Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þórólfur segir hugsanlega þörf á að endurskoða afléttingar: „Fólk með einkenni er víða og í vinnu.“

Þórólfur segir hugsanlega þörf á að endurskoða afléttingar: „Fólk með einkenni er víða og í vinnu.“
Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, hefur ekki stórar áhyggjur af veirunni enn sem komið er.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir telur að mögu­lega þurfi að end­ur­skoða vænt­an­legar aflétt­ingar sam­komu­tak­mark­ana, ef smitum heldur áfram að fjölga eins og verið hefur.

Áttatíu greindust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær og innan við helm­ingur þeirra var í sótt­kví. Nýgengi inn­an­lands­smita, fjöldi smit­aðra á hverja 100 þús­und íbúa síð­ustu tvær vikur, hefur verið á upp­leið und­an­farna daga. Í gær var það 220,1 en er í dag 232,1.

Þrjú smit komu upp á landa­mær­unum í gær, þ.e. tvö virk smit í fyrri landamæra­skimun og eitt þar sem enn er beðið eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu.

Sjö eru nú á sjúkra­húsi vegna Covid-19 og er einn þeirra á gjör­gæslu. 40 pró­sent þeirra sem greindust með Covid-19 síð­ustu þrjá daga voru í sótt­kví, en 60 pró­sent utan sótt­kvíar.

Tölu­verður fjöldi fólks greind­ist sömu­leiðis með veiruna um nýliðna helgi, eða 70 manns á dag.

Þórólfur segir ljóst að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn sé enn og aftur á upp­leið. Hann segir veiruna vera komna víða um sam­fé­lagið og það sé áhyggju­efni þegar hún fari að smeygja sér inn á spít­al­ann.

Síðustu miss­eri hefur mikið verið slakað á sam­komu­tak­mörk­unum og til stendur að aflétta aðgerðum inn­an­lands að fullu eftir rúmar þrjár vikur.

„Það eru nátt­úr­lega stjórn­völd og ráð­herra sem ráða þessu end­an­lega. En ég held að ef við förum að fá mikla aukn­ingu, og aukn­ingu á spít­al­anum, að menn þurfi nú kannski að end­ur­skoða þær áætl­anir,“ segir Þórólfur og segir að um sé að ræða fram­tíð­ar­sýn stjórn­valda. Það þurfi alltaf að end­ingu að sníða aðgerðir að raun­veru­legri stöðu far­ald­urs­ins.

„Það verður að skýr­ast af því hvað ger­ist á spít­al­anum næstu dag­ana. Hvernig hann er í stakk búinn að með­höndla fólk og sinna þeim sem þurfa á inn­lögn að halda. Við erum kannski ekki að fylgj­ast svo mikið með þeim sem eru að grein­ast. Við vitum að það segir ekki alla sög­una,“ segir Þórólfur og seg­ist ekki enn vera far­inn að huga að því að skila nýjum til­lögum til ráð­herra. Hann segir að næstu dagar muni sýna fram á hvort þörf verði á því.

Þórólfur segir aðal­vanda­málið núna vera miklar hópa­mynd­anir og að fólk með ein­kenni sé á ferð­inni.

„Veiran er víðs vegar og það þurfa ekki að vera stórar sam­komur til þess að smit grein­ist. Erum að sjá að fólk með ein­kenni er víða, í vinnu og ann­ars staðar, og nær að smita marga. Þetta er kannski erfitt núna þegar fólk er bólu­sett og fær væg ein­kenni; menn halda sig síður til hlés og fara í sýna­töku,“ segir Þórólfur.

Hann segir að svona breið­ist veiran út og hann haldi að hún muni gera það áfram.

„Þetta er svona það sem við erum að horfa upp á í því að lifa með veirunni. Það er svona lands­lag þar til að ónæmi verður meira í sam­fé­lag­inu. Þá fer að hægj­ast á þessu, en hvenær það verður er erfitt að segja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð