Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hrikaleg reynslusaga konu af byrlun: „Vinkona mín hélt að ég væri að deyja“

Hrikaleg reynslusaga konu af byrlun: „Vinkona mín hélt að ég væri að deyja“

Kona, sem kýs að láta nafns síns ekki getið, segir í sam­tali við Mannlíf frá reynslu sinni af því að vera byrluð ólyfjan á skemmti­stað.

Það gerð­ist á Spáni, þar sem hún var í skemmti­ferð ásamt vin­konu sinni, þegar hún var átján ára.

Sagan hefst þegar hún og vin­kona hennar voru á leið út að skemmta sér. Þær voru á þessum tíma­punkti búnar að drekka lítið magn af áfengi, uppi á hót­eli.

„Síðan, á fyrsta staðnum sem við fórum á, var ég allt í einu orðin dauða­drukkin. Eða, þannig leið mér. Það voru fleiri Íslend­ingar þarna, sem voru reyndar á öðru hót­eli. En við hittum þessa Íslend­inga þarna. Svo var ég orðin alveg eins og ég væri rosa­lega full og svo man ég ekk­ert mikið meira.

Ég man bara eins og svona skot, eins og maður sér í bíó­myndum. Svona brot. Svo var bara verið að halda á mér upp á hótel. Sem sagt, Íslend­ing­arnir, þeir voru að hjálpa. Af því að ég var bara eins og ég væri lömuð. Svo fór ég bara upp á hótel.

Vinkona mín var í sjokki, hélt að ég væri að deyja. Hún vissi ekk­ert hvað var í gangi.

Það er svona langt síðan – tólf ár – svo það var ekki verið að tala jafn­mikið um svona mál og núna.

Eftir að við komum upp á hótel leið smá tími og svo byrj­aði ég að gubba alveg svaka­lega mikið. Ég gubb­aði og gubb­aði, bara enda­laust.“

Vinkona hennar var með henni allan tím­ann, frá því þær komu á skemmti­stað­inn fyrr um kvöldið og þar til þær fóru upp á hótel.

Vinkonan missti því aldrei sjónar á henni og því ljóst að sá sem byrl­aði henni lyf­inu komst ekki í návígi við hana. Þær komust aldrei að því hver það var. Hún veit ekki heldur hvaða efni var notað.

„Þetta hefur örugg­lega verið ein­hver á staðnum. Ekki Íslend­ing­arnir, held ég, því þeir voru alveg í sjokki og að hjálpa okkur.“

Ein­kenn­unum lýsir hún á eft­ir­far­andi hátt:

„Svimi og mátt­leysi, ein­hvern veg­inn og eins og ég væri bara ógeðs­lega full. Þetta var fyrsti stað­ur­inn, fyrsti skemmti­stað­ur­inn sem við fórum á, þannig að það var ekki eins og ég hefði verið búin að djamma alla nótt­ina.

Svo man ég bara ekk­ert meira, fyrr en ég var svona liggj­andi yfir öxl­ina á Íslend­ingi, sem var þá að hjálpa – þau voru að fara með mig upp á hótel af því ég var bara alveg … ég man ekk­ert eftir því að hafa verið að missa mátt­inn.

Þetta er bara það næsta sem ég man, ég horfði eig­in­lega svona á gang­stétt­ina. Jú, svo man ég ein­hverjar glefsur, þar sem vin­kona mín var rosa­lega hrædd um mig. Hún var í ein­hverju panikki. Ég man bara svona brot.

Það var líka skrýtið dag­inn eftir, að ég var ekk­ert þunn eða svo­leiðis. Ég fann ekk­ert þannig, ég var ekk­ert slöpp dag­inn eftir.

Ég bara gubb­aði og … þetta var svo skrýtið, því ég hefði haldið að ég myndi finna mikið fyrir þessu dag­inn eftir. Ég vakn­aði og þau sögðu mér hvað hefði gerst, vin­kona mín spurði hvernig mér liði og ég var bara góð, þannig.“

Hún seg­ist hafa verið í lagi, lík­am­lega, en þetta hafi vissu­lega verið sjokk og haft ann­ars konar áhrif.

„Ég var samt svo ung að ég kannski átt­aði mig ekki alveg á hvernig þetta hefði getað endað.“

Hún segir að það hafi ekki verið fyrr en hún varð eldri sem hún gerði sér fylli­lega grein fyrir hætt­unni og því hversu hræði­lega illa þetta hefði getað farið.

„Þetta var svo furðu­legt. Aðallega hvað þetta gerð­ist hratt – hvað þetta er greini­lega fljótt að fara inn í systemið.

Um leið og þú tekur þetta inn, um leið og ein­hver setur þetta í glasið þitt, þá ertu bara kom­inn í ruglið svo rosa­lega stuttu eftir það. Það er svo óþægi­legt, ein­hvern veg­inn.“

Mannlíf bendir les­endum á að ef grun­semdir vakna um að þeir eða ein­hver í návígi við þá hafi orðið fyrir byrlun, skuli taf­ar­laust hafa sam­band við neyð­ar­lín­una í síma 112.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð