Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bæjarstjórn Hafnar braut lög og er sökuð um skjalafals: „Allir synir mínir grétu á aðfangadag jóla“

Bæjarstjórn Hafnar braut lög og er sökuð um skjalafals: „Allir synir mínir grétu á aðfangadag jóla“
Höfn í Horna­firði Mynd: hornafjordur.is

Bæj­ar­stjórn Hafnar í Horfna­firði braut jafn­rétt­islög árið 2019 er hún réði konu í starf umhverfis- og skipu­lags­stjóra sveit­ar­fé­lags­ins, sam­kvæmt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála. Þá virð­ist sem átt hafi verið við gögn Capecent sem sá um að leggja mat á umsækj­endur.

Maðurinn, sem telur á sér brotið, vill ekki láta nafn síns getið. Hann telur að bæj­ar­stjórn Hafnar í Horna­firði hafi brotið illa á sér, bæði með því að ráða mann­eskju sem ekki upp­fyllti allar kröfur sem settar voru fram við aug­lýs­ingu á stöðu­gild­inu, heldur einnig þegar hann sótt­ist eftir svörum frá sveita­stjóra Horna­fjarðar, Matt­hildi Ásmunds­dóttur.

„Ástæðan fyrir því að ég hafði sam­band við ykkur er sú að ég sá í frétt frá ykkur varð­andi aðra ráðn­ingu hjá sveit­ar­fé­lag­inu og fannst það ankanna­legt því í því máli færa þau rök fyrir því með því að benda á mat Capacent en í mínu máli tóku þau ekki mark á Capacent,“ sagði mað­ur­inn í sam­tali við Mannlíf en hann er bygg­inga­fræð­ingur með um 10 ára starfs­reynslu í stjórn­un­ar­stöðu.

Sjá einnig: Bæj­ar­búar brjál­aðir út í bæj­ar­stjórn Hafnar: „Leit svo á að ekki væri til­efni til frek­ari aðgerða“

Mannlíf hefur undir höndum gögn er snúa að mál­inu en þar virð­ist meðal ann­ars sem átt hafi verið við gögn er tengd­ust mati á umsækj­endum en Capacent sá um það mat. Maðurinn bað um að fá að sjá ein­kunn­ar­gjöf umsækj­enda sem Capacent sá um en mátti bíða í þrjár vikur eftir svari. Í svar­inu mátti sjá að sú sem ráðin var, skor­aði tals­vert hærra en téður maður en það fannst honum ótrú­verð­ugt enda var hægt að sjá að skjal­inu hafi síð­ast verið breytt dag­inn sem hann fékk það sent. Þá var einnig hægt að sjá að konan sem ráðin var, var sögð upp­fylla kröfu um menntum sem hún upp­fyllti í raun ekki. Hún var ekki búin að ljúka nám­inu. Í rök­stuðn­ingnum sem fylgdi skjal­inu og sagt hafa farið fyrir bæj­ar­ráð, er hvergi minnst á ein­kunn­ar­gjöf umsækj­enda. Þrátt fyrir ítrek­aða beiðni um að fá að sjá öll gögn máls­ins, fékk hann það ekki í gegn fyrr en lög­fræð­ingur hans hafði sam­band við sveit­ar­fé­lagið. Þar sér hann að með rök­stuðn­ingnum sem fór fyrir bæj­ar­ráðið á fundi um ráðn­ing­una, fylgdi ein­kunn­ar­gjöf þar sem hún skorar lægra en hann og að Capacent telji hann hæf­ari. „Síðan er farið að vinna meira í mál­inu, eftir þann fund.“

Í gögn­unum má sjá að í fyrsta ein­kunna­skjalið frá Capacent sýndi að hann skor­aði mun hærra en konan sem ráðin var. Það ein­kunn­arskjal og áfanga­skýrsla Capacent um þá tvo umsækj­endur sem boð­aðir voru í við­tal, voru sýnd á fund­inum þar sem ákveðið var að ráða kon­una í starfið. Kemur það einnig fram í skýrsl­unni, að ekki sé hægt að horfa fram­hjá því að annar umsækj­and­inn upp­fyllti skil­yrði 7. greinar skipu­lags­mála en ekki hinn. „Eftir að búið var að taka saman öll gögn þótti ljóst að aðeins annar aðil­inn, X (karl­mað­ur­inn sem um ræðir), upp­fyllir skil­yrði 7. greinar skipu­lags­mála. Þar sem sá þáttur er skil­yrði mæl­umst við til þess að gengið verði ekki fram hjá þeim hæfn­is­þætti.“ Því er ljóst að bæj­ar­stjórnin réði mann­eskju í stöð­una sem ekki upp­fyllir þessar kröfur.

Efri umsækj­and­inn er sá sem ekki var ráð­inn Neðri umsækj­and­inn er sú sem var ráðin

Í næsta ein­kunn­arskjali sem hann fékk sent, mátti sjá að konan hækk­aði í ein­kunn er snéri að menntun hennar, úr 0 og upp í 2 (af 4 mögu­legum). Í þriðja skjal­inu, því sem hann fékk upp­haf­lega, var búið að breyta ein­kunn hennar úr 0 í 4. „Ég er ekki lög­lærður maður en ég tel þetta bara vera skjala­fals,“ sagði mað­ur­inn við Mannlíf.

Sú sem ráðin var er fyrir ofan þann sem ekki var ráð­inn. Hér sést að búið er að breyta tölu er snýr að námi hennar.
Hér má sjá að búið er að breyta töl­unni hjá þeirri sem var ráðin í 4 er snýr að námi hennar. Hún er sýnd fyrir ofan þann sem ekki var ráð­inn.

Segir hann einnig að bæj­ar­stjórnin hafi virt að vettugi ósk sína um að nafn hans yrði ekki birt opin­ber­lega, fengi hann ekki starfið, því það kæmi sér illa fyrir hann þar sem hann starfi nú hjá öðru sveit­ar­fé­lagi og sé ánægður í starfi. Starfs­maður Capacent hafði full­yrt við hann að nafn hans myndi ekki birt­ast. Önnur varð sem sagt raunin.

Maðurinn segir að þetta mál allt hafi verið afar þung­bært fyrir fjöl­skyld­una.

„Sem dæmi um þann sárs­auka sem þetta hefur valdið okkur get ég nefnt að allir synir mínir grétu á aðfanga­dag jóla 2019. Mér hafði orðið það á að segja að þar sem þessi umsókn mín hefði ekki gengið eftir sæi ég ekki fram á annað en við myndum flytja frá Höfn. þeir grétu því yfir að þetta yrðu sein­ustu jól þeirra á þessu heim­ili. Einn sonur minn spurði mig til hvers maður stundar nám ef maður fær svo ekki starf við það sem maður lærði?“

Maðurinn vann á þessum árum á Egils­stöðum en ók heim til sín um helgar en býr nú aftur á Höfn. „Þetta hafði mikil áhrif á heilsu mína, á margan hátt og ég er enn að vinna í því. Þetta er geysi­mikil höfnun. Ég hef einu sinni neyðst til að fara inn í ráð­húsið eftir þetta því ég varð að sækja mér sorp­kort en ég vil það helst ekki. Þetta eru fyrr­ver­andi vinnu­fé­lagar og mér líður bara eins og ég hafi orðið fyrir lík­ams­árás og ég eigi von á annarri.“

Hafði hann sem sagt unnið hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði í sam­bæri­legri stöðu í fimm og hálft ár. „Það hefur eng­inn hjá sveit­ar­fé­lag­inu sýnt neina iðrun eða beðist afsök­unar og svo virð­ist sem þeim finn­ist bara þetta sé bara hin rétta leið, að ég þurfi að leita til lög­fræð­inga og dóm­stóla til að sækja bætur vegna skað­ans sem þau ollu mér.“

Eins og áður segir úrskurð­aði kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála að brotið hefði verið á mann­inum en sam­kvæmt rök­stuðn­ingi bæj­ar­stjórn­ar­innar, fyrir ráðn­ing­unni, var horft til jafn­rétt­is­sjón­ar­miða. Þar stóð:

„Verulega hallar á konur í störfum á skipu­lags- og tækni­sviði sveit­ar­fé­lags­ins en í dag er þar aðeins ein kona starf­andi.“ Ekki virð­ist bæj­ar­stjórnin hafa jafn­rétt­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi í öðrum ráðn­ingum sveit­ar­fé­lags­ins en ekki einn ein­asti karl­maður gegnir stjórn­un­ar­stöðu hjá sveit­ar­fé­lag­inu.

Maðurinn hefur nú höfðað skaða­bóta­mál gegn bæj­ar­stjórn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð