Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur eins og alþjóð veit verið undir rannsókn hjá lögreglunni í Manchester frá því í sumar.Gylfi var handtekinn vegna gruns um brot gegn ólögráða barni en hefur gengið laus gegn tryggingu í nokkra mánuði.Tilkynnt var fyrir nokkru að mál hans væri á dagskrá 16. október, en þar sem sá dagur er laugardagur gæti málið verið tekið fyrir á morgun, ef ekki, þá á mánudaginn.Ekkert hefur heyrst frá Gylfa eða fjölskyldu hans og vinum frá því hann var handtekinn.Hins vegar gæti vel farið svo að mál Gylfa leysist ekki fljótt því engin tímamörk eru á slíkum málum í Bretlandi.Ljóst er að íslenska þjóðin bíður með öndina í hálsinum eftir að mál þetta muni skýrast enda Gylfi einn vinsælasti íþróttamaður Íslands frá upphafi.































Athugasemdir