Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Cat atvinnuljósmyndari: „Mér líður svo vel á Íslandi – það er eins og ég sé komin heim“

Cat atvinnuljósmyndari: „Mér líður svo vel á Íslandi – það er eins og ég sé komin heim“

„Ég hafði heyrt svo góða hluti um Ísland; mjög fal­leg nátt­úra, skap­andi fólk, gott tón­list­ar­líf og mikil menn­ing og nýsköpun. Ég hafði aldrei komið til Íslands, en inn­sæi mitt var að segja mér að prófa það svo ég flutti hingað árið 2018. Ég þekkti engan, ég var ekki með vinnu og ég átti ekki neinn sama­stað, svo það var rosa­lega erfitt! Fyrstu tveir mán­uð­irnir voru erf­ið­astir og tóku á í sál­inni, ég var mjög ein­mana. En sem betur fer hark­aði ég af mér og ég eign­að­ist góða vini og byrj­aði að fá vinnu við ljós­myndun. Síðan þá hef ég elskað að búa hér.“

Þetta segir Cat Gundry-Beck ljós­mynd­ari Mannlífi. Cat kemur frá Írlandi en hún sett­ist að á Íslandi fyrir rúm­lega þremur árum og hefur verið að gera góða hluti innan ljós­mynda­heims­ins.

Sé fyrir mér að búa hér til lengri tíma
Cat er atvinnu­ljós­mynd­ari og vídeó-fram­leið­andi: „Mér líður svo vel á Íslandi, það er eins og ég sé komin heim og því sé ég fyrir mér að búa hér til lengri tíma.“

Sem ljós­mynd­ari er mik­il­vægt fyrir hana að myndir hennar ýti undir sjálfs­traust við­kom­andi. Mynd­irnar eru oft­ast af fólki sem er að kynna sig eða fyr­ir­tæki eða aug­lýs­inga­myndir af fólki sem er að nota ákveðna vöru.

Módel: Sigrún Hanna. Fata­hönn­uður: Laima Udre Förð­un­ar­fræð­ingur: (make up art­ist). Tatyana Guð­björns­dottir

„Annars hef ég brenn­andi áhuga á tísku, svo ég elska að vinna með fata­hönn­uðum við tísku­mynda­tökur, sér­stak­lega úti í íslenskri nátt­úru.“

Að heyra konur segja hvetj­andi sögur
Cat gerð­ist félagi FKA (Félagi kvenna í atvinnu­líf­inu) nokkrum mán­uðum eftir að hún flutti til Íslands. Hún fann strax þegar hún gekk í FKA hversu vel­komin hún var.

„Að heyra konur segja hvetj­andi sögur um ferðir sínar hjálp­aði mér að trúa því að ég gæti það líka. Það hjálp­aði mér að átta mig á því hversu ástríðu­full ég er fyrir jafn­rétti kynj­anna og sjálf­styrk­ingu, en ljós­mynda­geir­inn hefur verið mik­ill karla­heimur og ég vil alls ekki leika fórn­ar­lambið.

Ég vil vinna í þessum geira til að hjálpa við að jafna kjörin og sýna yngri kyn­slóðum að það er mögu­leiki fyrir konur að vinna í hvaða hlut­verki sem þær vilja og hafa áhuga á.

FKA hefur einnig hjálpað Cat mjög mikið að læra íslensku. Hún hefur gaman af því að fara á við­burði félags­ins og hlusta á erindin á íslensku. „Konurnar þar eru svo hvetj­andi og skiln­ings­ríkar, við spjöllum saman á íslensku og þær tala hægt fyrir mig,“ útskýrir Cat fyrir okkur áhuga­söm.

Búa til sögur í mynd­unum
Cat lærði BA í ljós­myndun við háskóla í Englandi og útskrif­að­ist árið 2014. Til að byrja með starf­aði hún í London og lærði margt, en hana lang­aði í meira ævin­týri svo hún flutti til Noregs og bjó þar í tvö og hálft ár. Þar vann hún sem ljós­mynd­ari á aug­lýs­inga­stofu í Bergen og þar eftir við ljós­mynda­ferðir í Tromsø.

Módel – Håkon Broder Lund

„Ég hef verið að vinna að mörgum spenn­andi verk­efnum und­an­farið! Ástríða mín er að hjálpa fólki að ná mark­miðum sínum, svo ég elska að taka myndir sem hjálpa þeim að kynna sig eða auka við­skipti sín. Ég hef unnið með stað­bundnum fyr­ir­tækjum, eins og Næra, sem er að búa til svo nýstár­legt og ljúf­fengt snakk, Gull og Silfur, þar sem er að finna hæfi­leika og ástríðu, og COLLAB, sem hefur búið til virki­lega ein­staka vöru. Það er ein­stak­lega gaman að vinna með þeim. Ég hef mik­inn áhuga á sál­fræði og ég vil nýta mér hana til búa til sögur í mynd­unum, t.d. mynd af vinum sem njóta saman snarls í sum­ar­bú­stað eða á fjalli, þessi nálgun getur hjálpað fólki að tengj­ast vör­unni og getur verið áhuga­verð­ari en að sjá vöru með hvítum bak­grunni meðan þeir skrolla á sam­fé­lags­miðlum.“

Myndar fyrir Reuters, New York Times, BBC og The Guardian

Eldgosið í Geld­inga­dölum var algjör draumur fyrir Cat. „Ég var að mynda fyrir Reuters-frétta­stof­una og mynd­irnar og mynd­böndin mín voru notuð um allan heim: á for­síðu New York Times, BBC, CNN, The Guardian, o.s.frv. Það hefur verið algjört ævin­týri að ganga að gos­inu svona margoft.“

Cat var að opna fyr­ir­tæki, CGB ehf. og hún lýsir fyrir okkur spenn­andi tímum fram undan.

„Fyr­ir­tæki mitt er ljós­mynda- og mynd­banda­fyr­ir­tæki og ég ætla að halda áfram með svipuð verk­efni og ég hef verið að vinna með og búa til jóla­aug­lýs­inga­myndir og vídeó. Að þessu sinni hef ég ákveðið að vinna meira með teymi: fyr­ir­sætum, förð­un­ar­fræð­ingum, stílistum o.s.frv. vegna þess að ég trúi því að þegar teymi sér­fræð­inga vinnur saman að sama mark­miði verði myndir mun eft­ir­minni­legri.“

Í dag vinnur hún með fata­hönn­uðum eins og Gracelandic. Gracelandic býr til ótrú­legan silki­fatnað og hefur brenn­andi áhuga á sjálf­bærni og jafn­rétti: „Það eru einmitt svona verk­efni sem ég vil styðja.“

Cat talar ótrú­lega góða íslensku, en hana langar að tala hana reiprenn­andi sem fyrst og henni finnst mik­il­vægt að leggja sig fram til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu: „Og það er gaman að læra og að tala.“

Það sem hefur komið henni mest á óvart er hversu margar dyr opn­ast í ljós­myndun, hún seg­ist hafa kynnst ótrú­legum stöðum og fólki sem hún hefði ekki haft ástæðu til að hitta og sjá ann­ars.

Módel: Norris Niman. Fatnaður: Farmers Market. Stílisti: Emma Romeijn

 

 

„Mér finnst líka ein­stak­lega gaman að hlusta á sögur fólks og ná þessum sögum fram í ljós­mynd­inni á sama tíma og ég fæ að heyra og læra um annan heim. Ljós­mynda­ferða­lag mitt hefur verið mjög áhuga­vert og skemmti­legt og ég er alltaf að læra eitt­hvað nýtt.“

Cat hefur verið dug­leg að halda utan um ljós­mynda­sam­fé­lagið hér á landi með því að skipu­leggja veislur svo að allir geti hist og spjallað um fagið.

„Ég lít ekki á ljós­myndun sem keppni, við höfum öll okkar eigin stíl og styrk­leika og við getum öll lært af hvert öðru. Ég er t.d. með aðra ljós­mynd­ara reglu­lega heima við, þar sem við deilum hlutum eins og Photos­hop-tækni og við­skipta­hæfni. Samfélag ljós­myndar hér á landi er mjög sam­heldið.“

Cat hefur upp­lifað mikla jákvæðni hér á landi og fund­ist hún vera vel­komin: „Ég elska að búa í þessu fal­lega landi! Ég hef lært svo mikið um sjálf­styrk­ingu og mig langar til að dreifa áfram þess­ari jákvæðni; ein­hver verður að taka stóru verk­efnin að sér, af hverju ekki þú?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ