Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hafdís ákvað ung að verða arkitekt og var einangruð í Danmörku vegna Covid: „Ég varð mjög einmana“

Hafdís ákvað ung að verða arkitekt og var einangruð í Danmörku vegna Covid: „Ég varð mjög einmana“

„Frá því að ég man eftir mér hefur mig alltaf langað til að vera arki­tekt. Ég man eftir því að liggja á gólf­inu að teikna fyrir framan sjón­varpið ein­hverja draum­óra, núna er ég svo heilluð af því hvernig arki­tektúr getur breytt heim­inum. Rými og efn­is­kennd hafa svo mikil áhrif á lífs­gæði þeirra sem koma nálægt því, bæði innri not­endur, sem dvelja í rým­inu sjálfu, og ytri aðilar, sem upp­lifa rýmið mest­megnis utan frá. Arki­tektúr segir svo mikið um okkur sem sam­fé­lag. Hann end­ur­speglar karakter okkar, hvar við búum í hnatt­rænu sam­hengi, út frá dags­birtu og öðrum skil­yrðum, hvernig við höfum þró­ast á þann stað sem við erum á í dag og hvert við stefnum. Þetta er mjög skemmti­legt fag að vinna í.“

Segir hin 35 ára Hafdís Anna, arki­tekt og við­skipta­fræð­ingur sem sett­ist niður með Mannlífi og sagði okkur frá verð­launum í arki­tektúr, verk­efni um birtu- og rökk­ur­skil­yrðum og íslenskum arki­tektúr.

Gott að fleiri taki þátt í sam­ræð­unum
„Arki­tektúr byrjar alltaf með sam­tali og erfitt er að meta hver á að eiga það sam­tal. Eru það arki­tekt­inn og verk­kaup­inn? Verk­kaup­inn er ekki alltaf sá sami og not­and­inn. Það er e.t.v. ekki ein­göngu not­and­inn sem málið varðar, hvað með nágranna sem er annt um götu­mynd­ina? Hvað með almenn­ing og sam­fé­lagið í heild sinni? Mér finnst gott að fleiri taki þátt í sam­ræð­unum því þá gerir fólk sér betur grein fyrir verð­mætum góðs arki­tekt­úrs og er þá von­andi reiðu­bún­ara sem sam­fé­lag til að fjár­festa í góðri hönnun í stað þess að sætta sig við lak­ari val­kosti. Að því sögðu þá þurfa ekki allir að vera sam­mála um hvað góð hönnun sé, oft eru það einmitt umdeild­ustu bygg­ing­arnar sem með tíð og tíma fá mesta ástúð almenn­ings. Samtalið þarf að eiga sér stað.“

Hafdís telur að arki­tektúr hafi áhrif á líðan okkar á svo marga vegu og segir að það sé gjör­ó­líkt að standa í stóru opnu rými eða litlu lok­uðu rými. Efn­is­kennd, birta og litir spila þar inn í.

„Þetta er vel þekkt og rann­sakað, en við erum kannski ekki eins með­vituð um það í hvers­dags­leik­anum, þegar við förum, yfir­leitt frekar end­ur­tekið, á milli ákveð­inna staða, hversu mikil áhrif sjálfur arki­tekt­úr­inn hefur á líðan okkar. Það er ekki fyrr en við skiptum skyndi­lega út frá van­anum að við skynjum betur hversu mikið þetta hefur að segja um lífs­gæði okkar, líðan og heilsu.“

Kerfið sjálft er nán­ast hannað til aðgreina og ein­falda hlut­ina of mikið, ein lóð fyrir eitt hús í einum til­gangi, segir Hafdís.

„Fókusinn þarf að fara af lóð­inni og yfir á það sem ger­ist á milli lóð­anna. Hvernig við tengjum ólíka hluti saman á far­sælan hátt, svo það styrki fjöl­breyti­lega notkun og upp­lifun.“

Borg­ar­skipu­lag er eign fólks­ins
Hún heldur áfram að útskýra fyrir okkur hver sé hennar sýn varð­andi borg­ar­skipu­lagið hér á landi.

„Borg­ar­skipu­lag er eign fólks­ins sem býr í borg­inni, stefnan á að koma frá fólk­inu og ég held að við þurfum að færa yfir­sýn­ina úr loft­mynd­inni í „ google maps“ yfir í „ street view.“

Það er þar sem mann­leg sam­skipti eiga sér stað og það er þar sem borg­ar­skipu­lag ætti að eiga sér stað í meira mæli. Þótt það sé meiri áskorun fyrir arki­tekta þá þurfum við að veita fólk­inu meiri stjórn. Hverfa­kosn­ingar eru skref í rétta átt þar sem fólk kýs hvaða verk­efni það vill sjá í hverf­inu sínu.“

Rökk­ur­skil­yrðin á Íslandi
Útskrift­ar­verk­efni hennar var unnið á ensku og heitir „Where light and Darkness mingle“ sem vísar til þeirra skamm­vinnu rökk­ur­skil­yrða sem eiga sér stað við sól­ar­upp­rás og sól­setur.

„Mig hafði alltaf langað til að vinna með rökk­ur­skil­yrðin á Íslandi. Eftir frek­ari rann­sóknir komst ég að því að þessi rökk­ur­tími er mun lengri á Íslandi en sunnar og hefur því tals­verð áhrif á menn­ingu okkar, enda er oft minnst á sól­roðin ský og sam­bæri­leg fyr­ir­bæri í íslenskum dæg­ur­lögum. Það er til afar lítið af upp­lýs­ingum um rökkur m.t.t. arki­tekt­úrs og frekar en að líta á það sem sér­stakt fyr­ir­bæri þá er þetta yfir­leitt bara flokkað sem eitt­hvað á milli dags og nætur.

Ég ljós­mynd­aði m.a. íslenskar grjót­teg­undir til að sjá hvernig efn­is­kennd þeirra breytt­ist í ólíkum birtu- og rökk­ur­skil­yrðum.“

Stór hluti af verk­efn­inu var kort­lagn­ing þar sem hún not­aði ólíka tækni úr korta­gerð til að skilja og sýna fjöl­breyti­leika svæð­is­ins. Hún ákvað að vinna með Elliða­ár­dal­inn því henni fannst það svæði vera sem  „á milli“ ólíkra hluta Reykja­víkur.

„Þetta er líka flennistórt svæði með ólíkum birtu­skil­yrðum en tak­mark­aðri inn­an­húss­að­stöðu t.d. sal­erni og annað.“

Verkefni Hafdísar vann til verð­launa
Við útskrift­ina í sumar fékk verk­efni Hafdísar svoköll­uðu Cebra-verð­launin, sem eru árlega veitt einum nem­anda sem hefur á sann­fær­andi hátt með loka­verk­efni sínu leit­ast við að færa mörk hefð­bund­innar nálg­unar og skynj­unar á arki­tektúr og rými. Verð­launin veitir arki­tekta­stofan CEBRA sem hefur starfað í Árósum frá árinu 2001.

„Þetta var mik­ill heiður og við­ur­kenn­ing á því hvernig ég nálg­að­ist verk­efnið. Þar sem ég reyndi ekki að ein­falda svæðið eða afmarka það heldur að styrkja fjöl­breyti­lega notkun og upp­lifun með arki­tektúr sem skapar sam­tímis feg­urð og greini­legt nota­gildi. Þeir töldu það líka krefj­ast mik­ils hug­rekkis að rann­saka hið flókna, óskil­grein­an­lega og síbreyti­lega, með ljóð­rænum styrk og feg­urð í bæði grein­ingum og arki­tektúr.“

Meist­ara­námið í Árósum var mjög skemmti­legt, en krefj­andi, segir Hafdís. Deild­ar­stjór­inn (Bob Trempe) lagði mikið upp úr fjöl­breyttri tækni og að nem­endur nýttu verk­stæðin sem voru í næsta rými við stúd­íóið.

„Svo ég fékk tæki­færi til að prófa ýmis­legt, m.a. að þrí­vídd­ar­prenta og þrí­vídd­arskanna, fræsa, steypa brons, búa til módel með aðstoð sýnd­ar­veru­leika og nota vís­inda­skáld­skap sem inn­blástur fyrir fram­tíð­ar­heim­il­is­fólk. Það var góð æfing, því það tekur tíma fyrir það sem arki­tektar teikna að verða að veru­leika og svo standa bygg­ingar yfir­leitt yfir lengri tíma svo arki­tektar þurfa að sjá fyrir fram­tíð­ar­þarfir fólks.“

Krefj­andi tímar
Hafdís upp­lifði krefj­andi tíma þegar hún var að sækja um skóla­vist. Þegar hún sótti fyrst um í arki­tekt­úr­námið í Lista­há­skóla Íslands voru bara teknir inn 15 nem­endur og var hún 16. í röð­inni og komst því miður ekki inn.

„Þess vegna fór ég í við­skipta­fræði á Bifröst, en þótt það nám hafi átt vel við mig þá kraum­aði alltaf í manni þráin eftir að læra arki­tektúr svo ég fór í Mynd­lista­skól­ann í Reykja­vík í for­námið og sótti svo aftur um að því loknu og komst þá inn í Kaup­manna­höfn, þar sem ég lauk BA-námi mínu.“

Á þeim tíma voru hún og mað­ur­inn hennar komin inn í skóla í San Francisco en skóla­þreytan var farin að segja til sín svo þau ákváðu að fara frekar til Íslands og stofna fjöl­skyldu.

„Það var snúið að flytja aftur út sjö árum seinna með tvö börn, en við ákváðum að láta slag standa og færa okkur yfir til Árósa. Feðgarnir fluttu aftur heim hálfu ári seinna þar sem þeir voru ekki að una sér eins vel og við mægð­urnar og það tók nokkuð mikið á.“

Stuttu síðar skall Covid á, skól­anum úti var lokað og öll kennsla varð raf­ræn svo þær mæðgur fóru líka til Íslands. Þegar skól­inn var opn­aður aftur var stelpan þeirra búin að vera það lengi á Íslandi og byrjuð í íslenskum leik­skóla að þau tóku þá ákvörðun að Hafdís færi ein út að klára síð­ustu önn­ina.

„Það var sér­stak­lega erfitt þegar maður mátti ekki heldur hitta marga í Danmörku og ég varð mjög ein­mana á tíma­bili og sakn­aði mikið barn­anna minna og manns­ins míns. Sem betur fer komst ég til Íslands nokkrum sinnum því loka­verk­efnið mitt tengd­ist Elliða­ár­dalnum og skól­inn gaf mér leyfi til að ferð­ast til Íslands út af verk­efn­inu. Systkini og for­eldrar okkar Bjössa veittu okkur öllum líka ómet­an­legan stuðn­ing á þessu tíma­bili og við hefðum ekki getað kom­ist í gegnum þetta tíma­bil án þeirra.“

Nám, kennsla og fjöl­hæf hönnun
Í haust byrj­aði Hafdís að kenna tölvu­teikn­ingu fyrir ann­ars árs nem­endur í BA-námi við arki­tekt­úr­deild Lista­há­skóla Íslands. Fyrir til­viljun þá eru þessir nem­endur að vinna verk­efni með Elliða­ár­dal­inn, sem er einmitt það svæðið sem hún vann með í útskrift­ar­verk­efni sínu og varð til þess að fag­stjóri BA-náms arki­tekt­úr­deild­ar­innar, Massimo Santanicchia, bauð henni að vinna aðeins meira með þeim, „sem hefur verið mjög gaman.“

Hafdís vinnur nú á arki­tekta­stof­unni SeiStudio, sem er stofnuð af hjón­unum Einari Hlé Ein­ars­syni og Shruthi Basappa.

„Þar hef ég fengið að fara í mjög fjöl­breytt verk­efni og hlakka til að takast á við næstu verk­efni og áskor­anir.“

„Ég reyni að nálg­ast arki­tekt­úr­inn frá öllum hliðum og vinna jafn­hendis með nota­gildi og fag­ur­fræði eða efn­is­lega eig­in­leika og and­lega upp­lifun. Ég legg mig fram um að nýta þá ólíka og e.t.v. óhefð­bundna tækni sem hentar verk­efn­inu hverju sinni, hvort sem það felur í sér notkun sýnd­ar­veru­leika eða gam­al­dags korta­gerð­ar­að­ferðir.

Ég vil að hönnun mín sé fjöl­hæf (e. Polyvalent) en stað­bundin. Þ.e.a.s. að þegar ég teikna tek ég mið af þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi á staðnum, t.d. umhverfi og sam­fé­lagi, en gæti þess að nýta megi rýmið á ólíka vegu án þess að gera þurfi viða­miklar breyt­ingar.

Það hefur verið mér hug­leikið að vinna með það að skapa stað (e. Placemaking), hvernig teiknar maður rými þar sem fólk vill verja tíma sínum? Þar sem fólk vill staldra við og það er eitt­hvað sem er svo fal­legt við arki­tektúr því oft þarf þetta ekki að vera mjög stórt inn­grip til að gjör­breyta upp­lifun okkar af rými.“

Hafdís er með heima­síðu, hafabra.myport­folio.com, þar sem hún hefur sett inn vinnu sína úr meist­ara­nám­inu ef fólk hefur áhuga á skoða verkin nánar og svo er hún líka með Instagram-reikn­ing þar sem hún deilir ýmsum af þeim verk­efnum sem hún hefur unnið eða er að vinna með @hafdis.anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð