru heill­andi og fólk dregst að þeim.

Ein­stak­lingar með rísandi Vog vilja yfir­leitt hafa alla góða. Þeir eru sátta­semj­arar í eðli sínu og ein­stak­lega færir í mann­legum sam­skiptum. Ef þeir vara sig ekki geta þeir þó orðið með­virkir og of háðir hegðun og við­brögðum ann­arra. Það er þeim auð­velt að sökkva inn í annað fólk, hugs­anir þeirra, hegðun og skoð­anir. Þannig geta rísandi Vogir týnt sjálfum sér ef þær fara ekki að með gát.

Rísandi Vogir eru list­rænar í eðli sínu og fólk heill­ast með þeim af hugð­ar­efnum þeirra. Þær eru fág­aðar í tali og fasi. Það er ein­stak­lega auð­velt að nálg­ast þær og félags­lega getur verið sterkur leikur að halda sig nálægt þeim, þurfi maður stuðn­ing. Rísandi Vogir geta verið dálítil fiðr­ildi og þær eru gjarnan óákveðnar. Þær eiga stundum erfitt með að tjá skoð­anir sínar og að standa fast á þeim.

Fólk með rísandi Vog er töfr­andi og hugs­andi.

Sporðdreki

Orka rísandi Sporð­dreka er sterk, dul­ar­full, inn­hverf og íhugul. Rísandi Sporð­drekar búa yfir miklu aðdrátt­ar­afli. Það er oft ákveðið myrkur yfir þeim.

Rísandi Sporð­drekar hafa yfir sér mátt­uga áru og fá yfir­leitt ósjálfrátt virð­ingu frá fólk­inu í kring. Þeir þurfa ekki að biðja um eða fal­ast eftir henni sér­stak­lega. Þeir eru fastir fyrir og stundum getur þrjóska þeirra komið þeim í koll.

Ein­stak­lingar með rísandi Sporð­dreka elska að fara á dýpt­ina og fyr­ir­líta allt yfir­borðs­hjal. Þeir fara yfir­leitt ekki í gegnum lífið án þess að eftir þeim sé tekið og þeir vekja gjarnan sterk við­brögð hjá fólki. Sumum þykir þeir spenn­andi og heill­andi, á meðan öðrum stendur stuggur af þeim.

Rísandi Sporð­drekar virð­ast stundum horfa í gegnum við­mæl­endur sína og kom­ast fram hjá grímum og yfir­borðs­skrauti fólks. Þeir kunna afar illa við yfir­borðs­mennsku.

Rísandi Sporð­drekar eru oft­ast með sterkan augna­svip og ein­hvern óræðan neista í augum sínum. Þeir leita sífellt svara í sam­skiptum við aðra og eru næmir á fólk og umhverfi sitt. Stundum er eins og þeir lesi aðra eins og opna bók, jafn­vel við fyrstu kynni. Það getur virkað frá­hrind­andi á suma. Rísandi Sporð­drekar geta líka verið stjórn­samir og þeir eiga oft erfitt með að hleypa fólki að kjarna sínum. Þeir geta því virst lok­aðir.

Rísandi Sporð­drekar eru úthugs­andi og geta jafn­vel verið dálítið útsmognir. Þeir bregð­ast ekki við af hvat­vísi, heldur skipu­leggja hvern leik fram í tím­ann og eru sér­fræð­ingar í kænsku.

Bogmaður

Orkan frá rísandi Bog­mönnum er úthverf og opin. Þeir eru glað­legir í fasi og vekja athygli á hverjum stað. Þeir geta verið háværir og fyr­ir­ferð­ar­miklir.

Rísandi Bogmenn eru opnir í sam­skiptum og félags­lyndir. Þeir eru oft hvat­vísir og búa yfir lífs­gleði sem ekki er hægt að finna hjá mörgum í sama magni. Þeir fara inn í allar aðstæður og verk­efni með sprengi­kraft og áhuga. Þeir eru ævin­týra­menn og land­könn­uðir í eðli sínu.

Það er yfir­leitt ekki sterka hlið rísandi Bogmanna að klára verk­efni og halda hlutum til streitu – en þeir eru snill­ingar í að byrja á nýjum verk­efnum og fá hug­myndir.

Ein­stak­lingur með rísandi Bogmann er ákafur og for­vit­inn. Hann elskar að læra eitt­hvað nýtt, hvort sem það teng­ist fólki eða hlutum. Honum leið­ist ekki að vitna í það sem hann hefur lært. Hann elskar ferða­lög og að upp­götva nýja staði.

Rísandi Bogmenn hafa hraða orku og eru yfir­leitt stans­laust á ferð og flugi. Það getur reynst þeim flókið að staldra of lengi við á hverjum stað. Fjöl­breytni er algjört lyk­il­at­riði í lífi þeirra. Þeir hafa afar sterkar skoð­anir og geta verið dálítið þverir. Þeir veigra sér alls ekki við því að leyfa öllum að heyra hvað þeim finnst um þetta og hitt. Þeir geta stundum verið dálítið barna­legir í afstöðu sinni. Þeir eru gjarnan með frekar slæmt tíma­skyn og eru oft of seinir.

Rísandi Bogmenn búa yfir sjálfs­trausti og eru yfir­leitt jákvæðir og bjart­sýnir. Þeir geta reynst öðrum vel þegar finna þarf björtu hlið­arnar í aðstæðum. Þeir hafa gott skop­skyn.

Steingeit

Rísandi Stein­geit ber með sér alvar­lega, jarð­bundna og sterka orku. Hún nær yfir­leitt árangri í því sem hún tekur sér fyrir hendur og kemur ávallt mjög fag­mann­lega fyrir. Fólk efast sjaldn­ast um hæfni rísandi Stein­geita og yfir­bragð þeirra krefst virð­ingar hvar sem þær koma.

Ein­stak­lingar með rísandi Stein­geit hafa oft gott skop­skyn, en ekki á glað­lyndan og aug­ljósan hátt. Þeir eru yfir­leitt frekar kald­hæðnir og stekkur ekki bros þegar þeir segja brand­ara. Þeir eru sömu­leiðis góðir í alls konar skotum á aðra, en veigra sér ekki heldur við að gera grín á eigin kostnað.

Rísandi Stein­geitur eru yfir­leitt mjög ábyrgar, sem getur orðið til þess að þeim er treyst fyrir ýmsum verk­efnum og mik­ils ætl­ast til af þeim frá unga aldri. Jafnvel of mik­ils. Þær þríf­ast í venjum og strúktúr. Öryggi er þeim mik­il­vægt í líf­inu, bæði hvað varðar áþreif­an­lega hluti og óáþreif­an­lega.

Þær geta virst kaldar á yfir­borð­inu, en undir niðri eru þær áhyggju­fullar. Þeim finnst þær aldrei vera að gera nóg eða standa undir vænt­ingum. Þær vilja sífellt betrumbæta það sem þær taka sér fyrir hendur.

Við fyrstu kynni virkar Stein­geit traust­verðug og ákveðin, en getur líka verið hörð í horn að taka. Í henni blundar við­skipta­maður og hún vill alltaf eiga nóg í sig og á. Hún á auð­velt með að neita sér um hluti, en er til­búin til að eyða pen­ingum á „réttum“ stöðum, til dæmis í föt sem sýna fram á stöðu hennar.

Vatnsberi

Rísandi Vatns­berar hafa ein­staka orku; óvenju­lega, frum­lega og ögrandi. Þeir hafa gaman af því að sjokkera aðra, þó ekki á jafn úthverfan hátt og sum önnur rísandi merkj­anna.

Ein­stak­lingar með rísandi Vatns­bera eru afar hugs­andi og klárir. Þeir sökkva sér í ýmsan fróð­leik og fara í gegnum lífið með for­vitni að leið­ar­ljósi. Þeir eru oft vel lesnir. Þeir elska að rýna í rann­sóknir, hug­tök og tölur og eru afar grein­andi.

Rísandi Vatns­berar eru hnyttnir og geta verið dálítið kald­hæðnir. Þeir eru afar sam­fé­lags­lega þenkj­andi og hugsa yfir­leitt um þarfir fjöld­ans frekar en þarfir ein­stak­lings­ins. Þeim ferst vel að starfa á sviði mann­úð­ar­mála. Sam­fé­lagið og mann­skepnan heillar Vatns­ber­ann mjög.

Rísandi Vatns­berar eru yfir­leitt vina­legir í við­kynn­ingu og afslapp­aðir. Þeir þurfa á frelsi og rými að halda til að blómstra. Þeir geta verið ansi þjóskir og fastir fyrir. Skoðunum þeirra verður ekki haggað svo auð­veld­lega.

Þeir skoða heim­inn og annað fólk með for­vitnum augum og eiga það til að virð­ast aftengdir í sam­skiptum. Það er vegna þess að þeir geta sett allar til­finn­ingar til hliðar þegar þeir meta hlut­ina. Þeir geta þó gleymt að rækta til­finn­inga­ver­una innra með sér og nálg­ast náin sam­bönd og til­finn­ingar ann­arra örlítið kulda­lega.

Oft er talað um rísandi Vatns­bera sem hálf­gerðar geim­verur. Þeir eru óhefð­bundnir og kæra sig koll­ótta um hvað öðrum finnst um þá. Þrátt fyrir þetta eru þeir snjallir í sam­skiptum og búa yfir aðdrátt­ar­afli sem tekið er eftir.

Fiskar

Rísandi Fiskar hafa yfir sér djúpa, blíða og inn­hverfa orku. Þeir eru síbreyti­legir og ferð­ast með straumnum frá degi til dags. Þeir eru afar til­finn­inga­lega þenkj­andi og hugur þeirra er opinn.

Ein­stak­lingur með rísandi Fiska er skap­andi, við­kvæmur draum­óra­maður. Hann á það til að týna sér í dagdraumum og hugs­unum á borð við „hvað ef?“.

Rísandi Fiskar geta virst rólegir og inn í sig, en annan dag eru þeir stór­huga og ástríðu­fullir. Þeir eru dálítið eins og synd­andi fiskar í sjó, fljót­andi til og frá í straumnum – stundum í úfnum sjó og stundum stilltum.

Rísandi Fiskar hafa hlýtt hjarta og eru ljúfir við sína nán­ustu. Það er yfir­leitt nokkuð áreynslu­laust að nálg­ast rísandi Fiska, þeir eru heill­andi og nær­vera þeirra getur verið afar róandi.

Þeir geta verið dálítið leit­andi og eirð­ar­lausir. Ákvarð­ana­taka er langt frá því að vera þeirra sterkasta hlið og stundum þurfa þeir að hrista sig til, ef þeir vilja ekki fljóta sof­andi að feigðar­ósi. Þeir eru með höf­uðið í skýj­unum flesta daga og ára þeirra er draum­kennd og yfir­nátt­úru­leg á stundum.

Rísandi Fiskar forð­ast yfir­leitt átök eins og heitan eld­inn. Þeir kjósa ávallt frið­semd.

Rísandi Fiskum reyn­ist oft erfitt að falla inn í mót sam­fé­lags­ins og þeir spjara sig best hafi þeir nægi­legt frelsi og fjöl­breytni í líf­inu.

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ