Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

María gerir stuttmynd um glímu aðstandanda við geðhvörf: „Fólk fjarlægist þessa einstaklinga“

María gerir stuttmynd um glímu aðstandanda við geðhvörf: „Fólk fjarlægist þessa einstaklinga“
Módel; Vala Ómars­dóttir. Ljós­mynd­ari: María Kjartans
Módel; Vala Ómars­dóttir. Ljós­mynd­ari: María Kjartans

„Ástæðan fyrir því að ég fór að fjalla um þessi mál var að ég lenti sjálf í því að vera aðstand­andi mann­eskju sem að skyndi­lega veikt­ist af geð­hvörfum fyrir fjórum árum síðan,“ segir María Kjartans ljós­mynd­ari og kvik­mynd­ar­gerð­ar­kona um til­urð stutt­mynd­ar­innar Sprungur eftir Maríu og Völu Ómars­dóttur sem verður for­sýnd í Bíó Paradís 11. nóv­em­ber næst­kom­andi. Þetta er mynd sem fjallar um ein­angr­un­ina og ein­manna­leik­ann sem ein­stak­lingur með geð­rænan vanda þarf að kljást við eftir veik­indi og hversu erfitt það getur verið að kom­ast aftur út í lífið þegar sjálfs­myndin er brotin og vonin um eðli­legt líf er lítil.

Ljós­mynda­sería með sama nafni var einnig skotin sam­hliða tökum og var hún til sýnis í SÍM salnum í Hafn­ar­stræti í ágúst síð­ast­lið­inn.

Mannlíf fékk að heyra í Maríu Kjartans og fræð­ast um stutt­mynd­ina hennar og mik­il­vægan boð­skap mynd­ar­innar.

María Kjartans er mynd­list­ar­kona sem hefur aðal­lega starfað við list­ræna ljós­myndun og nú nýlega stutt­mynda­gerð.

Víkka sjón­deild­ar­hring­inn og læra eitt­hvað nýtt
„Ég byrj­aði fyrst að fikta við ljós­myndun 14 ára gömul hjá Krist­jáni Sig­urðs­syni ljós­mynd­ara hjá Hugskot stúdíó, þar sem hann kenndi mér allt sem ég þurfti að læra í sam­bandi við mynda­tökur, stúdíó, lýs­ingu og annað. Þegar kom svo að því að velja háskóla­nám til að víkka sjón­deild­ar­hring­inn og læra eitt­hvað nýtt ákvað ég að læra mynd­list við Lista­há­skóla Íslands.“

Módel; Vala Ómars­dóttir. Ljós­mynd­ari: María Kjartans l

Eftir BA námið lá leið hennar í Lista­há­skól­ann í Glasgow þar sem hún nam Meist­ara­nám í mynd­list og hélt áfram að ein­beita sér að list­rænni ljós­myndun.

„Við Birgir mað­ur­inn minn og Hera Lind dóttir okkar bjuggum  í London í 6 ár og síðar í París þar til leið okkar lá aftur til Íslands þar sem við höfum nú verið að koma okkur vel fyrir síð­ast­liðin 9 ár. “

Þegar María er aðspurð hvers vegna mál­efni um glímuna við geð­hvörf hafi verið val­inn fyrir mynd­ina segir hún:

„Að fylgj­ast með þessum flotta ein­stak­ling lenda átta  sinnum inn á geð­deild á svona stuttum tíma var óbæri­legt. Fólk kemur oft­ast mjög brotið út úr svona syrpum, en að vita ekk­ert hvað maður getur gert til að hjálpa og upp­lifa hvernig allir hurfu þegar hann þurfti sem mest á þeim að halda var mjög sárt. “

Skynja ótta hjá fólki
María segir að hún skynji vel ótta hjá fólki þegar kemur að geð­sjúk­dómum og fólki með geð­rænar áskor­anir.

„Í dag­legu tali má oft heyra fólk segja: hann er „geð­veikur“ en ekki hann/hún hefur verið að kljást við geð­ræn vanda­mál og nú er hann/hún í bata. Fólk fjar­lægist þessa ein­stak­linga í þeirra veik­ind­unum og láta sig jafn­vel hverfa vegna þess hversu mikil skömm og van­þekk­ing getur fylgt þessum sjúk­dómum.“

Módel; Vala Ómars­dóttir. Ljós­mynd­ari: María Kjartans

Hún segir að það geti verið virki­lega erfitt fyrir suma þess­ara ein­stak­linga að kom­ast aftur út í sam­fé­lagið og tengj­ast vinum sínum, hvað þá að fá vinnu eða eign­ast maka. Ein­angr­unin, ein­mana­leik­inn og von­leysið verður oft til þess að sagan end­ur­tekur sig.

Það kom Maríu á óvart hversu lít­ill skiln­ingur er almennt í sam­fé­lag­inu á þessum sjúk­dómum og hvað fólk þarf að ganga í gegnum. Hún upp­lifir höfnum frá sam­fé­lag­inu í garð þess­ara ein­stak­linga í stað þess að verið sé að taka þeim með opnum örmum í bata­ferl­inu. Þetta er sjúk­dómur sem fólk er að kljást við kannski alla ævi og það er mann­eskja á bak við sjúk­dóm­inn. Mann­eskjan er ekki sjúk­dóm­ur­inn, það er stóri mis­kiln­ing­ur­inn.

Það ger­ist líka eitt­hvað þegar margir snill­ingar leggj­ast á eitt
Hún segir okkur stolt frá mynd­inni sinni Sprungur og hug­mynda­fræð­inni í sinni list­sköpun, sem hún hefur verið að þróa með sér síð­ustu ár. Hún upp­lifir sig loks­ins vera komna með ágætis þekk­ingu og reynslu í bak­pok­ann til að hugsa og vinna stærra.

„Það ger­ist líka eitt­hvað þegar margir snill­ingar leggj­ast á eitt og skapa frá hjart­anu það er ótrú­lega fal­leg og góð orka sem fylgir svo­leiðis verk­efnum. Leik­stjór­inn Vala Ómars­dóttir og ég sömdum verkið saman og fengum Bigga Hilmars mann­inn minn og tón­list­ar­mann til að gera tón­list­ina, ásamt frá­bæru teymi af hæfi­leik­a­ríku fólki úr kvik­mynda­geir­anum. Það má líka alveg minna sig á það stundum hversu gott er að deila verk­efnum. Við lista­fólkið eigum það til að vinna mikið ein og ætla að gera allt sjálf. Þetta var virki­lega góð upp­lifun að vinna með svona flottum hóp þar sem allir komu með sína styrk­leika á borðið.“

Ljós­mynd­ari: María Kjartans

Talið berst að þeim sterku til­finn­ingum sem María upp­lifði þegar hún kemst að því að nákomin mann­eskja sem henni þykir ofboðs­lega vænt um grein­ist með alvar­legan geð­sjúk­dóm.

„Ég upp­lifði fyrst mik­inn ótta og reiði gagn­vart ein­stak­lingnum og síðar van­mátt­ar­kennd. En erf­ið­ast þótti mér sorg­ar­ferlið sem kom á eftir, því ég trúði því ekki að mann­eskjan gæti nokkurn tím­ann komið aftur til baka og orðið aftur hún sjálf. Það að syrgja mann­eskju sem er enn á lífi var örugg­lega erf­ið­asti hjall­inn í þessu ferli. Það sem hjálp­aði mér að kom­ast í gegnum þetta tíma­bil var sam­bandið og styrk­ur­inn frá fjöl­skyld­unni og vinum, en listin hjálp­aði líka mikið. Því það er ákveðið heil­un­ar­ferli sem fer af stað í list­sköpun.“

Stutt­myndin Sprungur er hluti af heil­un­ar­ferli Maríu. Í gegnum verk­efnið hefur hún fundið rödd til að tjá það sem hún hefur lært á þess­ari veg­ferð og opnað á umræð­una um þessi mál eða reynt að minnsta kosti að brúa bilið á milli sam­fé­lags­ins og fólks­ins sem glímir við geð­rænar áskor­anir.

María telur það mjög mik­il­vægt að snúa ekki baki við fólki sem hefur verið að kljást við geð­ræn veik­indi og ekki hverfa þegar þau þurfa mest á okkur að halda.

Því ef að þau fá ekki tæki­færi til að tengj­ast aftur fólk­inu sínu og að kom­ast aftur út í sam­fé­lagið eftir veik­indin, hvað þá?

„Þetta fór allt af stað á alveg ótrú­lega eðli­legan hátt. Ég man ekki nákvæm­lega hvernig það gerð­ist, en við Vala vorum eitt­hvað að tala saman um að vinna saman lítið vídeó verk­efni, þegar við fórum að vinna að tón­list­ar­víd­eói fyrir Bigga Hilmars þar sem hann var með töku­mann, ljósa­hönnuð og fleiri, að við átt­uðum okkur á hversu borð­liggj­andi það væri að vinna að sama skapi að okkar verk­efni, þ.e að gera ekki allt sjálfar. Við töl­uðum þá við Hákon Pálsson DOP og Andra Enoksson aðstoð­ar­leik­stjóra hvort þeir væru til­búnir að koma að verk­efn­inu og þegar hand­ritið þró­að­ist og sagan fór að mynd­ast voru ein­hvern­vegin allir sem við óskuðum eftir að fá inn í sköp­un­ar­ferlið til­búnir að koma að þessu. Ég tók að mér að fram­leiða verk­efnið og þetta small allt ein­hvern vegin. Fólk var mjög til­búið að styrkja þetta mál­efni þannig að það var greini­legt að þörfin var mikil og margir sem tengja við þennan heim. Það var eins og lífið væri að stjórna verk­efn­inu en ekki öfugt.“

Heyra þeirra sögur var átak­an­legt
Það sem henni fannst eft­ir­minni­leg­ast og taka mest á voru við­tölin við ein­stak­ling­ana sem myndin er byggð á, að heyra þeirra sögur var átak­an­legt.

„En svo er líka alltaf svo eft­ir­minni­legt að kom­ast í teng­ingu við nátt­úr­una, það er svo magnað að finna hvernig ein­hvers­konar yfir­nátt­úr­leg orka tekur yfir þegar maður slítur sig frá borg­inni og dettur í sónið, algjör­lega í núinu inn í gjá að klifra fossa.“

Næst á döf­inni hjá þess­ari flottu lista­konu er að for­sýna Sprungur 11. nóv­em­ber, senda mynd­ina á hátíðir og fara í sam­ræður við gall­erý í London sem hefur kynnt verkin hennar frá 2009. Þá verður bæði ljós­mynda­ser­ían og stutt­mynd­ina sýnd þar sem heild­stæð inn­setn­ing.

Mánuður mynd­listar er í októ­ber og bað Samband íslenskra mynd­list­ar­manna Maríu um að vera með flott verk­efni til að kynna verk­efnið í Mennta­skólum í Reykja­vík og nágrennis.

„En svo er að sjálf­sögðu eins og ger­ist oft að maður er komin með hug­mynd að næstu stutt­mynd sem að verður í svip­uðum stíl og lík­lega mynd nr. ⅔ í seríu þar sem við munum taka ann­ann pól á þessu sama við­fangs­efni. Það er allt saman mjög spenn­andi og mér finnst rosa­lega gaman að hafa loks­ins fundið mína leið í list­sköp­un­inni þar sem ég blanda saman þessum tveimur miðlum sem hafa ólíkar raddir, því fólk tengir mis­mun­andi við list­grein­arnar og það þykir mér mjög áhuga­vert og gaman að skoða. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð