Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sóley er neytandi vikunnar: „Hærri sykurskatt og lækka enn meira verð á grænmeti og ávöxtum“

Sóley er neytandi vikunnar: „Hærri sykurskatt og lækka enn meira verð á grænmeti og ávöxtum“
Sóley Stef­áns­dóttir

Sóley Stef­áns­dóttir er tón­list­ar­kona og tón­skáld. Hún er líka tón­listar- og tón­smíða­kenn­ari. Hún hefur gefið út mikið af tón­list sem sólólista­maður undir nafn­inu Sóley, með hljóm­sveit­inni Seabear og með Sin Fang og Örvari Smára­syni, en það sam­starf gat af sér plöt­una Team Dreams.

Nýjasta plata Sóleyjar, Mother Melancholia, kemur út 22. októ­ber næst­kom­andi og í kjöl­far útgáf­unnar heldur hún af stað í tón­leika­ferða­lag til Evrópu í nóv­em­ber.

Sóley býr í Vest­ur­bænum ásamt sam­býl­is­manni, sjö ára dóttur og ketti. Hún er græn­keri og nátt­úru- og dýra­vernd­un­ar­sinni af lífi og sál.

Sóley er neyt­andi vik­unnar hjá Mannlífi.

Hvar kaupir þú eða fjölskylda þín helst inn mat og rekstrarvörur til heimilisins og hversu mikill er sá kostnaður að jafnaði á mánuði?

Við búum rétt hjá Grand­anum þar sem við erum með Krónuna, Bónus, Nettó, Hagkaup á Eiðis­torgi og svo auð­vitað Mela­búð­ina. Þannig að ég er með system, kaupi ódýra hluti í Bónus, tek stærri inn­kaup í Krónunni og fer í Nettó, Hagkaup og Mela­búð­ina fyrir sér­vöru.

Svoldið beisik en úti um allt, en þannig virkar líka græn­kera­lífs­stíll­inn, það eru ekki sömu vörur í öllum búðum. Ég er ekki með á hreinu hvað við eyðum í mat á mán­uði. Ég elska mat og ég elska líf­rænt og holla mat­vöru og því miður þá er hún bara frekar dýr.

Hvaða aðferðum beitir þú til að nýta mat sem best?

Borða afganga og pakka mat vel í góð box eða krukkur.

Hvert er þitt helsta sparnaðarráð?

Ég spara mest í mat þegar ég ákveð fyr­ir­fram fyrir vik­una hvað á að vera í mat­inn. Þá kíki ég í fryst­inn og kíki á hvaða baunir og græn­meti ég á og vinn mig í gegnum vik­una með til­liti til hversu stutt græn­metið á eftir.

Er allt rusl flokkað heima hjá þér? Ef svo er, hvaða verklag hefur reynst þér eða fjölskyldu þinni best til að tryggja að allt rusl sé flokkað?

Já, við flokkum almennt rusl, plast, pappír, gler og flöskur. Við erum með stóra rusla­skúffu fyrir almennt rusl, plast og pappír og fyrir utan húsið erum við með græna, bláa og almenna tunnu. Það er grennd­ar­gámur í nálægð við húsið fyrir bæði gler og flöskur sem við löbbum bara með og svo er Sorpa auð­vitað bara í næsta nágrenni, þannig að við höfum enga afsökun!

Hvaða hreinsiefni eru notuð heima hjá þér?

Ég nota aðal­lega hreinsi, þvotta­efni og sápur frá Sonnet sem ég kaupi í Nettó eða Mela­búð­inni en það detta líka oft inn ein­hver ekó hreinsi­efni í Krónuna og Bónus sem ég prófa gjarnan. Svo nota ég mat­ar­sóda og edik mjög mikið. Átti til dæmis ekki kló­sett­hreinsi og próf­aði að setja smá mat­ar­sóda og edik í kló­settið og það virk­aði líka svona vel!

Kaupir þú helst ný eða notuð húsgögn?

Bæði ný og notuð. Og fæ gef­ins. Við reynum bara að vera með­vit­aðir neyt­endur í hvert skipti sem okkur vantar eitt­hvað eða langar í. Ég reyni oft fyrst að finna hlut­inn not­aðan og ef ég hef leitað í nokkrar vikur án árang­urs þá förum við bara í einn skömm­ustu-kap­ít­al­ískan leið­angur í IKEA. Ég elska líka Söstrene Grene og úff, ég ræð ekki við það.

Átt þú bíl? Hve miklu eyðir þú að jafnaði í samgöngur á mánuði? 

Já, við erum með einn bíl. Ég kenni á mis­mun­andi stöðum, er á æfingum þar sem ég þarf að róta hljóð­færum um allan bæ og oft í mis­mun­andi verk­efnum þannig að eins og er er eini kost­ur­inn fyrir mig að vera á bíl. En svo koma dagar sem ég snerti ekki bíl­inn, ef ég vinn heima til dæmis.

Þess vegna er stað­setn­ingin í Vest­ur­bænum sem við búum á alveg æðis­leg. Það er allt til alls: mat­vöru­búðir, Byko og fleira, Sorpa, sund­laug, sjór­inn, fjara, mið­bær­inn, kaffi­hús. Draum­ur­inn er að eign­ast raf­magns­bíl, auð­vitað. Ég eyði svona ca 15.000 krónum í bíl­inn á mán­uði.

Leggur þú fyrir? Ef svo er, í hvaða formi er sparnaðurinn?

Ég legg fyrir smá pen­ing á mán­uði, fer inn á annan reikn­ing.

Hvernig finnst þér verðlag á Íslandi?

Ísland er rosa­lega dýrt, að mínu mati. Ég er nátt­úr­lega lista­maður. Þannig að ég þekki ekki þessi með­al­laun sem talað er um í land­inu!

En ég er samt heppin og með fullt af verk­efnum og kenni. Ég er svo mikil áhuga­kona um góðan og hollan mat að mér finnst kannski sorg­leg­ast að þurfa að eyða svona miklum pen­ingi í mat sem ég tel líka vera ákveðnar lífs­stíls­for­varnir.

Ert þú með fasteignalán? En önnur lán? 

Við eigum íbúð og erum með fast­eigna­lán. Engin önnur lán.

Hvaða breytingu myndir þú vilja sjá sem neytandi?

Það er sama gamla græn­kera­tuggan. Meiri styrki í nýsköpun og til græn­met­is­bænda. Meiri vöru­þróun á Íslandi. Færa land­bún­að­inn að miklu leyti frá dýra­rækt og yfir í græn­meti, korn, baunir og fleira.

Við erum með alls konar fólk sem er með frá­bærar hug­myndir. Hærri syk­ur­skatt og lækka enn þá meira verð á græn­meti og ávöxtum. Pakki af kexi ætti að kosta 1.500 krónur svo við kaupum það bara spari. Bættari almenn­ings­sam­göngur auð­vitað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð